Alþýðublaðið - 19.10.1961, Side 2
£c®3sœ[K£rta>
j -fílístjórar: Gisu J. Ástþórsson (áb.) og BeneJlkt Gröndal. — Fulltrúi rit-
«t;órnar: [ndriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin GuSmundsson. —
<5ímar: 14 900 — ' ■ 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aösetur: Alþýðu-
túsiö. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjald
tr. 55.0C i mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. —
Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
Tryggíngar og mjólk
] ÍÞAÐ KOM FRAM í fyrstu umræðu um fjárlög
in, að rúmlega þriðjungur þeirrar upphæðar. sem
i ríkið tekur af þjóðinni í tölium og sköttum, renn
1 ur svo að segja beint til landsfólksins aftur. Þetta
* -eru tveir stærstu liðirnir, tryggingar og niður
l greiðslur, samtals um 600 milljónir króna.
\ Það ber vott urn félagslegan þroska íslendinga,
! að ríkisvaldið skuli gera svo stórfelldar ráðstafan
í ir til að sjá fyrir þeim, sem af eirihverjum ástæð
: um eiga erfitt í lífsbaráttunni, og beinlínis til að
1 jafna tekjum milli borgaranna. Þessi tilflutningur
á fjármunum er ekki aðeins mikið réttlætismál,
3 íaeldur hefur hann stórfellda efnahagslega þýð-
| íngu.
Tökum til dæmis þýðingu tryggingakerfisins
i f.yrir íslenzkan landbúnað og stórar greinar íslenzks
S iðnaðar. Gera má ráð fyrir, að bjargálna fólk, sem
" mest af tekjum ríkisins er frá komið, veiti sér eft
■ ir vild og þörfurp mjólk, kjöt, iðnaðarvörur ýmsar
? og slíkar nauðsynjar. Það fé sem þetta fólk hefur
: íram yfir nauðþurftir, mundi það nota til að veita
! íiér meira af óþarfari gæðum lífsins. Nú eru pen
! íngarnir teknir í sköttum og tollum. og fluttir til
5 jpeirra, sem hafa ónógar tekjur til daglegs lífs.
í 'Þannig eykst kaupmáttur alþýðunnar stórkost
■ lega, fleiri fjölskyldur geta véitt sér nóg af mjólk,
\ kjöti og öðrum nauðsynjum, og sala á þessum vör
’ um fer vaxandi. Þannig er þýðing tryggingakerfis
• ins mikil fyrir þær voldugu starfsgreina, sem fram
- leiða matvæli og fatnað, en þessir aðilar mundu
5 missa milljónaviðskipti, ef kerfið væri ekki til.
Réttlætið eitt er næg skýring á hinum miklu
■ tryggingum í íslenzka ríkinu. Hinar efnahagslegu
■ afleiðingar þess eru veigamikið aukaatriði, sem
bændur, smáframleiðendur, kaupmenn og kaupfé
\ lög ættu sízt af öllu að láta fram hjá sér fara.
Hvar eru úrræðin?
; ÞAÐ VAR athyglisvert við fjárlagaumræðuna,
að stjórnarandstæðingar fluttu neikvæðar ræður
og höfðu lítið af gagnlegum tillögum fram að
færa. Aðalboðskapur þeirra var raunverulega sá,
‘ að stjórnarsinnar væru þau illmenni að reka hefnd
’ arpólitík gagnvart alþýðunni.
Sú var tíðin, að Eysteinn Jónsson húðstrýkti
- stj órnarandstöðu ár eftir ár einmitt fyrir þetta. Ef
' ég stjórna fjármálum ríkisins ekki nógu vel, þá
segið þjóðinni hvernig það verður gert betur, var
ííðum inntak í ræðum hans. En nú er hann stjórn
arandstæðingur og verður sannarlega ekki sagt,
að hann hafi haft mikið af úrræðum fram að
færa. Hann er með öðrum orðum sízt betri en
‘ þeir menn, sem hann sjálfur hefur fordæmt árum
sarsan.
Lögfræði fyfir almenning
HLUTAFÉLÖGIN
AÐALSÉRKENNI hluta-
félaga er, á hvern veg ábyrgð
einstakra félagsmanna á
skuldbindingum félagsins er
farið. En ‘ábyrgð þessi nær að
eins til hlutafjárframlag-
anna.
