Alþýðublaðið - 08.10.1961, Blaðsíða 4
VEFNAÐARVARA
SKÓFATNAÐUR
VINNUFATNAÐUR
SMÁVARA
Muniö hina vönduöu
Mary Gold gúmmíhanzka
BJARNi Þ. HALLDÓRSSON
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN
Garðastræti 4 — Reykjavík
Símar: 23877, 33277
GUÐÞJÓNUSTA
í Fríkirkjunni kl. 11. P-rófessor Jó'hann Hannesson
prédikar. Séra Þorsteinn Björnsson fyrir altari.
SAMKOMA
í Dómkirkjunni kl. 20.30. Séra Leif Michelsen,
stúdentaprestur og Ástráður Sigursteindórsson
tala. — Öllum heimill aðgangur.
Kristilegt stúdentaféiag.
Alþýðublaðið
vantar unglinga til að bera blaðið til áskril
enda í þessum hverfum:
Bárugötu,
Miðbænum.
Alþýðublaðið - Sími 14906
ÍSLENDINGAR kvarta yf-
ir.því, að dagblöð landsins
séu skrifuð af pólitísku of-
stæki, og geti lesendur illa
treyst þeim. Hvert blað veg-
samar sinn flokk og hallmæl-
ir hinum. Sú mynd er yfir-
leitt annað hvort hvít eða
svört, þar er ekkert á milli.
Því miður er þessi gagn-
rýni réttmæt. Ofstækið og
útúrsnúningar móta hin póli-
tísku skrif og gera þeim
mönnum erfitt fyrir, sem
kynnu að vilja skrifa öðru
vísi um stjórnmál. Ekki vil
ég með öllu undanskilja
okkur Alþýðublaðsmenn
gagnrýr.inni, en þó langar
mig til að nefna tvö dæmi
til að varpa Ijósi á þessi mál.
í haust skýrði ég frá því í
þessum dálki, að Alþýðu-
flokksmenn hefðu rætt það
hreinskilnislega í miðstjórn
sinni, hvort flokkurinn ætti
að halda áfram stjórnarsam-
starfi eða ekki, og ég sagði
ennfremur, að yfirgnæfandi
meirihluti hefði samþykkt
áframhaldandi aðild að stjórn
og þær ráðstafanir, sem gerð
ar voru í efnahagsmálum.
Þetta er nákvæmlega það,
sem gerðist. Er ekkert óvenju
legt að flokkur ræði vand-
lega pólitíska stöðu sína. Það
gera allir flokkar oft á ári.
Ekki er heldur óeðlilegt, þótt
nokkrir flokksmenn hafi
greitt atkvæði gegn gengis-
lækkuninri. Alþýðuflokkur-
inn er lýðræðisflokkur og
flokksmenn ófeimnir við að
segja skoðun sína á fundum.
Frásagnir sem þessi af
flokksákvörðun um stórmál
þykia í öðrum löndum sjálf-
sagðar. Þarf ekki annað en
minra á fréttir af flokks-
þingi brezkra jafnaðarmanna
í vikunni, sem leið. En hér
á íslandi þaut stjórnarand-
slaðan upp til handa og fóta
í blöðum sínum. Það var
hrópað, að stórkostlegur
klofningur væri í Alþýðu-
flokknum, fjöldi flokksmanna
á móti þessu eða hinu, og svo
framvegis. Þarna kom ofstæk
ið fram í allri sinni dýrð, en
þetta ofstæki hefur einmitt
dregið mjög úr þori blaða-
manna til að segja heiðarleg-
ar og ítarlegar stjórnmála-'
fréttir. sem almenningi!
mundu koma að meira gagnij
en áróður og upphrópanir.
Fyrir nokkrum dögum kom
annað slíkt dæmi fyrir. Saga
þess er í stórum dráttum sem
hér segir:
Stjórnarflokkarnir sömdu
í upphafi um að breyta bæði
sköttum einstaklinga og fyrir
tækja. Mikil breyting var
gerð á tekjuskatti einstakl-
inga og hann afnuminn af
þurftartekjum. En skattar
fyrirtækja voru látnir bíða.
