Alþýðublaðið - 04.03.1961, Blaðsíða 11
Gegn hnefaleikum
FYRIR skömmu birtist á í-
þróttasíðunni bréf frá tveim á-
hugamönnum um hnefaleika.
Eru þeir gramir mjög yfir því,
að ,,hnefaleikamálið“,' eins og
þeir kalla það, hefur legið
niðri um langan tima.
Nú vil ég spyrja þessa menn:
Af hverju hefur hnefaleikamál
ið legið niðri svo langa hríð?
Svarið er einfaldlega, að allur
þorri manna, er, af eðlilegum
ástæðum á móti hnefaleikum,
og hefur því ekkert um það að
tala. Og þeir, sem hafa áhuga á
hnefaleikum, hafa hingað til
haft vit á að þegja um það.
Bréfritarar koma fram með
þá fullyrðingu, að löngun
ungra manna til slagsmála hafi
ekki minnkað þó að hnefaleik-
ar hafi verið bannaðir. Það er
rétt, að ungir og hraustir strák-
ar hafa haft og munu senni-
lega halda áfram að hafa gam-
an af því að slást, jafnvel með
hnefun'um ef svo ber undir.
Þetta er ekkert nýtt, og álit
mitt er, að ungir strákar sláist
alveg jafnt fyrir það þó hnefa-
leikar séu ekki leyfðir.
Bréfritarar eru mjög hrifnir
af frumvarpi Péturs Sigurðsson
ar alþ.manns um brunggun og
sölu áfengs öls á íslandi.
Ég leyfi mér að benda á, að
óvarlegt er að nefna áfengi í
þessu sambandi því reynslan
hefur sýnt, að íþróttir og áfengi
geta aldrei farið saman.
Þessa hrifningu þeirra af öl-
frumvarpinu mætti því skilja
svo, að þeir álíti hnefaleika efcki
íþrótt, enda er varla hægt að
segja að þeir séu það, þar sem
keppendur leitast við að berja
hver annan og meiða, en meg-
inregla allra sannra íþrótta-
manna er drengskapur og heið
arleiki.
Ekki ætla ég mér að eyða
orðum að þeim samanburðar-
dæmum, sem bréfritarar taka
þar sem mér finnast þau al-
gjörlega út í hött og engann
rétt eiga á sér.
Bréfritarar segjast hafa haf-
ið undirskriftasöfnun undir á-
skorun á Pétur Sigurðsson alþ.
mann um að beita sér fyrir því,
að hnefaleikar verði aftur leyfð
ir að lögum, en þeir láta þess
einnig getið, að lítið hafi safn-
ast, enda er það eðlilegt að
menn vilji ekki láta bendla sig ,
við áskorun þessa.
Að lokum ráðlegg ég E. !
Sverrissyni og P. Ragnarssyni
að halda áfram að ræða áhuga- j
mál sín í laumi, til þess að þeir
verði sér ekki til athlægis
meira en orðið er.
S.A.
IÞRÓTTIR
Framhald af 10. síðu.
Hrafn Johnsen, báðir úr ÍS. —
Hólmsteinn Sigurðsson, Guð-
mundur Þorsteinsson, Þor-
steinn Hallgrímsson og Sigurð-
ur Gíslason frá ÍR. Ingi Þor-
steinsson, Ólafur Thorlacius og
Einar Matthíasson frá KFR. —
Ingi Gunnarsson frá ÍKF. Birg-
ir Örn Birgis, Hörður Kristins-
son, Árni Samúelsson og Lárus
Lárusson frá Ármanni.
Þeir Lárus Lárusson og
Hrafn Johnsen hafa báðir boð-
að forföll, en í þeirra stað hafa
verið valdir til æfinga: Marinó
Sveinsson KFR og Jón Otti
Jónsson KR. Alls 14 valdir til
æfnga, en síðar verða 10 valdir
endanlega í sjálft landsliðið.
REYKJAVÍK - KEFLAVÍK
HAFNAR-
FJÖRÐUR
HAB-umboðið í A1
þýðuihúsinu verður
opið í dag og á
morgun frá kl. 1—
6 e. h., en á mánu-
dag og þriðjudag
frá kl. 9 f. h.