Hlulafélögin eiga sér ekki
mjög langa sögu að baki, því
að upptök sín eiga þau í hin-
um miklu verzlunarfélögum,
sem víða voru stofnuð í Ev-
rópu á IV. öld til að reka
viðskipti við hin nýfundnu
lönd í öðrum heimsálfum.
Hlutafélagsformið til at-
vinnureksturs hefur bæði
kosti og galla. Kostirnir eru
fyrst og fremst þeir, að með
þessum hætti er unnt að afla
mikils fjár án þess að áhætta
þeirra, sem leggja það fram,
sé mikil, og þannig er kleift
að ráðast í fjárfrekar og á-
hættusamar framkváemdir,
sem ella hefðu verið fjárhags-
legar örðugar eða jafnvel ó-
viðráðanlegar.
Ókostirnir eru hins vegar
þeir, að þar gætir ábyrgðar-
tilfinningar atvinnurekand-
ans mjög lítils og fjársterk
hlutafélög geta orðið áhrifa-
meiri en æskilegt er og leilt
til myndunar auðhringa, sem
reynast þjóðfélaginu skað-
legir. Reynslan hefur og
sýnt, að hætta er á ýmis kon
ar misferli í sambandi við fé-
lög þessi, og hefur því löggjöf
þjóðanna látið málefni þessi
til sín taka í þeim tilgangi að
halda starfsemi félaganna í
æskilegum farvegi.
Hafa því fleslar þjóðir, þar
á meðal íslendingar, sett ít-
arlega löggjöf um hlutafélög-
in, þar sem lögskipaðar eru
ákveðnar reglur. Fyrirmæli
þessi eru sett til varrar skuld
heimtumönnum félagsins,
svo og almenningi og hlut-
höfunum sjálfum.
Þar sem ábyrgð hluthaf-
anna nær aðeins til hlutafjár-
ins, þarf að tryggja skuld-
heimtumennina gegn því, að
hluthafarnir sölsi ekki undir
sig. hlulaf»ð. Fyrirbyggja
þarf, að almenningur sé
ginntur lil að leggja fé sitt
í- einskis nýt hlutabréf.
Tryggja þarf og, að meirihlut
inn í hlutafélagi misnoti ekki
vald silt sér til hagnaðar, en
minnihlutanum lil tjóns.
Þegar stofna á hlutafélag
samkvæmt íslenzkum lögum,
þarf fyrsl og fremst samning
þar að lúlandi, hinn svokall-
aða stofnsamning.
Lögin fyrirskipa allmörg
atriði, sem skylt er að greina
í stofnsamningi. Má þar nefna
heiti félagsins og lilgang. —
Upphæð hlutafjár og skipt-
ingu þess í hluti. Hvort nokkr
um hlutum í félaginu skuli
fylgja sérréltindi eða hvort
ákveðnum flokki eða stétt
manna sé áskilinn forgangs-
réttur til að skrifa sig fyrir
hlutum. Hvort hluthafar
skuli sæta innlausn á hlutum
sínum, ef til kemur. Hvort
skorður séu reistar við heim-
ild hluthafa til framsals eða
veðsetningar hlutabréfa.
Hvort hlutabréfin verði gef-
in út á nöfn eða til handhafa.
Hvort stofnendur áskilji sér
stöðu eða fríðindi hjá félag-
inu..
Allir þe:r, sem stofnsamn-
inginn undirrita, teljast
slofnendur félagsins Þeir
skulu vera a.m.k. fimm, lög-
ráðir, fjár síns ráðandi og
hafa óflekkað mannorð. Verði
hluthafar einhvern tíma síð-
ar færri en 5, skal slíta fé-
laginu, ef ekki verður úr
þessu bætt inn.an þriggja
mánaða.
Ekki nægir stofnsamning-
urinn einn til stofnunar fé-
lagsins. Stofnendurnir skulu
næst boða iil stofnfundar. Ef
þeir hafa ekki þegar ákveðið
hverjum verði gefinn kostur
á að gerast hluthafar, geta
þeir með opinberri auglýs-
ingu (boðsbréfi) gefið almenn
ingi kost á að skrifa sig fjrrir
hlutum. í þeirri auglýsingu
verður að vera allnákvæmt
ágrip af stofnsamningi.
