Alþýðublaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 15
að. Það gladdi mig að sjá hve glöo þau Edwin voru og Ihann hafði yngst um mörg ár. Eg fór jafnvel að vona að við Chris einhvern tím ann . . og þó var óhætt að vona það? , Svo versnaði í veðri og allir lágu í flenzu, háls- bólgu eða kvefi. Ég veiktist sjálf og einn daginn kom Fleur að iheimsækja mig. Ég sá strax að bún 'hafði breytzt. Hun var ánægð og viss eins og kona sem hef ur fundið sjálfa sig. „Ég varð að koma til þín Kay. Ég þarf að segja þér dálítið”. , Ég fékk hjartslátt — hafði Chris sagt henni allt? „Ég er komin til að kveðja þig Kay“, sagði Fleur og tók utan um mig“. Ég fer til Kanada á morg- un og þetta veit enginn nema þú. Ég ’hef ekki held ur sagt Chris það“. Ég held að ég hafi orðið eitthvað elnkennileg á svip inn, því hún hló hátt. Glað lega eins og hún væri að gera grín að mér. Svo sett ist hún. „Liggðu kyrr . . .“ „Þú ert að gera að gamni þínu“. Hún hló enn hátt þar sem hún sat við hl;ð mér. ,.Nei alls ekki. Mér hefur aldrei verið meiri alvara Kay, þú veist eins vel og ég að hjónaband okkar Chris er ekkert hjónaband. Hann hefur verið frámuna- lega góður og tillitssamur við mig, en — það er ekki nóg. Ef barnið okkar hefði lifað hefði ég reynt að halda það út barnsins vegna en nú er það heimska“. „Ætlarðu að fara til Lind say og Erics?“ Hún kinkaði kolli. „Já, til að byrja með. Ég ætla ekki að láta neinn vita. Þau heima myndu aldrei skilja mig, en við erum svo líkar Kay. Þú hefðir gert það sama í miínum soorum”. „En hvað með Chris?“ „Við Chris skiljum sem vinir. Hann er skilningsgóð ur“. Fleur var sigri hrósandi eins °S bún hefði sannað fj'rir mér að hún gerði það eina rétta. „Ég hef ekki tíma til að vera lengi. Ég er búin að senda töskurnar mínar til skipsins og er að eins með litla handtösku með mér. Ég ætla ekki að segja þér hvar ég verð í nótt og ekki heldur nafnið á skipinu sem ég fer með. Það er betra þannig ef ein hver skildi spyrja þig. Þá geturðu sagt að þú vitir ekki neitt“. „Ég skildi eftir bréf heima — eitt til Chris og eitt til mömmu, sem verður sent á morgun. Þegar mamma fær það verð ég far in og þegar Ohris kemur frá París annað kvöld fær bann sitt. Óskaðu mér góðs gengis Kay“. „Það geri ég .— það geri ég vina mán“. „Ég get ekki sagt þér hvað ég 'hlakka tií Kay, mig hefur aldrei hílakkað jafn mikið til alla mína ævi. Það er svo skemmtilegt að standa ein og byrja á nýjan leik“. „Ég- kyssti hana blíðlega. „Vertu sæl og gangi þér vel Fleur“. „Vertu sæl Kay og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig“. Ég mun aldrei gleyma gleðinni sem lýsti úr aug um hennar þegar hún kvaddi mig. Ég fékk aðra heimsókn um kvöldið. Jonathan kom til min með blóm og kamþa vín. LEIT ITi „Og fyrir utan það?“ Ég reis á fætur. Ég varð að fá tírna til að jafna mig því ég vissi að Jonathan virti mig fyrir sér með at- hygli. „Hvað á þetta eigin lega að þýða?“ spurði ég glaðlega. „Er þetta yfir- heyrsla?