Alþýðublaðið - 16.03.1962, Page 15

Alþýðublaðið - 16.03.1962, Page 15
„Hefði hann haft tækifæri til að fremja glæpinn?” „Það er það erfiðasta. Eftir því sem við komumst næst hvarf hún milli hálfeitt og hálffjögur. Ég veit ekki hvort Ben hefur fjarvistarsönnun fyrir þann tíma oé ég hef ekki heldur leyst vándamálið, hvernig hann hefur komist þangað. Carolyn var með bíiinn. Það getur að vísu verið að Ben hafi leigt einhvern til'að gdra þetta fyrir sig. Ég get ekki betur séð en EINHVER hafi sótt liana og hún hafi flýtt sér mikið, hún fór ekki einu sinni í kápu. Ef hún var að hlaupast á brott með einhverjum hefði hún látið niður í töskurnar. Hún hafði all- an daginn fyrir sér”. „Gott og vel”, sagði Paeker. „Taktu Drumm með þér og at- hugaðu að hverju þú kemst. Og við skulum hafa hljótt um þetta. Ég geri ráð fyrir að þú kjósir það helzt”. „Þeim mun kyrrlátara sem allt er þeim mun betra”, sagði Ernie. „Þakka þér fyrir”, og hann fór út. nann stóð nægilega leiígi við til að senda bílnúmerið á bíln- uni sem hafði heimsótt Ben For- bes deginum áður í Fíladelfíu. Svo sótti hann Bill Drum og þeir óku til Blackstone. Á leiðinni sagði Ernie Bill það sem hann vissi um málið. Hann þurfti ekki að útskýra málið gaumgæfilega fyrir Bill, sem var mun betur gef inn en hann leit út fyrir að vera og sem þekkti Ben Forbes líka lítillega. Þetta var góður en erfiður dagur. Ernie talaði við Lorene Guth- rie og Mary Catherine Brewer. Lorene gaf honum upp nafn og heimilisfang Vernon Kratich án þess að hann þyrfti að leita aftur til bíladeildarinnar. Hann talaði við Kratieh. Hann hringdi til foreldra Carolyn í Pittsburg. Svo heimsótti hann Grace Vi- telli. Hún tók honurn kuldalega og kinkaði kolli til Bill Drumm þeg- ar hánn kynnti þau. „Ég geri ráð fyrir að þið séuð hér í lögreglu- erindagjörðum”. sagði liún. Hún hafði verið að hreinsa þegar þeir komu. Hún var i galiabuxum og sléttbotna skóm og gamalli peysu og hár henn- ar var ógreitt. Hún líktist ekki þeirri Grace Vitelli sem Ernie þekkti og hafði aldrei séð nema vel til fara. Hún virtist eldri en hann hafði álitið, ef til vill vegna þess að hún var ómáluð og sokkabandabeltislaus. Hann sagði: „Við getur lit- ið þannig á málið frú Vitelli að Ben sé í vanda staddur og mig langi til að hjálpa honum ef ég get og til þess þarfnist ég yðar aðstoðar”. Hún settist á_ sófann, virðu- leg pg á yerði. Ernie spurði hvort þeir Bill mættu líka setj ast niður og hún sagði gjörið þið svo vel. Hún leit í andlit Ernies. „Hvað viljið þér að/ég geri?” spurði húr.. „Munið þér hvað skeði á þriðjudaginn var? Allt sem skeði ekki bara um hvarf Car- olyn“. „Það ætla' ég að vona. Það er vika síðan á morgun“. „Vilduð þér segia mér allt sem skcði? Frá byrjun. Hvenær komuð þér á skrifstofuna?" „Á sama. tíma og venjulega. Klukkán hálf níu. Ég opnaði skrifsofuna, leit yfir lista yf- ir þá sem væntanlegir voru og náði í fyrsta bréfafælið sem ég vissi að herra Forbes myndi þarfna$t“. „Haldið þér áfram“. „Herra Foi'bes kom á sama tíma og venjulega. Klukkuna vantaði tíu minútur í níu. Kluktt an níu kom herra Morgan. Hann var hjá hei’ra Fobes til hálf ell- efu. Þá kom frú Babyan. Hún stóð ekki lengi við. Ég hugsa að hún hafi farið um ellefuleyt- ið. Svo vann herra Forbes við bréfaskriftir fram að mat“. „Hvenær er matur?