Á stofnfundi þarf formlega
að samþykkja félagsstofn-
unina. Hann þarf og að setja
félaginu lög (samþykktir). í
samþykktum þessum skulu
m a. vera ákvæði um reíkn-
ingsfærslu og skiptingu arðs,
um stjórn félagsins og end-
urskoðendur, um tilkynning-
ar lil félagsmanna, hluthafa-
fundi, atkvæðisrélt hluthafa
og fundarsköp.
Á stofnfundi skal kjósa
stjórn fyrir félagið, nema
annað sé ákveðið. Þar þarf
einnig að liggja fyrir loforð
um framlög þess hlutafjár,
sem lægst var tiltekið í stofn
samningi eða boðsbréfi, og
a.m.k. fjórðungur þess hluta
fjárloforða verða greiddur.
Hlutafélag má ekki laka til
starfa fyrr en það hefur verið
skrásett.
í hverju lögsagnarumdæmi
skal halda hlutfélagaskrá. í
tilkynningu tiil hlutafélaga-
skrár skulu greind 16 atriði
varðandi félagið, og auk þess
þarf að fylgja tilkynning-
unni afrit af stofnsamningi
og samþykktum og öðrum
skjölum, ef þurfa þykir.
Verði síðar breyting á ein
hverjum af þessum atriðum,
er skylt að tilkynna breyting
una innan mánaðar frá því,
að hún átti sér stað. Skrásetn,
ingarvaldsmaður (sýslumenn
og bæjarfógetar, en í Reykja-
vík borgarfógeti) gera almenn
ingi þessar tilkynningar kunn
ar með auglýsingum í Lög-
birtingarblaðinu.
Hlulaféð er hinn fasti fjár
stofn félagsins, og með því
ábyrgjast hluthafarnir skuld-
ir þess. Það skiptir því miklu
máli, að fé þetta eða sann-
virði þess sé raunverulega til
við stofnun félagsins. Skuld-
heimtumennina varðar það
og miklu, að hlutaféð sé ekki
rýrt og ennfremur, að hlut-
höfum verði ekki endurgreitt
það, fyrr en öllum fjárskuld.
bindingum félagsins sé að
fullu lokið.
í efnahagsreikningi hluta-1
félaga er hlutafé talið skulda
megin. Það er að vísu ekki
skuld félagsins, en það á á-
vallt að vera óskert.
Yfirleitt er bannað að út-
hluta arði til hluthafa, fyrr
en ákveðinn hluti af tekju-
afgangi hefur verið lagður
til hliðar í varasjóð og af-
skriftir af eignum félagsina
hafa farið fr.am, allt eftir nán
ari fyrirmælum í félagasam-
þykktunum. Einnig er bann-
að að úlhluta arði, fyrr em.
búið er að jafna reiknings-
halla, sem kann að ver.a fyrir
hendi frá fyrra ári. Frá þessu
atriði er undantekning, ef fé-
lagið á sérstakan sjóð, sem
ætlað er það hlutverk að mæta
slíku lapi, eða sjóð, sem
tryggja á arðgreiðslu, þegar
illa gengur.
Þegar hlutabréf eru til
sölu af öðrum ástæðum, er
oftast eldri hluthöfum áskil-
inn forgangsréttur til slíkra
hlutabréfakaupa. Slundum á
félagið sjálft rétt til að kaupa
hlulabréf í sjálfu sér, en þð
aldrei meira en 10 prc. af
hlulafénu nema með sér-
stöku ráðherraleyfi.
Hlutafélög eru persónur
að lögum, sem geta átt rétt-
indi og skyldur En þar sem
hér er aðeins um huggerðar
persónur að ræða, verða ein-
hverjir mern að koma fram
og starfa fyrir félagið. í þess
um efnum nefna lögin hlut-
hafafundi, félagsstjórn, fram
kvæmdastjóra og endurskoð-
endur.
Hluthafafur,durinn hefur
æðsta vald í málefnum félags
ins, Þar ræður úrslitum afl
atkvæða, nema annað sé á-
Framliald á 12. síðu.
£ 19- okt. 1961 — Alþýðublaðið