Alþýðublaðið - 14.10.1961, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 14.10.1961, Qupperneq 14
laugardagur BLYSAVARÐSTOFAN er opin allan sólarhringinn Læknavörður, fyrh’ vitjanir er á sama stað kl. 8 —18. Skipaútgerð rík'sins: fíekla fer frá Rvk á morgun. vestur um land í hring- terð Esjft er á Austfjörðum á :iorðurleiö. — K^rjólfur fer frá Vestmanna- tyjum kl 21,00 í kvöld til f k. Þyrili er á Breiðafirði f .vjaldbreið er á Norðuriands I num á leið til Akureyrar. llerðubreið er í Rvk. Skipadeild S Í.S.: Hvassafell er í Onega. Arn. arfell fór 12. þ. m. frá Ham- borg áleiðis til Rvk. -Tökul- fell er í Lon.don. Dísarfell er á Stöðvarf’rði, fer þaðan til Seyðisfjarðar Litlaíell er í olíufijtningum í Faxaflóa — Helgafell er í Rvk Hamrafell er í Batuni Henry Horn lest ar á Norðurlandshöfnum. — Dora Horn er á Akureyri. — Polarhav ei væntanlegt til Fáskrúðsfjarðar í dag. MESSUR Kaþólska k rkjan: LágmeSsa kl. 8,30 árd. Hámessa kl Í0 árd. Bústaðasókn: Barnasamkoma 1 Háagerðisskóla kl. 10,30. Séra Gunnar Árnason Fríkirkjan: Messað kl 2 e. h. Séra Þorsteinn Björnsson. Kálfatjörn: Messað k’i 2 e. h. Safnaðarfundur eftir messu Séra Garðar Þorsteinsson. Háte'gsprestakall: Messa í Dómkirkjunnt kh 11. — Barnasamkoma kl. 10,30 í Sjómannaskólanum Séra Björn H. Jónsson tálar við börnin, Séra Jón Þorvarðs- son. Dómkirkjan: Massað kl. 11. Séra Jón Þorvarðsson. — Messað kl. 5 síðn. Séra Jóru^ Auðuns. Frík'rkjan í Hafnarfirði: — Messa kl. 2 e. h. Séra Krist. inn Stefánsson. Laugarne.skirkja: Messaö kl. 2 e. h. Ferming. Séra Lárus Halldórsson Neskirkja: Ferming og altar- isganga kl 2 e. h. Séra Jón Thorarensen. Bókasafn Kópavogs: Útlán þriðjndaga og fimmtu daga í báðum skólunum. — Fyrir börn kl 6--7.20. Fyrir fullorðna kl. 8 30—10. Kókaverðir Loftleiðir h.f.: Laugardaginn 14. októbex er Þorfinnur karlssfni vænt anlegur írá Hamborg, — Kaupmanna- höfn og Gautaborg kl. 22,00 held- ur áleiðis til New York kl. 23,30. Námskeið í beina- og horna- vinnu hefjast fimmtudag- inn 26. okt. og þríðjudaginn 31 okt. Upplýsingar : sím- um 16424 og 36839. Kven- félag Kópavogs. Kvenfélag Neskirkju: Fundur verður þrið.iudaginn 17. okt. kl 8,30 í félagsheim- ilinu. Fundaréfni: Vetrar. starfið. Kaffi. Konur eru beðnar að f.ióVmenna BRÚÐKAUP: — Nýlega voru gefin samau í hjónnbaud af séra Emil Björnssyni, Ingi- björg Jóna Guðlaugsdóttir frá Guðnasíöoum í A.-Land eyjum og Sturla Einarsson húsgagnasntiður, Gnoðavogi 18. Heimili hjórianna er að Vesturbrún 23. Tækn'bókasafn IMSI, Iðn- skólahúsinu Opið alla virka daga kl. 13—19 nema iaugar- daga kl. 13—15. Bæjarbókasafn Reykjavíkur Símj 12303 — Aðalsafn.ð Þingholtsstrætl 29 A: Útlán 10—10 alla virka daga, nema laugardaga 2—7. Sunnudaga 5—7 Lesstoía: 10—10 alla virka daga, nema laugardaga 10—7. Sunnudaga 2—-7. Úti- bú Hólmgarði 34. Opið 5—7 alla virka daga nema laugar daga. Útibú HofsvaliagÖtu 16: Opið 5.30—7.80 a!Ia virka daga. Laugardagur 14. október; 12,55 Óskalög sjúklinga (Bryn dís Sigurjóns- dóttir). — 14,30 Laugardagslög- in. 18,30 Tóm- stundaþáttur barna og ungl- inga (Jón Páls- son}. 20,00 Ein- leikur á hörpu. 20,15 Leikrit: „Víst ertu skáld, Kristófer!“ eftir Björn Erik Höjer, í þýðingu Þor- steins Ö. Stephensens. — Leik stjóri: Helgi Skúlason. 