Alþýðublaðið - 05.04.1962, Qupperneq 14
FIMMTUDAGUR
Kvöld- og
næturvörð •
ur L.R. í
dag: Kvöld-
vakt kl. 18,00—00,30. Nætur-
vakt kl. 24,00-8,00: - Á kvöld-
vakt: Jón Hj. Gunnlaugsson. A
næturvakt: Þorvaldur V. Gu3-
tnundsson.
V esturbæ jarapótek
á vakt vikuna 31__
7. apr. Sími 22290.
llelgidaga og næturvörður í
HAFNARFIRÐl vikuna 31.
tnarz til 7. apríl er Kristján
Jóhannesson sími 50054
Sínsi sjúkrabifreiðar Hafnar-
tjarðar er 51336.
Skipaútgerð ríkis-
ins: — Hekla er á
P§§ Vestf jörðum á norð
urleið. Esja er í
Rvk. Herjólfur fer frá Vestm,-
eyjum kl. 21,00 í kvöld til Rvk.
jjyriii er á Norðurlandshöfnum
Skjaldbreið fer frá Rvk í dag
til Breiðafjarðarhafna. Herðu-
brið er á leið frá Austfjörðum
til Rvk.
Eimskipafélag íslands h.f.: Brú-
arfoss fer frá New York 13.4. til
Rvk. Dettifoss fór frá New York
30.3. til Rvk. Fjallfoss fer frá
Itotterdam 4.4. til Hamborgar,
Antwerpen Hull og Rvk. Goðrr-
foss kom til Rvk 1.4 frá New
Vork. Gullfoss fór frá Kmh 3.4.
lil Leith og Rvk. Lagarfoss fór
frá Kleipeda 3.4. til Hangö og
ftvk. Reykjafoss kom til Gauta-
Dorgar 1.4. fer þaðan til nustur-
og Norðurlndshafna og Rvk.
.Selfoss kom til Rvk 3.4. frá
Hamborg. Tröllafoss fór frá
Siglufirði 3.4. til New York. —
Tungufoss kom til Rvk 3.4. frá
Krtótiansand. „Zeehaar." fór frá
Hull 27.3. væntanlegu'* til Rvk
á fyutramálið 5.4.
Flugfélag íslands
h.f.: Millilandafl.:
Hrímfaxi fer tii
Glasg. og Kmh
kl. 08,00 í dag. Væntanleg aftur
til Rvk kl. 22,40 í kvöld. Flug-
vélin fer til Glasg. og Kmh kl.
08,00 í fyrramálið. — Innan-
landsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Egilsstaða, Kópaskers, Vestm,-
eyja og Þórshafnar. — Á morg-
un er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar 2 ferðir), Fagurh.mýr-
ar, Hornafjarðar, ísafjarðar, —
Kirkjubæjarklausturs og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir h.f.: Fimmtud. 5. apr.
er Snorri Sturluson væntanleg-
ur frá New York kl. 06,00. Fer
til Luxemburg kl. 07,30. Kemur
til baka frá Luxemburg kl. 22.
Fer til New York kl. 23,30.
Konur í Styrktarfélagi vangef-
inna: Fundrn- á fimmtudag 5.
apríl kl. 20,30 í Tjarnarg. 26.
Dagskrá: Reikningar kvenna-
sjóðs, kosið í sjóðsstj., önnur
félagsmál, og svo talar Dr.
Matthías Jónasson um störf
Barnaverndarfélags Reykja-
víkur.
SÖFN
Bæjarbókasafn
Reykjavíkur: —
Sími: 12308. Að-
alsafnið, Þing-
holtsstræti 29A: Útlán kl. 10—.
10 alla virka daga, nema laug-
ardaga kl. 2—T. Sunnudaga kl.
5—7. Lesstofa: kl. 10—10 alla
virka daga, nema laugardaga kl.
10—7. Sunnudaga kl. 2—7. Úti-
bú, Hólmgarði 34: Opið kl. 5—7
alla virka daga nema laugar-
daga. Útibú, Hofsvallagötu 16:
Opið kl. 5,30—7,30, alla virka
daga.
Aðalfundur Kvenfélags Hall-
grímskirkju verður haldinn
þriðjudaginn 10. apríl kl. 8,30
í félagsheimili múrara að
Freyjugötu 27. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Konur fjölmenn-
ið.
Næstkomandi sunnudag 8. apríl
kl. 2 e. h. flytur prófessor Þor-
björn Sigurgeirsson fyrirlest-
ur í hátíðasal háskólans. Fyr-
irlesturinn nefnist „Dreifing
geislavirkra efna frá kjarn-
orkusprengingum" og er 4.
fyrirlesturinn í flokki afmælis
fyrirlestra háskólans. Öllum
er heimill aðgangur að fyrir-
lestrinum.