ÚRVAL BIFREIÐASALAN
opnar eftir nokkra daga í nýjum húsakynnum að
LAUGAVEGI 146.
Heiðruðu viðskiptavinir, um leið og við þökkum
ykkur fyrir góð viðskipti á undanförnum árum, þá
minnum við ykkur á að við opnum á Laugavegi 146
eftir nokkra dga. — Sími okkar er 11025.
Ú R V A L Bifreiðasalan
Hafnarfjörður og nágrenni
Pökkunarsfúlkur
óskast strax í
Hraðfrystihúsið F R O S T H F
Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma 50165.
MEISTARAKEPPNI NORÐ-
URLANDA 1 KÖRFU-
KNATTLEIK.
KKÍ var stofnað 29. janúar
s. 1. Fyrir þann tíma hafði ÍSÍ
staðið í bréfaviðskiptum við
Dani og Svía um möguleika á
landsleikjum í Svíþjóð og Dan-
mörku. Báðir þessir aðilar
höfðu gefið jákvæð svör. Það
varð því eitt fyrsta verk stjórn-
ar KKÍ að hrinda málum þess-
um í framkvæmd. Nú er svo
komið að ákveðnir hafa ver.ið
tveir landsleikir í Kaupmanna-
höfn. Við Dani 2. april og Finna
4. apríl. Finnar verði í Höfn
um þetta leyti til að keppa við
Dani, eftir að hafa lokið lands-
keppni við Austur- og Vestur-
Þjóðverja
Endanlegt svar hefur ekki
ennþá borist frá Svíþjóð, en við
reiknum með jákvæðu svari
þaðan dnnan tíðar.
Danir hafa boðið, að ef úr
landsleik íslands og Svíþjóðar
verður, þá skoðist leikir íslands
í þessari för, sem liður í meist-
arakeppni Norðurlanda.
Tveir leikir hafa þegar farið
fram i þessari keppni, Svíþjóð-
Danmörk í des. s. 1. og Finnland
Svíþjóð í janúar.
BLAÐAFULLTRUI:
Stjórn KKÍ er það vel ljóst,
að sem nánast samstarf við dag
blöðin, getur haft ótrúlega
mikla þýðingu fyrir íþrótta-
hreyfinguna í heild. KKÍ mun
þvi kappkosta að samstarf körfu
knattleiksmanna og blaðanna
verði, sem nánast. Hefur því
verið ákveðið að Ásgeir Guð-
mundsson gegni starfi blaða-
fulltrúa sambandsins og verður
hann jafnan reiðubúinn að
veita íþróttafréttamönum sem
beztar upplýsingar um starf-
sem KKÍ á hverjum tíma.
SUNNUDAGINN 5. marz talar
Svein B. Jöhansen um tvö
mikilvæg efni:
í Aðventkirkjunni, Reykjaí-
vík, kl. 5 siðd.
Að baki dauðani
í Tjarnarlundi. Keflavík, kl.
20.30:
Sköpun eða þróurti
Söngur. — Tónlist.
Allir velkomnir.
I
Kvöld
4. marz
1961.
ŒMÆ1F& &</81PJBeiATLi
LUNGENBRATEN LENDENSTtlCK
(Austurrískur réttur.)
Nautabuff ístungið spiki og nautatungu., '
Framreitt með kjörsveppum, lambanýruJEL
Og bræddu smjöri.
Ib Wessman,
Ingólfs-Café
Gömlu dansarnir í kvöld kl. 9.
Aðgöngumiðasala frá kl. 5. — Sími 12826.
Tilboð óskast
í eftirtalin tæki: •
1 skurðgrafa Priestman Cub.
1 skurðgrafa P og H 150.
1 vörubifreið % tonns Dodge Pick-up.
2 Hercules benzínvélar 150 h.ö ásamt varahlutum.
Tækin verða til sýnis á verkstæði voru, Kársnes-*
braut 68, þriðjudaginn 7. marz fel. 1 tii 4.
Tiibcðin verða opnuð þar á staðnum kl. 4.30 saxrsa
dag.
VÉLASJÓÐUR RÍKISINS.
Auglýslngasíml
Albýðublaðsins
er 1490«
BOGASALNUM OPIN KL. 2-10
Alþý®ublaðið — 4. marz 1961