Alþýðublaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 07.03.1961, Blaðsíða 4
ALFRED BERNHAHD NOBEL er sennilega þekktasti Svíi, sem uppi hefur verið. Þó var hann svo hógvaer í öllu lífi sínu og barst svo lítið á einkalíf hans gaf lítið tilefni til þess að um hann sköpuðust nokkrar sög- ur Hann var heimsfrægur fyr ir verk sín en samt virðast fáir hafa þekkt nokkuð til hans að ráði. Sviar vita auð- .vitað hvað hann hefur gert en jafnvel þeir gera sér óljósa hugmynd um persónu Nobels og þá eiginleika sem mótuðu skapgerð hans og örlög. Hann fæddist í Stokkhólmi 1833 af gamalli sænskri ætt. Hann var heilsuveill allt frá fæðingu, og varð oft að fara varlega með sig heilsu sinnar vegna. Faðir hans var auðug- ur maður. afkastamikill með afbrigðum, metnaðargjam og góður uppfinningamaður, en óheppinn í fjármálum og varð gjaldþrota sama árið, sem Alfred fæddist. Hann var snjall verkfræðingur og bygg ingamaður, en algerlega sjálf menntaður á því sv-iði. Frá föður sínum erfði Alfred No- bel iðni, í'íkt ímyndunarafl og skarnar gáfur en sem betur fór lítið taf þeirri óheppni sem oft elti föður hans í fjármál- um. Eftir eialdþrotið í Stokk- hólmi hélt faðir hans til Pét- ursborgar þar sem hann opn- aði vélaverkstæði. Það óx fliótt, sérstaklega eftir að Krímstríðið brauzt út. Var hann þá settur til þess af russ nesku stjórninni að smíða tundurdufl og gufuskip og græddi á tá og fingri. En við lok stríðsins hafði hann þan- ið starfsemi sína út um of og varð gjaldþrota í annað sinn. Tveir sona hans urðu áfram í Bússlandi og urðu seinna iðjuhöldar þar, en Alfred fór með föður sínum til Svíbjóð- ar þar sem hann reyndi að koma aftur fjárhagslega fót- am undir f.iölskyldu sína. Alfred fékk alla menntun ■faina hjá einkakennurum til lö ára aldurs og tók aldrei prox í skóla. Hann var samt mjög vel menntaður, og var þegar innan við tvítugt æfður efnafræðingur og afbragðs tungumálamaður, talaði og las jöfnum höndum þýzku. ensku og frönsku, auk sænsku og rússnesku. Jafnframt hafði hann óslökkvandi áhuga fyr- ir bókmenntum og heimspeki og átti hann sér það áhuga- mál allt lífið. Á æskuárum sínum hefur honum verið lýst þannig að hann hafi borið það með sér að vera „þrosk- aður og reyndur fyrir eðlileg- an tíma ungmenna , óvenjuleg um gáfum gæddur, en veiklu- legur útlits, dreyminn og í- hugandi“. Þessir síðamefndu eigin- leikar hans hindruðu hann ekki í því, að taka fuilan þátt í athafnalífi þessa tíma. Hann ferðaðist víða, eyddi miklum tíma til að rannsaka sprengi- efni, sérstaklega nitroglycer- in. Gerði haiin á því nokkrar breytingar svo meðferð þess varð hættuminni og auðveld- ari, og nefndi hið nýja efni dynamit og fékk einkaleyfi á því 1867. ’ Seinna fann hann upp enn sterkari sprengiefni og varð af þeim stórauðugur maður, auk þess sem hann starfraékti Bakuolíulindirnar með bræðrum sínum. Þegar hann lézt 1896 var hann orð- inn einn af auðugustu mönn- um álfunnar. Alfred Nobel var mikill hug sjónamaður og mannvinur, en sú staðreynd að hann er þekktastur fyrir uppfinningar sínar á sviði sprengiefna, hef- ur valdið því að flestir álíta að hann hafi haft sérstakan á- huga fyrir að finna upp vopn. Því fer víðs fjarri. Yfir níutíu hundraðshluta eigna fpinna hlaut hann fyrir uppgötvan- ir sínar á s\dði sprengiefna, sem voru no’tuð til borgara- legra verka, en þessar uppgötv anir hans gjörbreyttu allri tækni í námugreftri, vega- gerð og lagningu jarðganga, Þessi verk hans gerðu það ekki aðeins að verkum að hann safnaði óhemju auði held ur varð hann sífellt að vera á ferðalögum um Evrópu og Bandaríkin. Honum var það hugljúfast að eyða tíma sínum til vís- indastarfa, en vegna anna sem á hann lögðust er verið var að nota uppgötvanir hans víða um heim, gafst honum sjaldnast mikill tími til. vís- indastarfa á seinni árum sín- um. Frá aðalstöðvum sínunj í París stjórnaði hann myndun hlutafélaga, byggingu verk- smiðja og rannsóknarstofa og stofnun sölustöðva. Hann var brautryðjandi á sviði skipu- iagningar og stóriðju og sam- tíðarmaður John D. Rocke- feller. Starfsemi hans óx og varð að heimsiðnaði, sem náði til landa í öllum fimm heims- álfunum. Þrátt fyrir auðæfi sín virð- ist hann aldrei hafa öðlast verulega lífshamingju. Öllum kemur saman um að hann hafi verið fyndinn, öruggur í þekkingu sinni og sannur heimsborgari, en bjó þó alltaf yfir nokkru þunglyndi sem kom fram sem þurr kímni og sjálfshæðni sem jókst því frægari sem hann varð. — Margra ára náin kynni í