Nefnd vann að undirbúningi
þessara mála, og hafði hún
skilað áliti seint á síðasta
þingi, en ákveðið var þá að
fresta málinu.
Alþýðuflokksmenn viður-
kerna, að skattamál íslenzkra
fyrrtækja séu í mesta ó-
lestri, enda skatttekjur rík-
isins af þeim ótrúlega litlar.
Þess vegna er þörf á breyt-
ingu, annað hvort til að
framfylgja þeim lögum, sem
til eru eða isetja önnur lög
og framkvæmanlegri um
skatta fyrirtækja.
Nú fá menn ekki allt, sem
þeir vilja. Stjórnmál byggj-
ast ekki á því einu, að skrifa
óskabsta yfir umbótamál,
heldur er hinn vandinn meiri,
að ákveða í hvaða röð skuli
framkvæma það, sem gera
þarf. A.tburðir síðasta sumars,
gengislækkun og eftirleikur
hennar hafa gerbreytt á-
standi á efnahagssviði þjóð-
arirnar. Ríkisstjórnin hefur
veitt verzlun'nni m!kil hlunn
.indi með breytingum á verð-
lagsmálum, svo að það verð-
ur að skoðast í rýju ljósi,
hvort nú er rétt að létta af
fyrirtækjum nokkrum tugum
milljóna af sköttum.
Þessi mál voru rædd í full
trúaráði Alþýðuflokksins
fyrir nokkru. Þeir Jón Þor-
steinsson og Sigurður Ingi-
mundarson alþingismenn hafa
setið í skattanefrdinni fyrir
Alþýðuflokkinn, og voru þar
í minnihluta. Gerðu þeir á
fundinum grein fyrir ágrein-
ingsmálum og sérafstöðu
sinni til ýmissa atriða. Síðar
urðu umræður allmiklar, og
reyndust langflestir fundar-
manna draga mjög í efa, að
rétt væri að lækka stórlega
skalta á fyrirtækjum, eins °g
málum væri nú háttað í land
inu. Ríkissjóður mundi varla
mega sjá af tekjum sínum,
og í mörg horn að líta, ef
hægt á að vera að veita úr
honum tugum milljóna.
Mál þetta er efnislega ekki
útrætt milli stjórnarflokk-
anna, og því til umræðu í
flokkunum. Flestir þeir, sem
létu í ljós andstöðu gegn
skattalækkunum þessum nú,
eru eindregnir stuðnings-
menn ríkisstjórnarinnar og
heildaraðgerða hennar. Hér
er aðeins um lýðræðislega
meðferð máls að ræða, en alls
enga byltingu gegn ríkisstjórn
inni.-
Alþýðublaðið skýrði frá
þessum fundi eins og hann
var, umbúðalaust. Árangur-
inn varð eftir venju. Þjóðvilj
inn setti stórfyrirsögn á for-
síðu um ,harðar og vaxandi
illdeilur inran Alþýðuflokks-
ins.“ Kommúnistar reyndui
þannig að gera sér pólitískan
mat úr heiðarlegri frétta-
mernsku Alþýðublaðsins —■
en lugu, rangfærðu og mis-
skildu til bragðbætis.
Eg taldi rétt að segja les-
endum Alþýðublaðsins frá
gangi þessara mála, svo að
þeir sjái í gegnum þá blaða-
mennsku, sem Þjóðviljinn á-
stundar. Það er þýðingarmik-
ið, að menn geti í flokkum
og félögum rætt málin hrein
skilr.islega, án þess að það sé
rangsnúið og notað til að
skaða viðkomandi samtök af
óvönduðum agentum, sem
hvort eð er vilja allt lýðræði
feigt.
TILBOÐ ÓSKAST
í Willy’s Station bifreiðir og nokkrar fólksbifreið-
ir, er verða sýndar í Rauðarárporti þriðjudaginn
10. þ. m. kl. 1—3. — Tilboðin verða opnuð í skrif-
stofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
4 8. okt. 1961 — Alþýðublaðið