20,55 Úr einu í annað: Guðmuridur Jónsson brpgður hljómpiót- um á fóninn. 21,40 Upplestur: • „Fjúk'- sinásigx eftir Þóri Bergsson (Andrés Björnsson) 2210 Danslóg. -- 24,00 ÍJag- skrárlok. Gott málefni - vinsæll bazar ÞAÐ var brotið blað í sögu íslenzku húsfreyjunnar með setningu laga um orlof henni til handa. Þar með hlaut hún opinbera viðurkenningu fyrir því, að starf hennar væri þjóð- inni í heild nytsamlegt og bæiú að hlynna að hag hennar. En svo sem kunnugt er, hafa þess- ir starfsþegnar þjóðféiagsins orðið mjög afskiptir um að- hlynningu af hálfu hins opin bera, og það látið ráðast, að mestu, á hverju hefur oltið með einkahag hverrar og einnar. — Lögboðna frídaga þekkir þe.ssi fjölmenna stétt einkum af af- spurn og því helzt, að það eru oft annamestu dagar húsfreyj- unnar, þegar aðrir meðlimú’ fjölskyldunnar hafa frí írá störfum og skólum. Þótt mjög sé missk'pt um hag og heimilisástæður húsmæðra munu þó langflestar sitja við sama borð hvað það snertir, að þurfa að gegna störfurn a)la daga ársins og einatt þreytandi störfum við erfið skilyrði, að ekki sé talað um hve vinnutím inn er óhæfilega iangur og mæður ungra barna þskkja það, að um öruggan svefntúna er oft ekki að ræða. Mætti bæta því við, að húsmæður hafa ekki veikindatrí á sama hátt og þeir, sem vinna hjá öðrum, því að sárasjaldan er riokkur til að hlaupa i skarðið. Enda segja læknar að örðugt sé að koma húsmaiðrum tii heilsu eftir skurði, slys o. fl„ þar sem þær geti sjaldnast ver- ið frá störfum eins iangi og nauðsynlegt er til að ná aðiileg um bata. Að þessu athuguðu er orlof húsmæðra ekki aðeinsrétt lætismál, hvað þær sjálfar snertir, heldur má einnig Hta á þetta frá þjóðhagfræðilegu sjónarmiði, því þýðingarmikla starfi, sem húsmóðirin gegnir, ekki aðeins í þágu fjölskyldu sinnar heldur einnig í þágu þjóðarinnar, hlýtur að vera íbetur borgið í höndum þeirra, sem ganga heilar og hressar að verki, og almennt orlof hús- mæðra, ekki aðeins einu sinni á ævinni, heldur árlega, mundí auka á lífsgleði og stafrsþrótt samanber: „í orlofi, í orlofi er öllum holt að dvelja, og koma aftur hress og hýr og hefja starfið e;ns og nýr . . .“ Þó að orlof húsmæðra sé óumdeilanlega sjálfsagt hefur þó kostað áralanga baráttu, eld móð og þrautseigju að hrynda því áleiðis, svo að það næði áheyrn hinna vísu löggjafa vorra og yrði að lögum með þar tilheyrandi fjárhagslegri fyrirgreiðslu, sem er þó hvergi nærri fullnægjandi. Þess vegna hefur komið til kasta kvenn- anna sjálfra að sjá málinu borg ið með margvíslegri fyrir- greiðslu, sjálfboðavinnu og fjár framlögum og má í þessu sam- bandi nefna orlofssjóð. er stofn aður var á fundi í Bandalagi reykvískra kvenna á síðast- liðnu hausti. Þær, sem vilja styrkja þennan sjóð með gjöf- um og áheitum geta snúið sér til orlofsnefndar Reykjavíkur- ■bæjar: frú Herdísar Ásgeirsdótt ur, Hávallagötu 9, frá Hallfrið. ar Jónásdóttur Brekkustíg 40B og frú Helgu Guðmundsdótt- ur Ásgarði 111. Fyrsta orlofsdvöl reykvískra kvenna, lögum samkvæmt, var haldinn á vegum fyrrgreindrar nefndar að Laugarvatni dagana 28. júní til 7. júlí í sumar. — Nálægt 50 konum tóku þátt í dvölinni. Foringi hópsins var frú Herdís Ásgeirsdóttir, sem, svo sem kunnugt er, hefur bar- izt ósleitilega fyrir