Alþýðublaðið - 09.03.1961, Síða 14

Alþýðublaðið - 09.03.1961, Síða 14
Spánarhtéf Framhald al 7. siðii, jþar sem vinnukonuherberg- *n eru — og tekur til við að sauma fyrir fólk úti um bæ. Auðvitað svíkst Luisa um eftir beztu getu, skýzt upp til sín og tekur til saum- anna, þegar hún ætti að síanda í matargerð og sníð- ur af smjörinu. Auðvitað hatar hún húsbændur sína undir niðri, — þá, sem sitja með fæturna uppi á stólum og hvíla sig eftir matinn, meðan hún er að þvo upp og búa til kaffi, — en hún kann að dyljast, hún kann að skríkja auðmjúklega, þótt uppreisnarandinn brjótist um í hennar lítt upp frædda höfði, en það er 'kannski líka það eina, sem hún reglulega kann, auk matargerðar, hreingerninga Og síiuma, Luisa er tákn hinna kúg- uðu í þessa einvaldsríki, þar sem nafn ríkisleiðtogans er ekki nefnt upphátt í ókunn ugra áheyrn. Barcelona er undurhlý og falleg, borgin er Ijósum prýdd, ljósin varpa bjarma á hvítar, tígulegar byggingar, alia vega litir gosbrunnar sprautast upp í Ioftið og spila með vatni og litum, á krám og veit- ingahúsum er sungið, leikið á gítara og mandólín, dans- að • • í kirkjunum krjúpa þeir-háu og lágu, kannski í hræsni, en þeir krjúpa samt. Pálmakrónurnar vagga í kvöldblænum, og runnar og tré eru sum farin að blóm- stra vorblómum. Klukkan er tíu, — og þá eru allar góðar seníórítur komnar heim til sín. Bráð- um fara þær að sofa, — en kannski hafa þær þó fyrst íalað í símann við ástina sína, sem ætlar að bjóða þeim í bílferð á morgun upp á Tibidabo. — En Luisa, hún er að taka af borðinu, síðan fer hún sjálf að borða, ■hreinsa til, uppi bíða henn- ar saumarnir og síðan nýr morgun með sama boðskap og gömlu morgnarnir, sá-frá í dag og í gær. Það hringir enginn í hana, — og enginn býður henni í bílferð upp á Tibida- bo. Þó er það hennar mikla þrá í lífinu að ná sér í mann. Það er hennar eina von. Og þegar Luisa krýpur í kirkjunni, — þegar Luisa spennir greipar fyrir fram- an hina heilögu guðs móður, veit ég hvaða bæn hún bið- ur. — Hún biður um mann. Luisa getur auðvitað ekki látið sig dreyma um annað en fátækling, — en basl og fátækt er betra en að vera vinnudýr. En á Spáni er einn, sem er máttugri en guð. Ein- valdurinn, Franco. Þess vegna lifir Luisa enn á tím- um þrælanna, — og Franco hefur ekki gefið henni mann. .... (Ath.: — Hólmfríður var komin til Stokkhólms í blað- [ inu í gær. Lesendur eru beðn ir að láta það ekki villa sig, ( enda er þessi þáttur og sá næsti skrifaður á undan eins og dagsetningin segir til um). CHILE Framhald af 4. síðu. gífurleg. Þar eru lieiðar eins og hcr á íslandi, þar er syðstr hafnarbær heims, firðir eins og í Noregi, tignarleg fjöll og jöklar, hlýtt loftslag eins og í Suður-Evrópu, og nyrzt er eyðimörkrn Atacama, þar sem aldrei hefur komið dropi úr lofti. Sagt hcfur verið að Chile hafi alla þá náttúru- fegurð sem til er í hermi nema eitt og það eru frum- skógar sem hvergi finnast í landinu. Langflestir íbúanna lifa í miðhluta landsins, sem er frjósamastur með ökrum og aldrnlundum. Nokkrar fatapressur til sölu og sýnis