“ „Kortér yfir tólf Ilaldið þér áfram”. „Herra Forbes átti að borða með herra Frank en herra Frank gat ekki komið. Svo við fórum yfir á hótel Woodley og borðuðum þar. Við komum aft ur' á skrifstofuna klukkan kort ér yfir eitt“. Og þannig gekk það. Allt benti til þess að Grace Vitelli hefði séð Ben allan daginn frá tíu mínútur fyrir níu um morg uninn og til tuftugu mínútur gengin 1 sex um kvöldið. Það mætti lialda að hann liefði lagt sig allan fram til að vera nálægt henni. „Verið ekki reið við mig frú Vitelli þó ég spvrji yður að þessu. Ég er aðein.s að reyna að komast að sannleikanum svo ég hafi eitthvað að vinna. Hald ið þér að Ben og Carolyn hafi rifist?" „Nei“. „Urðuð þér vör við eitthvað óvenjulogt í framkomu Bens eða Carolyn? Hugsið yður vel um.Það getur verið eitthvað smá vægilegt". y „Ekki í framkorriu herra For bes. Að vísu sá ég Carolyn For bes sjaldnar en ég hef ekki heldur orðið vör við neitt ó- venjulegt þar“. „Og þér hnfið r«''i v',dur —ð ið1 vör við neitt ’"”li Lorene Forbpt; SPm ekki gæ*i talist venjulégt milli lögfr?-''- ings og viðskiptavinar hans?“ „Auðvit.að ekki. Ég veit ekki hvað hún hefur sagt, en —", „Hún sagði einmitt þetta frú Vitelli. Hvað um herra Gut- hrie?“ „Herra Guthrie?“ hún starði á hann“. Hvað eigið þér við?“ „Kom hann oft ,á skrifstof- una?“. „Einu sinni. Ég geri ráð fyr-» ir að það hafi verið fljótlega eftir að hann komst að því að kona hans hafði leitað til okk ar. Hann virtist álíta að hann gæti kúgað herra Forbes til að hætta við skilnaðinn en herra Forbes sagði honum aðeins að hann yrði að mæta fyrir dómstól unum ef liann áliti að hann gæti barist á móti skilnaðinum og hann varaði herra Guthrie við að gera nokkuð það sem varðaði við lög til að fresta málinu. Hrylliiegur maður. Þið liefðuð átt að sjá hvernig vesl- ings barnið leit út þegar hún kom til okkar“. „Neitaði Guthrie að gefa eft ir skilnað?“ „Nei, hann gat það ekki“. „Talaði Ben frekar við hann?“ „Ekki það ég veit“. „Eru einhverjar lögfræðileg ar ástæður fyrir því að Ben þurfi að finna herra Guthrie núna?“ „Það verðið þér að spyrja herra Forbes um”, svaraði hún. „En þér vitið ekki um neinn?“ „Nei.“ . „Þetta er allt og sumt frú Vit elli. Þér hafið verið mjög hjálp leg. Ernie reis á fætur. „Ég bið yður um að minnast ekki á þetta við Ben“. „Sem lögreglumaður?" „Sem lögreglumaður". „Gott og vel“. Þeir gengu til dyra og hún opnaði fyrir þeim. Um leið og þeir gengu út, sagði hún: „Ég verð að segja það herra MacGrath að mér findist rétt- ara af yður að leita að frú For bes en að svíkja vin yðar. Hún lokaði dyrunum áður en honum tókst að svara. Ernie andvarpaði. 'Hann settist inn í bílinn við hlið Bill og þeir óku af stað. „Hvért förum við nú?“ spurði Bill. „Við töíum við fasteignasal- ana“. „Hvað heldur þú?“ „Ég veit svei mér ekki hvað ég á að halda“, sagði Ernie. „Við vitum að minnsta kosti að Forbes hefur fjarvitsarsönn- un þegar kona hans hvarf". ,,JA“, sagði Ernie. „Þess vegna er ég enn forvitnari að vita því honum liggur svona mikið á að finna Guthrie". „Ef honum þá liggur mikið á. að finna Guthrie“. „Ef honum þá liggur mikið á. Lorene". Bill hristi höfuðið or’ Kratich virðist halda að hanri noti það sem átyllu til að ónáða brosti. „Ég hefði ekkert á mótl því að fá átyllu til að ónáða hana sjálfur“. Ernie urraði: „Tóm“. „Við hvað áttu með tóm?