Alþýðublaðið - 09.07.1961, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.07.1961, Blaðsíða 2
Rltstjórar: Gíslt J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúl rit- ■tjórnar: Indriöi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 90S — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðu- húsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald kr. 45,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgefandi Alþýðuflokkurinn. — Fra kvæmdastjóri Sverrir Kjartansson. Trygg'mgornar J ALÞÝÐUBLAÐIÐ birti í fyrradag tölur um aukningu bótagreiðslna Tryggingastofnunar ríkis ins sl. ár. Sýna þær tölur vel hversu glæsilleg aukn ing heíur orðið á tryggingunum vegna ráðstafana : ríkisstjórnarinnar. Fjölskyldubætur urðu nær fimm sinnum meiri en árið 1959 og allar bóta greiðslur lífeyristrygginga urðu tvöfalt meiri en árifð áður. Alls námu fjölskyldubætur 115.3 millj. kr. árið 1960 en árið 1959 námu þær 24.5 millj. kr. Allar bótagreiðslur lífeyristrygginganna námu 340.2 milljónum sl. ár en 172 milljónum árið 1959. Það mun aldrei áður í sögu Tryggingastofnunar innar hafa orðið eins stórfelld aukning á tryggiing unum eins og sl. ár. Er það út af fyrir sig athyglis vert, þar eð öft áður hefur Alþýðuflokkurinn beitt sér fyrir aukningu trygginganna. Alþýðuflokkur i inn he'fur orðið að semja víð aðra flokka um aukn ingu almannatrygginganna eins og um fram gang annarra stórmála, sem flokkurinn hefur bor ið fyrir brjósti. í fyrstu kom Alþýðuflokkurinn trj^ggingunum fram í samvinnu við Framsóknar flokkinn en þegar tryggingarnar voru endurskitpu lagðar í tíð nýsköpunarstjórnarinnar hafði Fram sókn snúizt gegn tryggingunum og þá varð það Sjálfstæðisflokkurinn sem studdi framgang máls ins, enda þótt sá flokkur hefði í upphafi verið á móti tryggingunum. Þegar ríkisstjórn Hermanns Jónassonar sat, hiln svonefnda „vinstri stjórn“, bar Alþýðuflokkurinn fram tillögu um að auka almannatryggingarnar stórlega. En svo kynlega brá við, að bæði fram sóknarmenn og kommúnistar lögðust algerlega gegn þeim tillögum Alþýðuflokksins. Þessi ríkis stjórn, sem alþýða manna hafði bundið svo mikl ar vonir við, sá sér ekki fært að styðja tillögur Alþýðuflokksins um aukningu almannatrygging anna. En að sjálfsögðu var ekki síður ástæða til þess að stórefla almannatryggingarnar í tíð vinstri | stjórnarinnar, þar eð sú stjórn varð að gera ýmsar ! ráðstafanir í efnahagsmálum, sem rýrðu lífskjör almennilngs. Þegar núverandi ríkisstjórn hóf að 1 undirbúa sínar ráðstafanir í efnahagsmálum, bar Alþýðuflokkurinn enn á ný fram tillögur sínar um stóreflingu almannatrygginganna og nú mættu tillögurnar mun meiri velvilja en áður. Sjálfstæðisflokkurinn, sem í upphafi hafði barizt gegn tryggingunum fellst á stóreflimgu almanna •trygginganna en framsókn og kommúnistar höfðu tekið við hinu gamla hlutverki íhaldsins, þ. e. því að berjast gegn þessu milkla hagsmunamáli al ! þýðunnar. Alþýðublaðið fagnar þeirri stóreflingu almanna 'fcrygginganna, sem nú hefur átt sér stað og vonar, að enn verði unnt að efla tryggimgarnar. HANNES Á HORNINU hefur rokið saldaus bóndamað’ ur austur í lireppum og glefsað að mér urrandi af tómum mis skilningi og dæmafárri glám- skyggni þar sem hvergi var að stétt hans stefnt né samtökum hans eða hans líka, heldur gerð tilraun til að verja hann og bræður.hans