Alþýðublaðið - 05.04.1962, Qupperneq 8
Þekktasta og vinsælasta
útvarpsstöð Evrópu er án alls
vafa Radíó Luxemburg. Nú
eru liðin 30 ár síðan Radíó
Luxemburg hóf starfsemi
sína, en síðan 1955 hefur út-
varpið notað nafnið Radio-
Tele-Luxemburg. Það mun
ekki of mikið sagt, að þulir
útvarps þessa eigi heiðurinn
af því, að þetta Beneluxland
er jafnþekkt í Evrópu og raun
ber vitni.
Camillo Felgen, frægasti
plötukynnir Radíó Luxem-
burg, sem einnig er söngvari.
Radíó-Tele-Luxemburg er
sterkara en nokkru sinni
áður í sögu útvarpsins, enda
hafa vinsældir þess meðal
almennings um alla Evrópu
lengi farið vaxandi. Mest
mun þessi fræga útvarpsstöð
samt mega þakka vinsældum
Einn af fréttamönnum Radíó
Luxemburg ræðir við Fran-
coise Sagan.
því, hve vel hún er staðsett
þama í hjarta Vestur-Evr-
ópu, sérstaklega þó mitt í
hinum auðugu og þróttmiklu
iðnaðarhéruðum V-Evrópu, —
enda keppast stórfyrirtæki
þessa svæðis um að kaupa
auglýsingatíma í þessu út-
útvarpi, og fást þeir þó ekki
fyrir neina smáskildinga.
Radio-Tele-Luxemburg er
nefnilega rekið fyrir fé það,
sem inn kemur fyrir auglýs-
ingar. Efnahagsbandalagið
hefur, ofan á allt annað, enn
aukið áhuga framleiðenda
fyrir þessu útvarpi, og er það
þess vegna ekki óskiljanlegt,
að eigendur kítli nú í lófana,
þegar fyrir dymm stendur
mikil stækkun Efnaliags-
bandalagsins.
Framtíðin er björt fyrir
þessa litlu útvarpsstöð, sem
hefur svo marga áheyrendur.
50 MILLJÓN ÁHEYR-
ENDUR.
Það er algerlega einstætt
fyrirbæri, að útvarp í landi,
sem hefur aðeins 350 þús. í-
búa, hafi daglegan hlustenda-
fjölda, sem nemur 50 milljón-
um manna.
Sagt hefur verið, að Radio-
Tele-Luxemburg á 208 m. á
miðbylgjum sé staðurinn, þar
sem Evrópa öll eigi sér stefnu
mót. Mörgum verður það á,
þegar þeir hafa stillt inn á
208 m. á miðbylgjum, til þess
að hlusta á létta tónlist, að
Radit) Luxemburg sé nokkurs
konar risastórt glymskratti,
sem alltaf sé fylltur af nýj-
ustu og vinsælustu dægurlög
unum.
Engir eru samt leiðari á
þessu nafni en útvarpsmenn-
irnir við Radio Luxemburg.
Þeir viðurkenna, að 2/3 hlut-
ar útvarpsefnisins séu að visu
tónlist, en halda því samt
fram, að aðaltilgangur út-
varpsins sé að veita fólki
skemmtun, fréttir og fræðslu.
Þetta höfum við leitast við að
gera öll undanfarin ár og
munum halda áfram að gera
það, segja forstöðumenn út-
varpsins.
FRANSKIR EIGENDUR.
Hverjir eiga þessa fræg-
ustu og vinsælustu útvarps-
stöð Evrópu? Hlutabréfin
hafa víða farið, en liggja
mest í höndum franskra iðn-
fyrirtækja, en þó eru hluta-
bréfin það dreifð hjá þessum
fyrirtækjum, að ekki er hægt
að segja, að neitt eitt þeirra
hafi þar yfirhöndina. Þess
má og geta, að Luxemburgar-
ríkið hefur eftirlit með efni
því, sem varpað er út frá stöð
inni.
Það voru upprunalega
nokkrir leikmenn í útvarps-
virkjun, sem stunduðu Radio
Luxemburg. Þá höfðu íbúar
þessa litla (að því er þjóðun-
um á meginlandinu finnst)
ríkis ekki ekki eigin útvarps-
stöð, heldur hlustað á útvörp
stórþjóðanna í nágrenninu,
Frakklands, Þýzkalands, Belg-
íu og Englands. Brátt fóru að
heyrast kröfur þess efnis, að
Luxemburg yrði að stofna eig
ið útvarp. Var það á öndverð-
um öðrum tug aldarinnar, og
fengu þessir leikmenn brátt
styrk frá ýmsum félögum og
áhugamönnum í landinu.
