Alþýðublaðið - 05.04.1962, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 05.04.1962, Blaðsíða 1
awwwiiMtwMMMMWMWiMwwwwwmvwwvwwtwm Vio litum inn á sýnikennslu í snyrtingu í gær, og segjum ► ögn frá þessu fyrirbæri á baksiðunni í dag. HWWWiMtWmWViWMWMWWW HWWVWMWMWW 43. árg. — Fimmtudagur 5. apríl 1962 — 80. tbl. 14 PUNDUM Á FYR- ANDANN EF UTLENDINGUR kaupir far- miða í London með flugvél til Reykjavíkur, og dvelur hér skemur en 30 dagá, en fer þá til London aftur, þá greiðir hann 42 pund fyr- ir farseðilinn. Ef slikur farseðill er keyptur í Reykjavík, og kaup- andinn fer til London og siðan aft- ur til Reykjavíkur, þarf hann að greiða sem svarar 56 pundum. ,Eins og sjá má, munar þarna um 14 pundum, eða rúmlega 1600 krónum. Þessi odýru fargjöld frá Lpndon til Reykjavíkur, taka gildi 1.. júní n. k. og gilda til 1. októ- ber. Eru það bæði Loftleiðir og Flugfélag íslands, sem bjóða þau. Eru þau háð því sltilyrði, að far- þeginn, sem kaupir miðann í Lond- on, og greiðir hann með pundum, dvelji ekki lengur hér á landi en 30 daga, og fari þá aftur til Lond- on. Aftur á móti getur farþegi ekki keypt farseðil hér fyrir þetta verð, þó hann dvelji skemur í London en 30 daga og komi hingað aftur. Gildir þessi lækkun aðeins ef far- scðillinn er keyptur í Englandi og ferðin hefjist þar og ljúki. Það mun ugglaust mörgum þykja þetta misræmi nokkuð undarlegt. Alþýðublaðið ræddi í gær við blaða fulltrúa flugfélaganna og fékk eft- irfaraudi upplýsingar: Sveinn Sæmundsson hjá Flugfé- laginu, sagði, að ef hægt væri að lieimfæra það við IATA (Alþjóða- samband flugfélaga), að sérstakur ferðamannastraumur sé til lands- ins, þá væri hægt að fá fargjöldin Iækkuð á þeim tíma, sem erlendir ferðamenn nota aðallega til ferða- laga hingað. Slík fargj. eru í giMi víða um heim, og m. a. fyrir Is- lendinga á leiðunum til Barcelona, Róm, Nizza og Mallorka. Þá sagði Sveinn, að þessi fargjaldalækkun væri til þess að auka hingað ferða- mannastrauminn, þó mörgum ís- lendingum. þætti þetta kannski ranglæti. Sigurður Magnússon hjá Loft- leiðum, sagði að skýringin á þessu misræmi væri sú, að með þessu vildu flugfélögin auka liingað ferða mannastrauminn. Þess skal getiðað Loftleiðir eru ekki í IATA og Frumhald á 2. síðu. WWWWWVWWMWWWWWWWWWWWWWW NÆSTA BÆJAR ÞA9 er hægt a3 fá spánýjan Volkswagen, sem réttu verði kostar 123,000 krónur, fyrir aðeins eitt hundrað irrónur, eða sem svarar andvirði svo sem fimm pakka af sígarettum! Þetta tilboð stendur fram á laugardag, en þá um kvöldið verður dregið í HAB, stærsta blaða happdrætti landsins, sem auk stórra vinninga sker sig úr öðrum happdrættum með því að hafa aðeins 5,000 númer á boðstólum. Endur- nýjun er í.fullum gangi. - LÁTIÐ EKKI HAB ÚR HENDl SLEPPAí kvenfólk Pravda ★ MOSKVA: Dagblaðið „Moskva Pravda" hefur ráðist með miklu offorsi á þá menn í Moskvu, sem bera ábyrgð á því, að snjó sé rutt af götum borgarinnar. Blaðið tel- ur vinnubrögð þeirra úrelt og á- telur þá sérstaklega fyrir að útvega konunum, sem annast snjómokst- urinn, ekki betri verkfæri en réttar og sléttar skóflur. Loks segir blaðið, að þótt naum- ast verði þverfótað fyrir verkfræð- ingum í Moskvu, hafi ekki einum einasta þeirra dottið í hug að búa til almennilega snjómokstursvél. ★ ORAN: Fólk í Oran flýr borgina síðan herinn tók flug völl borgarinnar í sína vörzlu — í Algeirsborg var hverfl Algeirsborgara lokað á mið- vikudag eftir átök Serkja og Evrópumanna. 17 særðust f átökunum. Áður hefur fólk ekki þorað að fara frá Oran af ótta við OAS. Á RIKISSTJORNIN hefur ákveðið að auka frjálsa innflutninginn enn. Hefur ýmsum nýjum vörutegund- um nú verið bætt á frílistann. Er 65% af innflutningnum nú frjáls frá öllum löndum. 25% ér flutt nn frá vöruskiptalöndum og má flytja inn þaðan án nokkurra leyfa eða takmarkana. Aðeins 10% inn- flutningsins er enn háð leyfisveit- ingum og kemur sá innflutningur yfirleitt frá Vestur-Evrópu og Bandaríltjunum. Síðasta Lögbirtingarblað birti auglýsingu frá við- skiptamálaráðuneytinu um aukn- ingu á frílistanum. í tilefni af því átti Alþýðublaðið stutt viðtal við Gylfa Þ. Gíslason viðskiptamála- ráðherra í gær. Ráðherrann sagði, að það liefði verið einn megintilgangur hinnar nýju stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, að skapa skilyrði ! til pcss au iimriúíningur €i'lcnuiáí' vöru gæti orðið frjálsari en hann hefur verið undanfarna áratugi og vörur þær, sem neytendur ættu kost á að kaupa gætu orðið fjöl- j breyttari og betri. Gylfi sagði, að ríkisstjórnin hefði stigið stærsta skrefið í áttina til aukins frjálsræð is í innflutningsverzluninni þegar sumarið 1960, en síðan hefði nokkr um sinnum verið bætt vörum á frílistann. Mundi því verða lialdið áfram eftir því sein aðstæður leyfðu. Viðskiptamálaráðherra sagði, að meðal vörutcgunda er nú kæmu á frílistann væru eldhúsvaskar, skálar til vaskagerðar, króm-stál- plötur, tígulgólf (parketstafir og plötur) einnig úr öðru en korki og skrautvarningur og vörur úr skinni, leðri, gulli, silfri og platínu og ó- dýrum málmum. Þá sagði ráöherrann, að ákveðið hefði verið að nuka ferðagjaldeyri i/aiui, scni hver einstaklingur gæti fengið upp í 12.000 krónur og jafn framt hefði verið ákveðið að rýmka yfirfærslu til náinsmanna. Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála- ráðlierra sagði að lokum, að frjáls- Framhald á 2. síðu 81aðið hefur hlerað Að mikið sé um að vera hjá Sjálfstæðismönnum við „próf- kosningu" um sæti á bæjar- stjórnarlistaiium. Er valið um 60—80 manns, sem síaðir voru úr í fyrri umferð, og féllu þar gamlir bæjarfulltrúar eins og Guðmundur H. Guðmundsson, Gróa Pétursdóttir, Björgvin Frederiksen og fleiri.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.