Afmælisfundur Kvennadeildar
Slysavarnarfélags Reykjavík-
ur verður haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu mánudaginn 9. april
kl. 8 e. h. Skemmtiþáttur:
Rúrik og Róbert. Halli og
Stína sýna tvist. Aðgöngumið-
ar fást í verzlun Gunnþórunn-
ar Halldórsdóttur.
Minningarspjöld „Sjálfsbjörg"
félags fatlaðra fást á eftirtöld
um stöðum: Gárðs-apóteki,
Holts-apoteki Reykjavíkur-
apoteki, Vesturbæjar-apoteki
Verzlunninni Roði Laugavegi
74, Bókabúð ísafoldar Austur
stræti 8, Bókabúðinni Laugar
nesvegi 52 Bókbúðinni Bræðra
borgarstíg 9 og í Skrifstofu
Sjálfsbjargar.
Fimmtudag-
ur, 5. apríl:
1 !,4‘*'200 Hádeg-
isútvarp. —
13,00 „Á frívaktinni" sjómanna-
þáttur (Sigríður Hagalin). 15,00
Síðdegisútvarp. 17,40 Framburð
arkennsla í frönsku og þýzku.
18,00 Fyrir yngstu hlustendurnr
(Guðrún Steingrímsdóttir). —
18.30 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.30 Fréttir. 20,00 Um tölvísi;
IV. þáttur: Reikningslist (Bjöm
Bjarnason menntaskólakennari.
20,15 íslenzkir organleikarar
kynna verk eftir Johann Sebasti
an Baeh; VII.: Máni Sigurjóns-
son leikur tokkötu og fúgu í F-
dúr og preludíu og fúgu í f-
moll; dr. Páll ísólfsson flytur
formálsorð. 20,45 Úr skáldskap
íslenzlcra kvenna frá 17., 18. og
19. öld, — bókmenntakynning,
tekin saman að tilhlutan stúd-
entaráðs: Guðrún P. Helgdóttir
skólasjtóri flytur erindi og vel
ur efnið. 22,00 Fréttir. 22,10
Passíusálmar (39). 22 20 Upp-
lestur: „Myndin“, smásaga eftir
Guðmund L. Friðfinnsson; fy •n
hluti (höfunduh les). 22,40 Jazz-
þáttur (Jón Múli Árnason). —
23,10 Dagskrárlok.
EIMREIÐIN í
stöðugri framför
EIMREIÐIN, fyrsta hefti 1962,
er nýkomið út. Þetta gamla og
gróna tímarit tekur stöðugum
framförum síðan Ingólfur Kristj-
ánsson keypti það og gerðist rit-
stjóri þess. Það er fjölbreytt að
efni og skemmtilegt, en mætti ef
til vill vera stormasamara á
köflum. Það er þó smekksatriði,
en tímarit eins og Eimreiðin á
að geta rutt brautir og haft íor-
j'stu fyrir góðum málum.
Þetta hefti hefst á yndislegu
hjarðljóði eftir Jóhannes úr
Kötlum, látlaust, einfalt og inni-
legt. Sekir menn heitir smásaga
eftir Þóri Bergsson. Segir hann
þar sögu tveggja manna, sem
strjúka á fjöll og fara um þau
friðlausir. Efnið er sótt aftur í
aldir, í raun og veru eins og
þáttur af sögulegum afbrotamál-
um. Sagan er, eins og allar sögur
Þóris Bergssonar, vel steypt og
meitluð. Yngvi Jóhannesson er
meira skáld en enn hefur verið
viðurkennt. Hann er hugljúfur og
smekkvís. Hann gaf út Ijóðabók
fyrir mörgum árum. Síðan hefur
hann aðallega birt ljóðaþýðingar.
Hér þýðir hann ljóð eftir fagur-
kerann Rilke og annað eftir von
Platten. Bjarni M. Gíslason álít-
ur að líkindum að nú geti hann
hvílt sig nokkuð eftir stríðið við
Dani um handritamálið. Hann
mun vera sannfærður um, að þeirri
orrustu sé lokið, ekki sé annað
eftir en að taka sigurlaunin, og
það sé annarra verk. Hann hefur
lítið skrifað um bókmenntir á
undanförnum árum, en þama
birtist snjöll og djarfyrt grein
um bókmenntir. Það væri synd
að ségja, að hann taki ekki af-
stöðu í þeim deilum, sem uppi
eru. Smábæjarskáld heitir smá-
saga eftir Einar Kristjánsson.