framgangi orlofsmálsins. Þessi fyrsta or- lofsdvöl tókst frábærlega vel og varð öllum konunum til andlegrar og líkamlegrar end- urnæringar. Þær voru sam- stilltar í því að njóta orlofs- daga sinna sem bezt og héldu merki gleðinnar hátt á loft. — Mikið var ort og sungið á Laugarvatni þessa björtu vor- daga. „Við syngjum okkar orlofsljóð í orlofsskapi orlofsfljóð . . Aðbúnaður af hálfu hófel- stjóra og starfsliðs var með miklum ágætum og veizlur góðar hjá frú Hvannberg í Út. ey og í Garði hjá Bjarna Bjarnasyni fyrrverandi skóla- stjóra og frú hans. Undir forystu frú Herdísar Ásgeirsdóttur sameinuðust þess ar mörgu og ólíku konur í einn samstilltan systrahóp, sem ekkj aðeins nutu lífsins í ríH- um mæli heldur vildu af syst. urlegu kærleiksþeli fyrirbúa öðrum konum jafn ánægjulega orlofsdvöl á næsta sumri og lögðu til þess allverulega fjár upphæð í orlofssjóð. En einnig komu nokkrar konur fram með þá hugmynd, að halda bazar 1 haust og sýna þannig í verki þakklæti sitt fyrir orlofsdvöl- ina og hrifningu sína á orlofs. málinu, en fé því, sem inn kæmi fyrir bazarinn skyldi var ið til að styrkja konur til sum- arleyfis næsta sumar á vegum orlofsnefndar. En svo sem áður er sagt eru fjárframlög hins opinbera, (ríkis, bæja- og hreppsfélaga) hvergi nærri ful) nægjandi. í bazarnefnd voru kosnar eftirtaldar konur; frú Steinunn Finnbogadóttir Ljós- heimum 4; frú Sigurlaug Guð. mundsdóttir, Skólavörðustíg 12 og frú Anna Rist, Kvisthaga 17. Bazarinn verður haldinn í Breiðfirðingabúð, uppi, á sunnu daginn 15. þ. m. Hefst salan kl. 2. Vafalaust verður hægt að gera þar góð kaup. Konur, styðjið orlofsmálið, fjölmenn- um í Breiðfirðingabúð á sunnu daginn. Þórunn Elfa Magnúsdóttir. Sinfóníutón- leikar FYRSTU tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands á starfs- árinu voru haldnir í Háskóla- bíói í fyrrakvöld kl. H og lauk því svo seir.t, að ekki var unnt að birla umsögn um þá í blaðinu í gær. Þetta voru fyrstu tónleikarn r, sem hinn rýi stjórnandi, Tékkinn Jind- r ch Rohan, stjórnaði og þótti mér honum takast vel, þó að ég sé engan veginn samþykk ur verkefnavalinu, eins og ég hef getið um áður. Einle karinn í fiðlukonsert Mendelsohns var Bandaríkja maðurirn Michael Rabin. Má það leljast mik ð þrekvirki hve vel tókst flutningur þess verks. Rabin kom til landsins eft r að hljómleikarnir voru byrjaðir og kom því svo að segja beint úr flugvélinni inn á hljómle kapallinn. Hann sp’lar, eins og sá, sem valdið hefur, með breiðum og falleg um tón og geysilegri lipurð í firgrum. Það er til merkis um músíkahtel hans og hljóm- sveitarstjórans, að þrátt fyrir enga æf ngu saman var flutn- ingurinr. svo til alveg hnökra laus. G. G. K. F. U. M. Á morgun: Kl. 10.30 Sunnu- dagaskóli. Kl. 1.30 Drengja- deildir á Amtmannsstíg og í Langagerði. Kl. 8.30 Kristni- hoðssambandið hefur kveðju samkomu fyrir Ingunni Gísla dóttur hjúkrunarkonu, sem er á förum til starfs síns í Konsó. Tekið við gjöfum til krfctniboðs. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð við andiát og jarðarför móður okksr, KRISTÍNAR EIRÍKSDÓTTUR, Bergstaðastræti 7. Emilía Þorgeirsdóttir. Magnús Þorgeirsson. Þórður Magnússon. 14 14. okt. 1961 — Alþýðublað/ð

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.