Alþýðublaðið - 09.07.1961, Blaðsíða 12
Ufi BCltSy
UM NOKKURT skeið hefur
það verið all mik’ið vandamál
hve margir Reykvíkingar flykkj
ast út í hin crlendu skemmti
ferðaskip, sem hingað kema, og
sitja þar að víndrykkju svo lengi
s.em hægt er. Oftast er þarna
nm sama fólkið að ræða, og hef
nr ekki enn tekizt að koma í
veg fyrir þennan ósið.
Umboðsmenn skípanna hér,
hafa reynt að stöðva þetta með
því að láta ekki hleypa neimim
um borð nema þeirn er hafa
,,vegabréf“ er umboðsmennimir
afhenda, undir vissum kringum
stæðum, Þetta ráð hefur lítið
stöðvað strauminn.
Jón Sólnes
hankasfjóri
JÓN SÓLNES hefur verið ráð
--inn hankastjóri Lanrisbaukans á
Akureyri. 1
Oft er það þannig að ferða
mennirnir bjóða fólir.i þessu um
borð með sér, og er þá ekkert
hægt við því að segja. Hitt er
þó verra eins og dæmi eru til,
að fólkið hefur beðið ferðamenn
ina að leyfa sér að vera með
um borð, og gefur þeim ýmsar
ástæður fyrir nauðsyn heimsókn
arinnar.
Þessi ósiður er því verri, þeg
ar vitað er um að landarnir hafa
gerzt all ölvaðir um borð í skip
unum, og hagað sér ósæmilega.
Allir skynibornir menn ættu
að sjá að þetta atferli er mjög
óæskilegt, og getur haft slæm
áhrif. — Því ættu allir, sem
iðju þessa hafa stundað, að sjá
að sér og leggja hana niður.
Því má bæta við, að er Grips
holm kom hér í vikunni var
hafður lögregluvörður á bryggj
unni allan daginn, en það dugði
ekki til.
FELAGAR
* SIGLUFJÖRÐUR í síld
(arfans. Ungir sem gamlir
leggja höinj á plóginn. Það
er rúmlega 70 ára aldurs
munur á þessum tveimur,
en báffir hafa áhuga á að
saltskammturinn sé rétt
mældur. — Ólafur Rngnars
son, Siglufirði, tók mynd
ina.
Málverkasýn-
ing í Freyju-
götusalnum
I DAG klukkan 5 er opnuð
sýning í Freyjugötusalnum (Ás
mundarsalnum) á málverkum
eftir Kristján Davíðsson og eru
á sýningunni aðallega ný mál
verk og mörg þeirra til sölu. --
Sýningin er opin daglega frá kl.
5síðd. tit 10 og verður lokað
þann 12. júlí. I
48 togarar
á skrá 1960
TALSVERÐ aukning varð á
togaraflotanum á árinu 1960. —
Nýir togarar, sem smíðaðir voru
fyrir íslendinga og bættust í
flotann á árinu, voru Maí 983
rúmlestir, Freyr, 987, Narfi 890,
Víkingur 987 og Sigurður 987,
allir smíðaðir hjá Seebeck í
Bremerhaven, nema Narfi sem
smíðaður var í Rendsburg.
Hin erfiðu rekstrarskilyrði og
aflaleysi orsökuðu talsverða
röskun í eigendaskrá togaraflot
ans. Kvað meira að eigendaskipt
um en verið hefur um langt
! skeið. Þannig keypti Bæjarút
'gerð Hafnarfjarðar togarann
j Vött, sem nú ber nafnið Apríl,
'júpíter h.f. keypti togarann
^Gerpi og fékk hann hið gamla
i togaranafn félagsins, Júpiter —
Síldar og fiskimjölsverksmiðjan
h.f. keypti togarann Austfirðing
sem nú heitir Haukur, Útgerðar
félag Akureyrar h.f. keypti tog
arann Norðlending, en fyrirhug
uð nafnabreyting hefur ekki
átt sér stað enn sem komið er.
Af gömlu togurunum er nú,
aðeins Gyllir á aflaskrá Hann
fór einungis 3 veiðiferðir á ár
inu og er þar með lokið veiði
skap gömlu togaranna, sem ekki
láta eftir sig ómerkan kapítula
í sögu íslenzkrar sjósóknar. —i
Gyllir hefur nú verið seldur
til niðurrifs.
Togaraflotinn taldist 48 skip
alls 33.445 rúmlestir í árslok
1960 Meðalstærð flot-ms er 697
rúmlestir, var 659 rúmletsir ’59
og hefur því aukizt um 38 rúm
lestir eða 5,5%.
Lengsta úthald hafði Hallveig
Fróðadóttir, 356 riaga, næsiir
komu Marz 345 daga, Ólafur Jó
hannesson 341 og loks Geir og
Þormóður goði með 340 daga
hvor. — (Úr Ægi).
Margir rannsóknar-
ieiðangrar tii ís-
iands í sumar
MARGIR erlendir rannsóknar
íeiðangrar, eru væntanlegir hing
að til lands í sumar. Eru það
aðallega leiðangrar fugla og
landfræðinga, eins og fram kem
ur í eftirfarandi skýrslu, sem
Alþýðublaðinu hefur horizt.
Frá írlandi: 12 manna liópur
til fuglaathugana á norðurhluta
landsins. Mun koma í júli. Leið
angursstjóri: Mr. Arnold Bening
ton.
Frá Englandi: 14 manns írá
The London Universi.ty, Geolog
ical Expedition, til áframhald
andi jarðfræðilegra rannsókna á
norðurhluta landsins. Þeir munu
dvelja hér frá 6. júlí lii 19. ág
úst.
Leiðangursstjóri: Mr. Anth
ony J. Iles.
Hinn 20. júlí kemur 7 rr.anna
hópur nemenda frá Chelsea Coll
ege of Science and Technology
til landfræði og grasafræðilegra
1 rannsókna í Bægisárdal, og
dvelst hér á landi til 10 sept.
Leiðangursstjóri: Mr W, A.
Stevens, B. Sc.
Mr. I. Ý. Ashwell, ásamt 2
aðstoðarmönnum frá The Univej;
Framhald á 3. síðu.
25 þúsund
lestir af ísfiski
flutfar út
ÍSLENZKU togararrnír
lönduðu eríendis árið 1960
samtals 25.113 lestum af
ísfiski. Það tók togarana
198 veiðiferðir til að ;afla
þessa magns..
Togararnir lönduðu hins
vegar innanlands árið 1960
alls 90,4 þúsund lestum af
ísfiski, sem fengust í 506
veiðiferðum. !