Efnalaugiii Giæsir Laufásvegi 17—19. Jarðarför föður míns tengdaföður og bróður GAKÐAKS H. STEFÁNSSONAR sam andaðist að Landakotsspítala 27. febr fer fram í Foss- vogakapellu í dag, fknmtudaginn 9. þ. m. kl. 10,30. f. h. Einar Þór Garðarsson Kristín Guðlaugsdóttir Geir Stefánsson Hjálmar Steindórsson. BELGÍA Framh. af bls. 13. fallegar byggingar í Brússel. Elzti hluti borgarinnar er eins og borg út af fyrir sig og er ráðhús borgarinnar frá 1454 við Grand Place einna sérstæð ust þessara gömlu bygginga. Ég leit þarna inn og skoðaði skrifstofur borarstjóra Brúss- el, sem enn þann dag í dag vinna þarna innan um alda gömul listaverk. Einnig leit ég á viðhafnarsalinn, þar sem Boudoin konungur gekk að eiga Fabiolu sína fyrir nokkru. Fólkið í Brússel er mjög líkt Frökkum, talar frönsku og hegðar sér eins og Frakk- ar. Eru nær eingöngu búsett- ir Vallónar í Brússel og ná- grenni. íbúar Brússel eru um 1 milljón. Undanfarið hefur verið mik ið um framkvæmdir í Brússel í því skyni að bæta umferðar- öryggið í borginni. Hafa ver- ið gerðar margar neðanjarðar brautir og segja þeir, sem ekki hafa komið til Brússel í nokk- ur ár, að öll umferð í borg- inni hafi gerbreyzt við þetta. Eru það ráðherrar liberala er stjórnað hafa framkvæmdum þessum og segja menn í gamni hér í Brússel, að framkvæmdir þessar séu þær einu, er stjórn in hafi hlotið vinsældir af. FORSETAR Framhald af 7. síðu. með Kennedy, sem hafði safnað sanvan helztu sér- fræðingunum I pólitík Rússa eftir síðustu skiptin á skoðunum við Krústjov. Það kom í ljós, að Kennedy hafði lesið skýrslurnar frá sendiráðinu í Moskva, iað hann þekkti Ihernaðar- skýrslurnar og hafði lesið öll skjöl um þau rússnesk- amerísk mál, sem nú cru á döfinni. Kennedy hefur hrært kröftuglega upp I skrif- finnskunni og lýst því yfir, að meira virði væri að koma hlutunum í verk en setja þá fallega og hrein- lega upp. Hann hefur livatt til afkasta og dugnaðar og hefur ekld tekið það mjög alvarlega, þó að dálítið rót kæmist á hlutina um leið. Sauðárkróki, 7. marz. VÉLSKIPIÐ Skagfirðingur landaði fyrir helgi um 26 lest- um af fiski, sem fór til vinnslu í frystihúsin. Slcipið er á línu- veiðum. Vélskipið Ingvar Guð- jónsson er að búa sig á togveið ar og er ráðgert !að skipið fari á veiðar um miðjan mánuðinn. Veðrátta er óstillt og smærri bátar róa lítið. Rauðmagaafli er lítill, en sjómen vona, að loðna gangi um miðjan mánuðinn. — Fleiri bátar ætlá að veiða grá- sleppu nú en undanfarið. M.B. SLYSAVARÐSTOFAN er 09. ln allan sólarhringinn. — Læknavörður fyrir vitjanh ðr á sama *taS kl. 18—8 Bókasafn Dagsbrúnar að Freyjugötu 27 er opið sem hér segir: Föstudaga kl. 8—10, laugardaga kl. 4—7 og sunnudaga kl. 4—7. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Aust- fjörðum á suður- leið. Esja fór frá Rvk í gær austur um land í hring- ferð. Herjólfur fer frá Vest- mannaeyjum kl. 22 í kvöld til Rvk Þyrill er á Norður- landshöfnum. Skjaldbreið fer frá Akureyri í dag á vestur- leið. Herðubreið er á Aust- fjörðum á norðurleið. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er í Aabo. Arn- arfell er á Húsavík. Jökul- fell er í Calais, fer þaðan í dag áleiðis til Rotterdam. — Dísarfell losar á Vestfjarða- höfnum. Litlafell er á leið til Rvk frá Austfjörðum. Helga- fell er á Reyðarfirði. Hamra- fell fór 24. f. m. frá Rvk áleið is til Batum. Jöklar h.f.: Langjökull er í New York. Vatnajökull er í Amsterdam, fer þaðan til Rotterdam og Rvk. Spilakvöld Borgfirðingafél. verður fimmtudaginn 9. þ. m. í Skátaheimilinu og hefst kl. 21 stundvíslega. Húsið opnað kl. 20,15. Góð verðlaun. Mætið stundvís- lega. Næsta bastnámskeið Hús- mæðrafélagsins byrjar föstu daginn 10. þ. m. kl. 8,30 í Borgartúni 7. Þæt konur, sem sótt hafa um námskeið- ið gefi sig fram í síma 11810. Tæknibókasafn IMSÍ: Útlán: kl. 1—7 e. h. mánudaga til föstudaga og kl. 1—3 e. h. laugardaga. Lesstofa safns. ins er opin á vanalegum skrifstofutíma og útláns- tírna. Minningarspjöld Kirkjubyggingarsjóðs Lang holtssóknar fást á eftirtöldum stöðum: Goðheimum 3, Álf- heimum 35, Efstasundi 69, Langholtsvegi 163 og Bóka- búð KRON, Bankastrætl. Samúðarspjöld minningar- sjóðs Sigurðar Eiríkssonar og Sigríðar Halldórsdóttur eru afgreidd í Bókabúð Æskunnar. Flugfélag íslands h.f.: Millilanda- flug: Hrímfaxi er væntanleg- ur til Rvk kl. 16,20 í dag frá Kmh og Glasg. — Imnanlands- flug: í dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar (2 ferðir), Egilsstaða Flateyrar, Kópaskers, Pat- reksfjarðar, Vestmannaeyja, Þingeyrar og Þórshafnar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Fagur- hólsmýrar, Hornafjarðar, ísa- fjarðar, Kirkjubæjarklaust- urs og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f.: Fimmtudag 9. marz er Leif ur Eiríksson væntanlegur frá New York kl. 08,30. Fer til Glasg. og London kl. 09,00 og Edda er væntanleg kl. 20. frá Hamborg, Kmh., Gauta- borg og Stafangur. Fer til New York kl. 21,30. Félag Frímerkjasafnara: Her bergi félagsins að Amt- mannsstíg 2, II hæð, er op- ið félagsmönnum mánudaga og miðvikudaga kl. 20—22 og laugardaga kl. 16—18. Upplýsingar og tilsögn um frímerki og frímerkjasöfn- un veittar almenningi ókeyp is miðvikudaga kl. 20—22. Fimmtudagur 9. marz: 12,50 ,,Á frívakt inni“: Sjómanna þáttur. 14,40 Við, sem heima sitjum. 15,00 Miðdegisút- varp. 18.00 Fyr- ir yngstu hlust- endurna. 18,30 Þingfréttir. — Tónleikar. 19,30 Fréttir. 20,00 Frá tónleikum í Austurbæjarbíói 15. febrúar s. 1.: Þýzki píanóleikarinn Hans Jander leikur. — 20,30 Kvöldvaka: a) Lestur forn- rita: Hungurvaka; I. (Andrés Björnsson). b) Lög eftir Bjarna Þorsteinsson. c) Er- indi: Hákonarstaðabók og Skinnastaðaklerkar; fyrri hluti (Benedikt Gíslason frá Hofteigi). d) Kvæðalög: Kjartan Hjálmarsson og Jó- hann Garðar Jóhannsson kveða. 21.45 íslenzkt mál —• (Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag ). 22,00 Fréttir. — 22,10 Passíusálmar (33). —• 22,20 Úr ýmsum áttum (Ævar Kvaran leikari). 22,40 „Fúgu listin“ (Kunst der Fuge) eft- ir Bach; annar hluti. Dr. Hall grímur Helgason skýrir verk ið). 23,15 Dagskrárlok. £4 9. marz 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.