í stritinu. ýV Vegið að tildri, veizluhaldi og gervimennsku. ýV Stórmerk gjöf Lands hankans á afmælinu. ýV Það er verið að brjóta hefð. TÍT Þagna selskabs páfagaukar? TILDUR OG GERVIMENNSKA flengríður um akurinn. Þannig hefur þetta verið lengi og virð ist ekki fara hjaðnandi. Ragnar Jónsson sagði í viðtali hér í biaðinu í sambandi við hina miklu og sérstæðu gjöf sína til íslenzkra erfiðismanna: „Ég fyr irlít hvers konar, tildur og gervi mennsku." Hann hjó að tildr- inu með gjöfinni og ummælum sínum. Og það er skemmtileg tilviljun, að ein af voldugustu stofnunum þjóðarinnar rétti annað högg að hinu sama og um sama leyti. I LANDSBANKINN átti merk- isafmæli Einhver hefði notað tækifærið til þess að halda gíf- urlega veizlu með hundruð gúmmíandlita og partígína í salarkynnum sínum, kampavíni og kransakökum, en hann gerði það ekki. Hann ákvað að í stað inn fyrir veizlu skyldi hann gefa barnaspítalasjóði Hringsins einn fjórðung milljónar og stuðla þar með að því, að nokkru fyrr en Tjöld Hvít og mislit margar stærðir, og gerðir. Sólskýli Svefnpokar Bakpokar Vindsængur Sólstólar Suðuáhöld (gas) Ferðaprímusar SpriHtöflur Potfasett Töskur m/matarílátum Tjaldsúlur úr tré og málmi Ferða og sportfatnaður alls 'konar Geysir h.f. Vesíurgötu 1, annars hefði orðið væri hægt að líkna sjúkum börnum. MÉR FINNST að hægt sé að k-enna í þessu tvennu þyt nýs tíma, að hægt sé að sjá brota löm á viðtekinni hefð, og að upp frá þessu taki menn heldur þann kostinn að halda hátíð með stuðningi við eitthvað gott og fagurt heldur en að sprengja tappana úr kampavínsflöskun- um og hláða kransakökubökkun um á veizluborðin. Jafnvel er þá hægt að vænta þess, að krafan um sérréttindi fárra útvaldra til þess að dansa í musterinu á þjóð hátíðardaginn meðan sótsvartur almúginn dansi á götum úti, kafni í kverkum þeirra. ÉG HEF ÁÐUR skrifað all- mikið um tildrið og gervi- mennskuna, enda orðið fyrir að kasti fyrir, jafnvel frá mönnum sem sízt skyldi, — og hefur þetta gengið svo langt, að upp AF TILEFNI þess hafa mér borizt nokkur bréf — og flest úr sveitum, en ég get ekkert þeirra birt. Ástæðan er sú, að ég er sannfærður um, að mann inum var alls ekki ljóst hvers konar málstað hann var að verja. Og læt ég svo útrætt um það. ALLIR, HVER EINN og ein- asti maður, sem ég hef hitt, hafa orð á gjöfum Ragnars og Landsbankans. Menn fagna þessu, ekki aðeins vegna gjaf- anna sjálfra, sem eru að vísit ólíkar en skyldar samt, heldur af því, að verið er að brjóta viðtekna hefð — og skulum við nú sjá hvort til dæmis gjö£ Landsbankans hefur ekki áhrif. Ég spái því að veizlum fari fækk andi upp úr þessu. Snobbarnir, verða neyddir til að lækka segl in Selskabspáfagaukarnir draga úr þvaðrinu. verksmiðja okkar ver.ður lokuð frá 24. júlí fram til 12. ágúst, vegna sumarleyfa starfsfólksins, en þá verður aft ur hafin framleiðsla á hinum vinsælu og vönduðu gólf teppum — gólfdreglum — gólfmottum. en þrátt fyrir að starfsfólk ver.ksmiðjunnar fer í ■ Ígetið þér, snúið yður til skrifstofu okkar EINHOLTI 10 Reykjavík sími 14700 eða til söluumboðsmanna í Reykja vík og víðsvegar um landið. I í&, sr LÖGBERG - HEIMSKRINGLá ! Eina íslenzka vikulblaðið í Vesturheimi. ] Verð: kr. 240 á ári. ] Umboðsmaður: Sindri Sigurgeirsson. P. O. Box 757, ReykjavÆk. ] 2 9. júlí 1061 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.