“ „Ég skal vera heiðarleg ur oc jhreinskilinn við þig Kay. Ég hef áhyggjur af Fleur. Ég held að hún sé ekki hamingjusöm. Hún hef ur verið eirðarlaus lengi. „Síðast þegar ég hitti Fleur kvaðst hún vera mjög hamingjusöm“. „Hvenær var það?“ spurði hann. „Ég leit beint á hann“. Nýlega, „svaraði ég og von aðist til að þetta gengi ekki lengra. „Ég vildi óska að þú hefð ir á réttu að standa“. „,Fleur mun segja þér það allt sjálf“, sagði ég og hugs aði um bréfið sem hún hefði skrifað frú Blaney. „Heyrðu Jonathan mig langar ekki til að henda þér út en ég er enn hálf lasin þó ég sé á fótum og . . .“ Hann reis á fætur og brosti skilningsríkt. „Ée hef verið eigingjarn en það var svo gott að hitta þig aftur Kay. Gættu þín vel, ég kem búáðum aftur.“ „Gerðu það“, sagði ég og þakkaði honum fyrir gjafirn ar. Æamb. 22 un áður en ég fór í vinnuna og hún var ekki komin heim. Dyravörðurinn hleypti mér inn og öll föt- in hennar eru horfin — öll, ekki aðeins fáeinir hlutir. Stofustúlkan sagði mér að hún hefði skilið eftir tvö bréf“. „Það kom kökkur í háls inn á mér. Voru allar áætl anir Fleur orðnar að engu? „Hvað?“ endurtók ég veiklulega til að fá ráðrúm til að átta mig. „Já, eitt bréf til Chris og annað til mömmu sem átti að senda á morgun. Það er auðséð að Fleur er farin frá Chris — farin frá ickkur öllum“. i „Gaztu ekki fengið útskýr- ingu í bréfinu tþ móður þinnar?“ , „Annað hvort í því eða ibréfinu til Chris“. „Tókstu hans bréf líka?“ „Vitanlega. Ég ætla að hringj a til Parísar“. Ég var hneyksluð og ég leyndi því ekki. „En þú get ur ekki gert annað eins og þetta Jonathan. Þetta er þeirra einkamál. Þú getur ekki verið að opna það. HAMINGJUNNI blað fyrir fáeinum dögum. Ég minnist þess greinilega. Hún sagðj að Chris hefði tek ið það Og hún hefði aldrei séð það vel. Það var sama daginn, og Fleur eignaðist barnið. Ég held að Chris hafi verið hérna hjá þér þegar Maeve hringdi. Það var einkennileg hve fljót þú varst að finna hanrí*. „Við hvað áttu eiginlega Jonathan?“ „Aðeins þetta Kay, ég hef oft beðið fyrir utan leikhús ið til að aka þér heim. Var það tilviljun ein að Chris var þar alltaf í sömu erind argj'örðum? Ég er viss um að þið tvö hafið rekið Fleur á brott — jafnvel neytt hana til að taka til örþrifa ráða. Guð einn veit það‘‘. „Þetta er ekki satt. Ég get skýrt það allt Jona- than . . . “ En hann snérist á hæl og Loftleiðir ,.Ég fréttj að þú værir~j veik Kay“, sagði hann. „Ég -> leit inn til að vita hvernig j þér liði“. Ég þakkaði fyrir gjafirnar en mig langaði mest til að henda honum út. En hvað gat ég gert annað en spurt hvernig þeim liðf þegar hann óð inn og settist mak indarlega „Þau hafa öll verið kvef uð en það veiztu víst. Þú hittir Maeve oft“. „Já, við hittumst stund- um — ég hef hjálpað henni við innkaupin“. „Mamma er úrvinda af þreytu við allan brúðkaups- undirí>úninginn“, tautaðj hann. , ,,Ég er viss um að hún nyt ur þess alls“. Hann hló. „Já, það er víst rétt hjá þér. ,,En næsta spurning hans kom mér ekki vel. „'Hitturðu Fleur oft?“ „Við cg við“. „Þú hittir Chris ef til vill oftar?