Alþýðublaðið - 07.03.1961, Qupperneq 1
Þriðjudagur 7. marz 1961 — 55. tbl
STJÓRNARKJÖR fór fram í
IÐJU, félagi verksmiðjufólks í
Reykjavík, á laugardag og
sunnudag. Úrslit urðu þau, að
kommúnistar og fylgifiskar
þeirra, framsóknarmenn, fóru
hinar háðulegustu hrakfarir, eft
ir að hafa lagt sérstaka áherzlu
á að vinna félagið.
Tveir listar voru í kjöri, A-
listi, borinn fram af Birni
Bjarnasyni og fleirum, og B-
listi, borinn fram af stjórn og
trúnaðarmannaráði.
B-listinn sigraði með yfir-
burðum og hlaut 819 atkvæði,
en A-Jisti kommúnista og
framsóknar hlaut 594 atkvæði.
Framhald á 5. síðu
sr -úeudingar áítu i hsj
m leík og sýndu hvað
Þ A Ð er íþróttaopna
í blaðinu í dag og ekki að
ástæðulausu. Hér er ís-
lenzka handknattleikslið-
ið, sem er búið að setja
allt á annan endann í
Þýzkalandi og sem dönsku
blöðin hylltu í gær með
upphrópuninni: Vel af sér
vikið, ísland! Alþýðublað-
ið tekur undir þetta og
segir:
KOPAVOGSLÖGREGLAN
veitti athyglj um helgina
manni, scm var mjög ölvað
ur þar í kaupstaðnum og var
bifreið hans þar einnig. Lög
reglan grunaði manninn um
að hafa ekið ölvaður og tók
hann í gæzlu.
1 bifreið mannsins var stór
hundur, hinn illilegasti. Þar
sem maðurinn var úr Reykja
vík lét Kópatvogslögreglan
kollegum sínum þar eftir að
handsama hundinn.
Þrír fílefldij. lögreglumenn
voru sendir suður í Kópa
vog til að ná í hann. Hófst
þar hinn mesti bardagi, því
hundurinn var ekki á því að
l!áta draga sig á stöð^ra.
Bardaginn geisaði góða
stund Ojj- var ekki betur að
sjá, en að huridurinn færi með
sigur af hólmi. Þar kom þó,
fyrir vasklega framgöngu
eins lögregluþjónsins, að hund
urinn varð yfirbugaður (eftir
grimmdarlega vörn.
Ekki var farið með hund
inn í Steininn «ins og hús
bónda hans, heldur var hann
þegar leiddur á aftökustað
inn.
3. sí-ðan- er
erlenda síðan
skilning ríkis-
stjórnarinnar
LAGADEILD Háskóla ís-
lands hefur með álitsgerð til
dómsmálaráðherra lýst þeirri
skoðun sinni, ’að orðalagið á
lausn landhelgisdeilunnar ,,feli
efnislega í sér viðurkenningu
brezku ríkisstjórnarinnar á 12
mílna fiskveiðilögsögu umhverf
is ísland“. Þeir hnekkja þar
með þeirri skoðun stjórnarand-
stöðunnar, að þessi viðurkenn-
; ing sé ekki tryggð.
I Bjarni Benedíktsson dóms-
málaráðherra skýrði frá þessu 1 þér, hæstvirti dómsmálaráð-
á alþingi í gærkvöldi, en hann 1 herra, óskað áhts lagadeildar
hafði óskað eftir áliti lagadeild , á því, „hvort brezka ríkisstjórn
arinnar um þetta deiluatriði. in viðurkenni 12 mílna fisk-
Álitið fer hér á eftir: veiðilögsögu umhverfis ísland,
Með bréfi, dags. i dag, hafið ef hún fellst á þá lausn fisk-
| veiðideilunnar sem ráðgerð er
í tillögu til þingsályktunar um
, það efni á þskj, 428 . . .“ Próf-
essor Ólafur Jóhannesson ósk-
aði ekki að taka þátt í meðferð
Framh. á 5. síðu.
Hannes skrifar í dag um: Krabbamein
í þjóðarlíkamanum ^ f ^ 2. síða