Alþýðublaðið - 01.06.1961, Page 2

Alþýðublaðið - 01.06.1961, Page 2
j j&ssHórax: GIsU J. Astþórsson (áb.) og Benedlkt Urðndal. — Fulltrúar rlt- j itjOmar: Slgvaldl HJálmarsson og IndrlSi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: JíJðrgvln GuSmund n. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml i. 14 906. — ASsetur: AlþýðuhúsiS. — PrentsmiSja Alþýðublaðsins Hverfis- 1 »ötu 8—10. — Askriftargjald: kr. 45.00 á mánuði. í iausasölu kr. 3,00 eint. i Mtgcfand.: Alþýðuflok. urinn. — Framkvœmdastjóri: Sverrir KJarlansson- SAMÞYKKIÐ TILLÖGUNA! [ SÁTTASEMJARI RÍKISINS hefur lagt fram tillögu um lausn á vinnudeilu þeirri, sem þegar hefur stöðvað mikinn hluta af atvinnulífi þjóð arinnar og hlýtur að leiða til nálega algerrar stöðvunar áður en langt líður, ef verlcföllum verð ur haldið áfram. Tillaga þessi er stórum hagstæð ari fyrir vinnandi fólk en það tilboð, sem atvinnu rekendur höfðu áður gert. Kauphækkun nú þeg- ar hækkar úr 3% í 6%, eftir ár úr 3% í 4% og verður eftir tvö ár 3%. Verkalýðssamtökin á skilja sér rétt til uppsagna, ef vísitala hækkar um 3 stig eða meir, eða ef gengi verður lækkað. Stefna Alþýðuflokksins í þessum n: hef- ur verið skýr og einföld frá byrjun og er það enn. Flokkurinn vill, að kaup hækki, svo sem framast er unnt, án þess að efnahagskeríið riðlist og kauphækkanimar verði teknar aftur af fólk inu í hærra verðlagi eða hækkuðum gjöldum til að standast niðurgreiðslur. Fíokkurin:; neiíar að mæla með kauphækkunum, scm leiða til þess, að kapphlaup við verðlagið hefjist á ný. Sl'kar hækk anir eru andstæðar hagsmunum vinnandi fólks. Hver kauphækkun leiðir af sjálfri sér sam kvæmt landslögum til hækkunar á kaupi bónd- ans, svo að landbúnaðarafurðir hækka. Um 10% kauphækkun mttn þannig leiða til hækkunar á mjólk, kjöti og öðrum afurðum, sem mimdl hækka vísitöluna um eitt stig. Einnig er vitað, að 10% kauphækkun veldur 100 milljón króna hækkun á ríkisútgjöldum og á móti þeim verður rikið að fá ! tekjur — eða skera niður niður önnur útgjöld. Ekki er fullkomnlega upplýst í dag, hver áhrif yrðu af þeirri hækkun, sem tillaga sáttascmjara gerir ráð fyrir. Þó telur Alþýðublaðið sterka á- stæðu til að vona, að hægt verði að halda varn- arlínunni gegn nýrri verðbólgu þannig að þessi hækkun yrði ekki þurrkuð út af nýjum verð- hækkunum innan skamms. Á þeim grundvelli mælir Alþýðuflokk- urinn eindregið með því, að þesfi tillaga verði samþykkt. Verði hún felld, er teflt í algera tví sýnu, og allar líkur á að verkföll verði langvar andi, en endanleg afleiðing nýtt verðbólgukapp hlaup, sem mundi verða verkafólki þungbærara en nokkurri annarri stétt þjóðarinnar. 