“ „Já, við vinnum mikið samarí'. Hann stóð kyrr eitt augna folik í lítilli forstofunni. „Ég kíki inn til Fleur, henni leið ist ef til vill meðan Chris er ekki heima“. „Það skaltu gera“, sagði ég. Hún var ekki heima en hann hlyti að sjá það sjálf ur.* Samt sem áður hafði ég slæma samvizku þegar ég lokaði dyrunum á eftir hcn um. En ég huggaði mig við að a'llt myndi fara vel. En dagurinn hafði verið erfiður og ég gat ekki sof ið, ég var því ekki í sem foeztu skapi þegar Jonathan kom aftur klukkan tíu dag inn eftir. „Veistu hvar Fleur er Kay?“ Það gladdi mig að geta svarað neitandi án þess að Ijúga. „Ég fór til hennar f gær, en hún var ekki heima, svo ég leit inn til hennar í morg „Ég geri það ef mömmu finnst það nauðsynlegt“. iReiðin ólgaði í mér. „Þú hugsar ekki um neitt nema þig og mömmu þína Jona- than. Reyndu að hugsa um Fleur! til vill er hún að reyna að sleppa frá ykk- ur og hefja lífið á nýjan leik! Þú talar eins og hún hafi verig neydd til þess“! Hann leit fyrirlitslega á mig. „Ég er líka farinn að halda að svo sé!“ Ég komst ekki hjá því að skilja við hvað hann átti og ég hrasaði þegar ég reyndi að hörfa undan honum. Ég hrasaði um borðið sem tíma ritinu lágu á og eitt þeirra féll í gólfið. Það var tíma- ritið með forsíðumyndinni af okkur Drake. Jcnathan starði lengi hugs andi á það, svo leit hann á mig. „Fleur spurði um þetta PHILLIS MANNIN Framhald af 16. siffn. in og hann lagði áherzlu á, að það væri mjög þýðingarmikið að hafa allar vélarnar af sömu gerð, reksturskostnður væri minni og öryggi farþega meiri. Alfreð skýrði blaðinu einnig frá því, að gengið hefði verið frá sölusamningi á síðustu Skymastervél félagsins, Heklu, við Lloyds Internationsl Air- ways, sem hefði keypt hana fyrir 145 þúsund dollara út í hönd. Það er skipafélag sem stendur fyrir kaupunum og hyggst nota Heklu til að flytja áhafnir skipa sinna á milli staða, eftir því sem þörf krefur. Sigurður Magnússon, fulltrúi skýrði blaðinu frá því, að nú störfuðu um 330—340 manns hjá Loftleiðum. Flugáhafnir væru alls 15, fjórir karlmenn °g þrjár flugfreyjur í hverri. Hann sagði, að hver vél félags ins tæki 80 farþega og gætu þær flutt um 4000 farþega á viku milli Ameríku og Evrópu. Sigurður sagði ennfremur, að félagið hefði mikinn áliuga á því, að flytja allt viðhald vél anna heim til íslands, en það kostar um 40 milljónir nú ár lega í erlendum gjaldeyri. Verði af þessu, þarf um 120 sér fróða menn hér heima til að annast viðhaldið. Ingc.lfur Jónsson, flugmála ráðherra, sem var viðstaddur er vélin kom, sagði, afi hann væri vitanlega mjög ánægður og kvaðst vona, að Lcftleiðir héldu áfram að ryðja sér braut á erlendum vettvangi með jafn miklum ágætum og hingað til. Þorfinnur karlsfeni kom til Reyíkjiav/'kur ,‘frá New! York og Miami. Flugstjór.inn á heimleiðinni var Einar Árna- son. Hann sagði, að vélin væri í sérstaklega góðu ásigkomu- lagi, hraði hennar væri að með altali um 245 mílur á klukku stund. Hann sagði að heim- ferðin hefði gengið mjög vel og tók tæpar 10 klst að fljúga heim frá New York. Alþýðublaðið — 7. marz 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.