“ „Það er ekkert varið í hana. Ekkert fyrir innan. Enginn heili“. „Þegar hún lítur svona út að utan til hvers ætti hún þá að þurfa eitthvað að innan?“ Hann hikaði. Svo bætti hann við“. „Það gæti verið að ungfrú Brewer hefði á réttu að standa. Hún heldur að Forbes sé geggj aður“. „Jamm“. sagði Ernie. „Mér datt það líka í hug“. Þeir töluðu við þrjá fasteigna miðlarana, sem Ben hafði fariö til. Þeir fóru ekki til fleiri því þeir fengu sömu svörin hjá þeim öllum. Þeir komu á lög- reglustöðina seint um daginn og athuguðu hvort eitthvað fyrir- findist í skjölum lögreglunnar um Guthrie. Svo var ekki. Þeir gáfu Packer skýrslu. „Svo þér finnst sú jauðhræða ekki efnileg ástæða lengur?“ spurði Packer Ernie. „Hún veit ekkert um þetta. En þar með vitum við ekki hvaða tilfinningar Ben ber í brjósti til hennar. Það gæti ver ið að hann ætlaði sér að nota Gúthrie sem pressu á hann. Hún er dauðhrædd við manninn sinn fyrrvérandi". „Ómerkileg ástæða“, sagði Packer. „Já“, sagði Ernie. „En ég get talið upp fullt af ástæðum fyrjr morði sem voru lilægilegar, fórnarlömbin gátu bara ekki hlegið lengur". „Við höfum ekkert fórnar- lamb í þessu máli“. „Við höfum ekki Carolyn heldur“. Ernie gekk fram og aftur um mjótt gólfið. „Jafnvel framkoma Bent er brjálæðisleg. Frú Guthrie, ung- frú Brewer t g Kratich eru öll sammála um það. Ef hann þarf að tala við þennan Guthrie í lög fræðilegum erindagjörðum því segir hann það þá ekki? Og hvers vegna — og það er mest áríðandi — sagði hann öllu þessu fólki að Carolyn væri hjá ' íoreldrum sínum?“ Hann nam staðar og leit beint framan í Packer. . „Frá því á þriðjudagskvöld að hann hringdi til mín út af : hvarfi C.arolyn og fram á föstu' dagskvöld hagaði hann sér eins; og við var að búast af manni t hans aðstöðu. En hann hafði' breytzt þegar ég heimsótti hann á föstudagskvöldið. Hann laug að mér þá og hann Jiefur logið i( að mér síðan og hann hagar,- ' sér eins og vitfirringur. Það kom’ eitthvað fyrir hann á föstudags kvöldið. Ég veit ekki hvað það var en þáð er rökrétt að álykta að það liafi verið í sambandi við Carolyn og það sem hefur komið fyrir hana, og sé ein- , hver andskotinn að henni því b sagði hann mér það ekki?“ 1 Paeker sagði: „Hvað heldur ' þú að það sé?“ „Ég held“, sagði Ernie dræmt“. að verið geti að hann . hafi ráðið Guthris að losa sig í við hana og að Guthrie heimti nú peninga af honum og þesss vegna vilji Ben finna hann en viti ekki hvar hann sé“. „Ég bjóst við að þú héldir eitt * hvað því um líkt“, sagði Pack er. „Állt í lagi. Sækjið þið hann. Ý Við skulum vita hvað hann seg . ir“. Ernie kinkaði kolli til Bill \ Drumm og þeir fóru út og óku tókum myndina um síðastliðna hclgi. Eigandinn snarhcmlaði, þegar krakkaangi hljóp í veg fyrir hann. En kollega hans, sem var „á hælunum“ á hon- um, var ekki eins viðbragðs fljótur, enda víst nýbúinn að læra akstur. Árangur: — Illá BARNIÐ slapp ómeitt, en skemmdur bíll alsaklauss cnmmrlniro nHri Kíllinn V i A mannc ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. marz 1962 |,5 Síst átti hann jbetta skilið!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.