1 Augíýsingasími Alþýðublaðsins er 14906 HÉR á eftir fer úrdráttur úr ræöum forseta íslands, herra Ásgeirs Ásgeirssonar, og Ólafs V. Noregskonungs, sem þeir fluttu í veizlunni að Hótel Borg í gærkvöldi. Vegna rúmleysis er ekki haegt að birta ræðurnar i heild,, Forseti fslands mælti m a. á þessa leið: „Herra Konungur; Þannig voru konungar ávarp- aðir, að sögn Sriorra Sturlusonar, á þeim tímum, er mál vort og tunga var ein. Þann vcg munu hin íslenzku hirðskáld hafa á varpað Noregskonunga. er þeir fluttu þeim drápur. „Tökum vjer það allt fyrjr satt, er í þeim kvæðum finnst’1, segir Snorri, „því enginn myndi það þora að segja sjálfum honum —■ konung inum — þau verk hans, er allir þeir, er heyrði, vissi, að hjéeómi væri og skrök, og svo sjálfur hann; það væri þá háð en eigi lof“. Það skapar engan vanda, n.i er jeg ávarpa Ólaf hinn fimmta Noregskonung, að bregðast ekki þessu trausti Snorra, því konung urinn er sjálfur vel íþrcttum bú inn, eins og var nafnj hans Tryggvason, og hefir staðið í mannraunum, eins og flestir Nor egskonungar frá upphafi vega. Hitt er vandinn, að flytja ávarp, þar sem af miklu er að taka úr nær ellefu hundrað ára sögu svo náskyldva þjóða, sem vel hefur varðveizt, og minnast jafnframt atburða, sem oss eru í fersku minni, úr sögu Hákonar konungs sjöunda og Ölafs krón prins, sem nú situr að rikj — og er hjer með.il vo” Sú saga þeirta konungsfeðga og norsku þjóðarinnar verðskuldar nýjan Snorra. Vjer fögnum innilega þessari fyrstu heimsókn Noregskonungs. Hún er sögulegur atburður. Að vísu hefir Ólafur konungur kom ið hjer áður, en þá sem krón prins, og afhent og afhjúpað minnismerki Snorra Sturlusonar í Reykholti, og faðir hans, þá Karl Danaprins, var hjer við land á sjómannsáram sinum upp úr aldamótum, og kunui frá mörgu skemmtilegu að segia. Við hjónin höfum og heimsótt þá feðga þrisvar á siðari árum, og farið um ættarslóðir íslenzkra landnámsmanna á vegum norsku stjórnarinnar, og þökkum við innilega móttökur og bróðurþel Norðmenn rækja nú vissulega fonna/ frændsemi með ágætum. Þó þelta sje í fyrsta sinn, sem konungur Noregs stígur fæti á íslenzka grund, þá er samt góðra kynna að minnast“. „Sjónarmið eru og fleiri en eitt. Meðal Norðmanna eru það að sjálfsögðu hinir gifturíkustu atburðir, er Noregur var samein aður eftir Hafursfjarðarorustu, og norska þjóðin eftir Stikla- staðabardaga. Og vel skiljum vjer gildi konungsdómsins í Nor egi, eigi sízt eftir hina þriðju sameining og þjóðarsigur í lok síðustu heimsstyrjaldar Við eig- um málverk eftir Revold, þar sem Hákon konungur og Óiafur krónprins stíga á land við Heið- ursbryggjuna að lokinni st.yrj- öld. Jeg lít oft á þessa mynd, viðkvæmum huga. Það var stór stund, þrungin af sorglegum minningum, stolti og fögnuði. Konungdæmið á sjer djúpar og sterkar rætur í Noregi, og í því á Snorri sinn þátt. Nöfnin, Há- kon, Ólafur og Haraldur, segja til. Þegar ætt Hara'.ds hárfagra var aldauða, komst Noregur einnig undir erlend yfirráð, og varð að ’úta erlendum hagsmun- um um iangan aldur. Þetta var bræðrabylta Norðmanna og ís- lendinga. En síðan hin þjóðlega viðreisn hófst, höfurn vjer átt samleið til frelsis og frama, og tminnumst samt nú vorra fyrri sambandsþjóða með brcðurhug. Noregur mun þó jafnan hafa far- ið fyrir — ailt að heilli öld í sumum greinurn. enda er aldurs- munurinn á Háskólum Noregs og íslands eitt hundrað ár“ „Nú þegar ég læt máii mínu lokið, skulum vjer aftur beina