Sagan er nokkuð langdregin, en
lausn hennar stórsnjöll og min!i-
isstæð. Skuggi (Jochum Eggerts-
son) er einfari og furðufugl aft-
an úr grárri forneskju. Þó lifir
hann meðal okkar. Þarna á hann
gott kvæði. Gaman væri að birta
það til þess að sýna, hvernig
þessi þulur yrkir, en kvæðið er
of langt til þess — og ekki til-
tök að birta hér eitt erindi, því
að maður verður að lesa það í
heild. Þá er komið að merkustu
og forvitnilegustu ritgerð heftis-
ins: Um Þórð Þorláksson, Skál-
holtsbiskup, eftir Arnheiði Sigurð
ardóttur. Hér er um að ræða rit-
gerð fulla af skemmtilegum fróð-
leik um mikinn lærdóms- og vís-
indamann, sem flestum hefur
verið lítt kunnur. Það er mikill
fengur að slíkum greinum og vill
sá, er þetta ritar, fara þess á leit
við ritstjórann, að hann geri til-
raun til að fá eina slíka grein
í hvert hefti. Smalaslóðir heitir
kvæði eftir Margréti Jónsdóttur.
Það er minning, innileg og snot-
ur og full af hlýju. Maðurinn,
sem fór gegn um heilt, er smá-
saga eftir Marcel Aymé. Þetta er
bráðsnjöll skemmtisaga í reyfara
stíl, minnir nokkuð á Ósýnilega
manninn eftir Wells. Ritstjórinn
skrifar um Pólarför Amundsens
fyrir hálfri öld og birtir nokkrar
myndir til skýringar, Pólstjarnan
er indverskt ævintýri. Málfríður
Einarsdóttir þýðir kvæði eftir
Sigurð Madslund, sem nefnist
Síðkvöld. Jóhann M. Kristjánsson
skrifar um efnishyggju og and-
lega viðreisn. Og loks er smá-
sagan Bréfið eftir O’Flaherty og
bókadómar, en þeir eru of fáir.
Af þessu yfirlliti má sjá að Eim-
reiðin er fjölbreytt og efnið gott.
r.-S.-n.
Eyjaherg
með 486
tonn
Vestmannaeyjum 30. 3.
Eftirtaldir bátar höfðu aflað
meir en 300 tonn 28. þ. m.
Eyjaberg 486 tonn,Halkion 455,
Gullver NS 430, Gullborg 427, Á-
gústa 424, Björg SK 420, Stígandi
418, Kristbjörg 393, Kap 386,
Lundi 364, Leó 350, Kári 315,
Snæfugl SK 312, Andvari 311, Haf
rún NK 311, ísleifur III. 310, Ste-
fán Arnarson SU 309, Freyja 305,
Glófaxi NK 304, Sjöstjarnan 303,
Sindri 301 tonn.
Að undanförnu hefur verið all-
góður afli hjá netabátum í Eyjum
en fyrir 3 dögum tók hann að treg-
ast og var sáralítill í dag. Hring-
ver VE kom í nótt með um 1600
tunnur síldar. Var hún bæði fryst
í stöðvunum og unnin í „Gúanó”.
Inflúenzan er heldur í rénun, en
hefur leikið vertíðarfólk hart. —
Mb. Snæfugl frá Reyðarfirði hef-
ur misst 8 róðra vegna veikinda
skipverja. Ólafur B.
★ IIER er 16 ára Isfirð-
ingur, sem er á góðri leið
með að verða ein af snörp-
ustu sundkonunum okkar.
Hún heitir Margrét Óskars-
dóttir, og náði mjög góðum
árangri á sundmóti Ármanns
í fyrrakvöld.
m. 1 íí
Eginmaður minn og faðir okkar,
Helgi Magnússon,
Hellubraut 7, Hafnarfirði er lézt að heimili sínu 31. marz, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn 6. apríl kl. 2 e.h.
Blóm afþökkuð. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra eða Slysavarnafélagið.
Guðbjörg Magnúsdóttir og börn.
Við þökkum hjartanlega öllum þeim sem réttu okkur hjálparhönd og
sýndu okkar, börnum okkar og' foreldrum samúð og vináttu við
andlát og jarðarför elskulegra barnanna okkar
Lárusar Daniels Stefánssonar
og
Jónu Stefánsdóttur
Guð blessi ykkur öll.
Sigfríð Lárusdóttir
Stefán Björnsson, Hnífsdal.
14 5. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
OÍCÚJfUU
éUt 'lHl