Alþýðublaðið - 09.03.1961, Page 11
I
WMWWWMWWWWWWWiMWWW»WMWWWW9
„Það er erfitt
að sigra ís-
lendinga"
segja tékknesk blöð
ÞAÐ ER EKKI OFT, sem við sjáum glefsur úr íþrótta-
dálkum tékkneskra blaða, en eftir hið eftirminnilega j'afn-
tefli Tékkóslóvakíu og íslands á heimsmeistarakeppninni,
tókst okkur með aðstoð tékkneska sendiráðsins hér, að
komast iyfir brot úr umsögnum tékkneskra íþróttafrétta-
manna um leikinn.
Fréttamaður „Rudé Pravó“, segir m. a. í blaði sínu á
mánudaginn:
„Okkar taktik var ekki nógu góð, til þess að sigra ís-
lenzka liðið . . . „íslendingar leika mjög einfaldan hand-
knattleik, en hraði þeirra og keppnisvilji er geysilegur“.
(Þetta blað, „Rudó Pravó“ er eina blaðið í Prag sem, gef-
ið er út á mánudögum).
í þriðjudagsblaði „Svobodné Slovo“ segir m. a.: ,,Það
yerður erfitt fyrir önnur lið í úrslitakeppninni að sigra
Islendinga“.
Að lokum segir fréttamaður ,,Práce“: — „Framfarir ís-
Ienzkra liandknattleiksmanna undanfarið eru mjög at-
hyglisverðar“.
Tckkncskir oa íslenzkir handknatíleiksmenn í kepþni.
E i r p í p u r
fyrirliggjandi í eftirfarandi
stærðum:
%”xl,0 mm
á kr. 98,83 per kg.
%“xl,5 mm
kr. 92,13 per. kg.
%“xl,0 ímn.
á kr. 93,11 per. kg.
7/8“xl,5 mm
á kr. 87,56 per. kg.
l“xl,0 mm.
á kr. 89,68 per. kg.
Geislahitun hf.
Brautarholti 4. Sími 19804
Pósthólf 167.
Odýrir
kvenskór
í Siglufirði
Skíðámóf
Siglufirði, 6. marz.
SUNNUDAGINN 5. marz var
keppt hér í stórsvigi, og fór sú
keppni fram í Sk’arðsdal.
Keppt var í 5 karlaflokkum
og einum kvennaflokki.
Brautin fyrir tvo eldri karla
flokkana og kvennaflokkin var
ca. 1200 metra löng með 35 hlið
um.
Brautina lagði Hjálmar Stef-
ánsson og voru keppendur sam
tals 37.
Flokkur 18 ára og ehlri:
1. Kristinn Þorkelsson, 71,3
2. Birgir Guðlaugsson, 79,5
3. Skarphéðinn Guðm.ss., 85,2
4. Jóhann Vilbergsson, 86,3
Stúlkur 18 ára og eldri:
1. Kristín Þorgeirsdóttir, 92,0
2. Lillý Sigurðardóttir, 163,6
Flokkur 15, 16, 17 ára:
1. Sigurður Þorkelsson, 74,3
2. Þröstur Stefánsson, 111,7
3. Haukur Björnsson, 112,2
Flokkur 13—14 ára (25 hlið):
1. Björn Björnsson, 54,8
2. Jón Sigurbjörnsson, 64,5
3. Jóhann Halldórsson, 73,3
4. Ágúst Stefánsson, 76,9
Flokkur 11—12 ára (12 hlið):
1. Tómas Sveinbjörnsson, 36,7
2. Sigurbjörn Jóhannsson, 37,3
3. Jóhann Tómasson, 42,7
4. Theódór Júlíusson, 43,3
Flokkur 7—8 ára (8 hlið):
1. Ólafur Baldursson, 25,2
2. Tómas Jónsson, 27,6
3. Kristján Bjarnason, 30,7
— Guðmundur.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Aðalfundur safnaðarins verður haldinn í Fríkirkj-
unni sunnudaginn 12. marz n.k. og hefst strax
aflokinni messu kl. 3 e. h.
Fundarefni.
Venjuleg aðaifundarstörf.
Önnur mál.
Saf n aðarst j órnin.
Kvenfélags Hallgrímskirkju
ÁRSHÁTÍÐ
verður haldin mánudaginn 13. marz kl. 20,15
Framsóknarhúsinu, uppi.
Skemmtiatriði og Dans.
Félagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesth
Upplýsingar í símum 14359 — 14659 — 12297.
Skemmíinefndin.
Tilkynning
Bræðrafélag óháóra safnaðariits
hefur hug á að stórauka starfsemi sína á næstumú,
því er heitið á alla karla d söfnuðinum að ganga í
félagið og gefst mönnum kostur á að sækja skemrnt*)
kvöld í félaginu (félagsvist og fl. laugardaginn 11.
marz kl. 8Vú e. h. í Kirkjubæ við Háteigsveg til að
skrá sig í félagið.
Allt safnaðarfólk velkomið.
Stjórn Bræðrafélags óháða safnaðarins.
Pípulagningamenn
Munið árshátíðina arinað kvöld kl. 9 í
Tjarnarcafé, niðri.
Skemmtinefndin.
Vegna mjög villandi blaðafrásagna, vill
Ökuskólinn í Reykjavík
taka skýrt fram, að nemendum í bifreiðaakstrj css
algjörlega í sjálfsvald sett, hvort þeir fara í öki>>
skóla eða læra bæði undir munnlegt og verkíegt
próf hjá sama ökukennara, svo sem verið hefur.
Allar upplýsingar hjá kennurum Okuskólans í
Reykjavík (sjá símaskrá).
Nauðungaruppboð
Vélbáturinn Björn S. H. 90 verður seldur sam-
kvæmt kröfu Fiskveiðasjóðs íslands, Landsbanka
íslands, o>. fl. á uppboði, sem haldið verður á skrif -
stofu embættisins í Stykkishólmi, föstudaginn 10.
marz 1961 kl. 17.
Sýslumaðurinn í Snaefellsnes og Hnappadalsýslu.
Alþýðublaðið — 9. marz 1961 JJ,