huganum að hinum örlagariku atburðum styrjaldarinnar. Oss standa fyrir ihugskotssjónum norskar hetjur á sjó og landi, af- tökur og fangabúðir. Hákon kon- ungur og Ólafur krónprins standa í skógarlundi, og svörð- urinn rótast upp í kring um þá af skotum og sprengjum. Það var eldskírn. Þeir voru tákn þjóðar og landvarna, og þvt eltir á röndum. Vjer skiljum hina örð ugu ákvörðun að fara úr landi til að halda baráttunni áfram. En það var sókn og ekki flótti. Áður var merkinu skotið niður svo hart, eins og gerði Þórður Fólason í Stiklastaðabardaga, að stöngin stóð, unz þeir stigu heil- um fótum á frjálsa jörð. Oft voru veður válynd og út- lit uggvænlegt á þessum árum. En svo drjúg var Noregs gifta, að það reyndist vera ný sögunótt, sem stráði framtíðardraumum yfir norska fold. Þjóðl’relsi, heimilishelgi, mannrjett.indi og manngildi er ekkert fleipur. heldur lífsskilyrði og norræn leiðarstjarna. Það ætti öllum að geta lærzt í ljósi, eða öl!u heldur myrkva þessira örlagatíma. Góðir gestir, jeg bið yður að rísa úr sætum, og drekka ásamt mjer, heillaskál Herra Ólafs hins fimmta, Noregskonungs, fjöl- skyldu hans og norsku þjóðar- innar!“ Ólafur V. Noregskonungur mælti m. a. á þessa leið: „Herra forseti. Ég vil gjarnan tjá innilegar þakkir mínar fyrir þau hjartan legu orð, sem þér, herra forseti, beinduð í þessu til mín og lands míns og snertu mig djúpt Og ég vii einnig um leið beina hjart- anlegu þakklæti til a’Ira íslend- inga sem viðstaddir voru komu mína hingað í dag og gáfu til kynna á svo sannfærandi hátt að ég væri velkominn gestur á ís- landi. Það er mér ákaflega mikil á- nægja að fá enn á ný tækifæri tii að heimsækja ísland og þessi heimsókn er um leið fyrsta opin- bera heimsókn norsks þjóðhöíð- ingja til Iýðveldisins íslands. Mér er kunnugt um, hversu mjög faðir minn kær, Hákon konung- ur þráði að geta endurgoldið hina mjög kærkomnu heimsókn yðar herra forseti, og konu yðar til Noregs 1955, en óhapp það, sem hann varð fyrir, hindraði því miður, að bann kæmi því við. Norska þjóðin finnur sig ná- tengda hinni íslenzku þjóð mörg um böndum og hefur fylgzt með örlögum hennar fyrr og síðari með bróðurlegum áhuga og sam- úð. Frændsemistilfinning og vin átta við íslendinga hefur ælið lifað hjá hinni norsku þjóð. Haf það, sem skilur löndin, hefur ætíð tengt þjóðirnar sam- an Sameiginleg saga vor hefur einnig styikt þann samhug, sem ríkir milli íslands og Noregs.Vér Norðmenn erum stoltir af því, að fyrsti landnámsmaðurinn á íslandi, Ingólfur Arnarson, var Norðmaður. Þær erfðavenjur og þau lög, sem snemma geröu ís- land að réttjrríki, hafa einnlg haft hina mikilvægustu þýðingu fyrir þjóðfélagsþróun í Noregí, Grundvöllur íslenzks þjóðfélags var einstaklingsfrelsi innan þeirra takmarka, sem lög sam- félagsins settu og sú arfleifð hef ur einnig orðið undirstaöa sam- félags í Norcgi og öðrum nor- rænum löndum Mikilvæga þætti sögu vorrar höíum vér fengið frá ísiandi. Norsku konungasögurnar, rilað Framh. á 12. síðu. 2 1. júní 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.