starfi af alls kyns mönnum af ólík- um þjóðernum gerðu hann svartsýnan á manneðlið og kom það stundum fram í skrif um hans. Hann var ætíð hneigður fyr- ir að fara einförum og hvarf stundum. langan tíma án þess að láta svo mikið.sem nánustu samstai’fsmenn sína vita hvar þeir mættu hafa upp á honum. Þá langaði hann eins og hann sagði sjálfur,. til að lifa meðal sinna þöglu vina, trjáa og kjarrs, fjarri allri uppgerð og látalatum, sem hann hafði alla tíð mestu andstyggð á. Heið- ur og mannvirðingar virti hann einskis og vísað á bug öllum beiðnum um ljósmynd- ir af sér og upplýsingar um ævi sína með þessum orðum, sem hann eitt sinn skrifaði: „Ég get ekki séð að ég eigi skilið að verða þekktur, enda kæri ég mig ekkert um það“. Hann skapaði sér aldrei heimili, kvæntist aldi'ei, og lifði lengstum erlendis, þótt hann elskaði ætíð' föðurland sitt. Honum var á þessum tíma oft lýst sem auðugasta flakkara Evrópu. 1896 lézt hann á Ítalíu. Siðustu þrjú ár ævi sinnar átti hann bústað í Sviþjóð þar sem hann hafði keypt Boofrs vopnaverksmiðj- urnar. Hann lét sér mjög annt um móður sína en kvæntist aldrei eins og áður var sagt. Á æskuárum sínum var hann einu sinni, svo vitað sé, ást- fanginn af ungri stúlku, en ekki er nú vitað hver hún var. Á miðjum aldri kynntist hann stúlku af- lágum stigum, og varð úr því 18 ára ástarævin- týri en ekkert hjónaband, og mun það ekki hafa orðið eins og hann dreymdi um og aukið á þunglyndi hans. Það var ekki fyrr en hann batt endi á sambandið að hann öðlaðist aftur hugarró og losnaði við hugarstríð sitt. ERFÐASKRÁIN. Ári áður en hann dó gerði hann í París erfðaskrá sína sem fr.æg er orðin og gerði þar grein fyrir því hvernig hann vildi að fé sínu væri varið, hver yrðu laun vinnu sinnar og starfa, sem hann hugsaði svo oft um meðan hann var lífs. Hann var mjög gjöfull mannvinur meðan hann var 4 7. marz 1961 — Alþýðublaðið á lífi en hagsýnn um leið. ,,Ég vil heldur seðja svanga munna en að byggja voldug minnis- merki til dýrðar hinum dánu“. Meirihluta eigna sinna, 31 milljónum sænskra króna (Um 1300 milljónir íslenzkra króna eftir núverandi verð- gildi) vildi hann að varið væri til að stofna sérstakan sjóð sem lagður yrði á vöxtu. —■ Tekium hans skyldi varið til veitinga árlegra heiðurslauna til þeirra sem á áirnu á undan hefðu unnið mannkyninu mest til heilla á sviði eðlis- fræði, efnafræði, lífeðlis- fræði, bókmennta og bræðra- lags meðal þjóðanna. Veita skvldi verlaunin án tillits til þjóðei'nis. Veitti hann þrem- pr sænskum stofnunum rétt til að úthluta verðlaunununa og sérstakri nefnd sem norska stórþingið skyldi útnefna. Á bessum tíma voru Noregur og Svíþjóð sameinuð í eitt kon- ungsríki. í erfðaskránni kem- ur fram að þar hafði Nobel fundið flesta heiðvirða menn og treysti því föðurlandi sínu bezt til að framkvæma sínar síðustu óskir. Hvers vegna datt Nobel i hug að stofna þennan sjóð og verja honum þannig? Ástæð- anna er ekki langt að leita og koma þær greinilega fram í skrifum hans. Þær voru trú hans á framtíð mannkynsins og þær vonir sem hann batt við það. Sjálfur var hann Ijóðskáld og rithöfundur sem skrifaði á nokkrum tungumál- um og lét sér mjög annt um bómenntir. Nobel hafðimikinn áhuga á læknisfræði og stjórn aði sjálfur nokkrum tilraun- um á því sviði og hafði hug- myndir um þau mál sem voru studdar af læknavísindum samtíðarinnar og leiddu seinna til Nobelsverðlauna er þær voru gerðar að veruleika. Það var eðlilegt að hann á- kvæði að einum verðlaunum skyldi veitt til efnafr., en rann sóknir hans sjálfs höfðu fram ar öllu beinzt að þeirri grein. Það var einnig eðlilegt að eðl- isfræði skyldi tekin með, því hún er nátengd efnafræðinni. sem Nobel hafði sjálfur haft svo mikil afskipti af. Það liggur ekki eins í aug- um uppi, hvers vegna Nobel stofnaði friðarverðlaunin, en orsaka þess er þó alls ekki langt að leita, er menn vita af ævilangri leit hans á sviði heimspekinnar sem í víðastai skilningi var leit iað trúar- legum sannleika. í æsku varfS hann fyrir miklum áhrifum af Ijóðum Shelleys og þeirri friðarstefnu sem hann boðaði. Nobel hafði mestu andúð á styrjöldum á milli þjóða. Löng vinátta hans við Beurthu von Suttner, sem var ein af braut- ryðjendum friðarhreyfingar- innar og bréfasamband við hana árum saman, mun lík- lega hafa haft nokkur áhrif í þá átt að veita friðai'verðlaun- in þótt margt annað kæmi þar vafalaust einnig til greina. Framh. á 14. siðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.