Alþýðublaðið - 07.02.1961, Page 3

Alþýðublaðið - 07.02.1961, Page 3
usk varar við of Washington, 6. febrúar. (NTB). RUSK, utanríkiteráðherra Bandaríkjanna, hélt fyrsta blaðamannafund sinn í dag. — Rusk kom víða við, en einkum lagði hann mikla á- herzlu á að vara við of mikilli bjartsýni RUSK um bót á samskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Utanríkisráðherrann kvað Rússa að vísú hafa sýnt betri hug en í langan tíma áður er þeir skiluðu nýlega RB-47 flug- mönnunum tveimur. Þó væru fjölda mörg vandamál óleyst. Hann minnti á ráðstefnu kom- múnistaleiðtoganna í Moskvu í árslok 1960 og það sem þar gerð ist. Rusk minntist einnigá ræðu þá, er Krústjov hélt 6. janúar s. 1. en þar gerði hann ráð fyrir stóraukinni útþennslu kommún ismans. Hann kvað enn margt ógert, sem gæti bætt samband- ið millj. Moskvu og Washington og nota bæri næstu vikur og mánuði til að skapa nýtt og betra andrúmsloft á milli þess ara höfuðvelda. Rusk skýrði frá viðræðum þeim, sem nú er með ýmsum ríkjum, um Kongó og þróun mála þar. Hann kvað stjórn Bandaríkjanna styðja samtök Sameinuðu þjóðanna til að gegna hlutverki sínu í Kongó, en það væri að efla menntun og framfarir í landinu en þó um- fram allt að stilla þar til friðar. Eining landsins væru fyrir öllu. Um Berlín sagði ráðherrann, að stjórn hans legði mikla áherzlu á að fá það mál leyst, en ekki yrði þar um neitt undanlát að ræða. | Sá fariðji kominn í enska blaðastríöið London, 0. fehrúar (NTB—REUTER) Sunnudagsblaðið „Nevvs of The World“ sem gefið er út í 6,5 millj. eintökum hefur tilkynnt þátttöku sína í kapp- hlaupinu um „ástir“ hluthaf- anna í Odhams Press. Eru þcir þá orðnir þrír, því að auk hrns fyrstnefnda hafa þeir Ce- cil King, sem á Daily-Mirror- Stórhætta af sprengi- efni í Tokyo- flóa Tokyo, 6.. febrúar. (NTB-AFP. ÖLL skip í Tokyo-flóa voru alvarlega aðvöruð í dag vegna þess að danska skipið „Laust Mæsk“ fórst þar á sunnudagskvöld með m. a. 35 tonn af steinolíu- sóda (petroleumsoda) inn- anborðs. Efni þetta spring ur við mjög lágt hitastig. Nokkrar af þeim 150 sóda- tunnum er með skipinu voru sukku ekki með því og hafa þrjár fundizt á floti. Menn óttast að fleiri séu á floti og muni springa ef þær komast í snertingu við skipshlið. i hringinn, og Roy Thompson sem á The Scotsman o. fl., boð- I ið í Odhams Press. Stjórnar- 1 formaður í „News of The World“, sir Willram Carr, — skýrði frá því í dag, að hann | hefði rætt við Cecil King um framtíð blaðanna Daily Herald og sunnudagsblaðið Tlie Pe- ople ef trlboði King verður tek- ið. Bæði eru þau gefin út af Odhams Press. Ekkert kvað hann hafa verið ákveðið. Geneva. 6. febráar. STRÍÐS- FANGAR Þeir halda áfram að berjast í Laos. Þar geng ur á ýmsu og hver höndin upp á móti annarri. Mynd rn er af stríðsföngum sem stjórnarherinn nú- verandi hefur tekið. Þeir eru bundnir saman á hönd um. •MMWMHMMMWMMUMMHW HWWWwwwwimiWWMIW (NTB-Reuter). ÞRÍVELDA-ráðstefnan um hlé á tilraunum með kjarnorku sprengingar hefst aftur í Genf 21. marz. Þátttakendur eru Bandaríkin, Bretland oLr Rúss- i land. __________ Rússneskur ráðherra settur af Moskvu, 6. febrúar. (NTB-AFP). SMIRNOV, landbúnaðarráð- ráðherra Rússa hefur verið sett ur af, að því er Sovét-pressan segir í dag. Hefur hann verið gerður lað ambassador. Breyt- ing þessi kemur mönnum ekki á óvart, enda siglir hún í kjöl- far skarprar gagnrýni Krústj- ovs á yfirstjórn landbúnaðar- málanna. NNEDY: ÚTFLUTNINGUR Til bjargar í vanda Washington, 6, febrúar. (NTB—AFP). Kennedy forseti Bandaríkj- anna sendi þrnginu boðskap í dag um gjaldeyrismálin og örðugleika þá sem nú standa yfir í sambandi við þau. — Kennedy kvaðst leggja til að áherzla yrðr lögð á aukinn út- flutning til bjargar málum þessum en ekki horfið að vernd artollum. Kennedy sagði, að stjórnin myndi útvega lán hjá Export- Importbankanum til að styðja útflytjendur í viðleitni þeirra. Hann kvað greiðslujöfnuðinn hafa verið óhagstæðan um 1500 millj. dollara í fyrra. — Forsetinn boðaði aukna aðstoð við erlend ríki. Hann sagði um ástandið almennt í efnahags- málum þjóðarinnar, að það gæfi tilefni til varúðar en eng- in ástæða væri til að óttast mjög. í dag lagði Kennedy einnig fram tvær trllögur um stuðn- ing við áframlialdandi greiðsl ur úr Atvinnutryggingunum til þeirra verkamanna, sem eru hættir að fá grerðslur úr þeim vegna þess hve lengi þeir hafa verið atvinnulausir. Hin tillag- an er um sams konar fjárhags stuðning vrð börn atvinnuleys- ingja eins og nú er veittur for- eldralausum börnum og ör- kumla. Þá hefur borizt tilkynn, ing um það frá Hvíta húsinu, að á þriðjudag verðr lögð fram tillaga urn það í þinginu, að lágmarkslaun verkamanna hækki í einn dollar og tíu cent á klukkustund en innan tveggja ára verði þau komin í ernn dollar og tuttugu og fimm cent. Allt með felldu með Spútnik - og jbó Moskva, 6. febrúar. (NTB-Reuter-AFP). NÝJASTI gervihnöttur Rúbsa heldur áfram för sinni kring- um jörðina og er öll starfsemi í honum með eðlilegum hætti, sagði talsmaður Geimfararstofn unarinnar í Moskvu við frétta- menn AFP í kvöld. Enn af leiðtogum sovézkra vísindamanna í geimfararfræð- um, prófessor Georgi Pokrov- skij, sagði í Moskvuútvarpinu, Framhald á 5. síðu. Alþýðublaðið 7. febr. 1961 3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.