Árið 1924 tókst svo ungum
útvarpsvirkja að fá stuðning
stjórnarinnar til að stofna
litla útvarpsstöð í höfuðborg
landsins. Maður þessi, sem
hét Francios Anen, fékk svo
leyfi til að útvarpa tónleik-
um herhljómsveitar, sem vön
var að leika fyrir framan höll
eina í borginni og einnig fékk
hann leyfi til að útvarpa frá
leiksýningum í leikhúsum í
Luxemburg. Þetta var byrj-
unin, en hinn opinberi stofn-
unardagur útvarpsins er 31.
maí 1931. Hlutafé útvarpsins
var þá 15 milljónir franka,
en var skömmu síðar komið
upp í 25 milljónir og keyptu
frönsk fyrirtæki mest af hluta
bréfunum.
MÖRG TUNGUMÁL
NOTUÐ
1933 byrjaði útvarpið svo
að senda út á mörgum tungu-
málum, eða til skiptis á
frönsku, ensku, þýzku, belg-
ísku, og mállýzku Luxem-
burgarbúa sjálfra. Þá var út-
varpað 60 tíma á viku hverri.
Eins og áður var sagt hef-
ur stjórn Luxemburg eftirlit
með öllu því, sem fram kem-
ur í Radio Luxemburg. Meiri
hluti þeirra manna, sem eru
í stjórn útvarpsins eru bú-
settir í Luxemburg, svo og
meirihluti starfsfólksins og
stjórn Luxemburg krefst þess
að ítrasta hlutleysis sé gætt
í öllum útsendingum útvarps
ins, sem varða stjórnmál, og
þess er einnig krafizt, að allt
það, sem í útvarpinu kemur,
sé ætíð með menningarlegum
blæ, þannig, að ekkert það
komi fram í útvarpinu, sem
talizt geti lítilsvirðing að fyr-
ir þjóðina. 1933 hófst reglu-
legt útvarp fyrst, en tveim ár-
um síðar var búið að lengja
dagskrána um helming.
Þegar stríðið brauzt út, á-
kvað stjórnin, að útvarpið
skyldi hætta starfsemi sinni,
vegna þess að þetta litla smá
ríki vildi ekki hætta á að
troða eitthvert stórveldið um
tær vitandi eða óafvitandi.
Lokun útvarpsins hafði lít-
il áhrif á Þjóðverjana til eins
eða neins, því nokkrum mán-
uðum seinna flæddu þeir inn
fyrir landamæri Luxemburg
gráir fyrir járnum,
stöðin ekki opnuð a
en kl. 7 að morgni
árið 1945. Reynd
Bandaríkjamenn út
notkun nokkru fyrr
var þá notað til að 1
list og koma skilab
hersveitanna og
borgara fyrstu mánui
uppgjöf Þjóðverja,
nær öll Evrópa var
Leið því nokkur tín
réttir eigendur tóku
inni á ný, enda hafði
að töluverðu leyti V(
lögð af Þjóðverjum.
En nýtt vandamál
útvarpsstöðina. Evró
rústum, og enginn ]
auglýsa eða hafði ej
að auglýsa. Á næs
rættist þó úr þessu
smátt og árið 1951!
að útvarpa 120 tím,
hverri bæði á mið
bylgjum. Þá var ein
þarna stór sjónv
sem rannsóknir hafa
kvæindastjórn þess, 6) tvö meðalstór sjónvarpupi
bergi, 7) skrifstofur og vinnustofur fyrir sjónvarpiff. I
inu er komiff fyrir tækjum til útsendinga til hinna
varps og sjónvarpsturna sem liggja úti á landinu, en
sendingunum útvarpaff til hlustenda. 9) Skrifstofur <
Útvarpsliús Radio Luxemburg í Villa Louvigny mitt í höf-
uðborg Luxemburgar, sem ber einnig nafniff Luxemburg. 1)
Skrifstofur, 2) affalinngangur. 3) stór hljómleikasalur þar sem
einnig má færa upp leiksýningar, Andspænis þessum sal er
3) herbergi fyrir leikstjóra, þegar taka skal upp sjónvarps-
sendingar, 5) Fundarherbergi fyrir stjórn útvarpsins og fram
stofur fyrir starfsmenn útvarpsins.
í)
8 5. apríl 1962 - ALÞÝQUBLAÐIÐ