Alþýðublaðið - 05.04.1962, Side 16
ATHUGUN nefndar, sem Lækna-
félag Reykjavíkur fól a‘ö athuga
ityernig ástatt væri í sjúkrahús-
tnálum á félagssvæðinu, hefur leitt
t 1 jós, - að mjög alvarlert ástand
liefur- skapazt vegna sjúkrahúss-
Bkprts.
Þetta kom fram í skýrslu félags-
Btjórnar á aðalfundi Læknafélags-
éns, sem haldinn var í háskólanum
-14. marz s. 1. og var mjög fjöl-
sóttur. ASalstjórn félagsins skipa
jaú: Arinbjöm Kolbeins'son, form.,
Snorri P. Snorrason, ritari, sem
voru endurkjömir, og Bjarni Kon-
eáðsson, gjaldkeri.
Samkvæmt athugunum nefndar-
Innar, sem áður er getið, bíður
Ijöldi fólks langtímum saman eftir
spítalaplássi. Hefur þetta í för með
Aöalfundur
hjá bifvéla-
virkjum
AÐALFUNDUR félags bifvéia-
virkja var haldinn 29 marz síðast-
■liðinn. Félagsmenn eru nú um
ftéO. Hagur félagsins er góður. Úr
Styrkíarsjóði félagsins voru veitt-
ir styrkir að upphæð kr. 60.269.00
á síðasíliðnu ári.
í stjórn félagsins voru kjörnir.
Sigurgestur Guðjónsson formað-
ACarl Árnason varaformaður, Krist
Inn Hermannsson ritari, Eyjólfur
Vómasson gjaldkeri, Guðmundur
Óskarsson varagjaldkeri og Árni
Jöhannesson sem gjaldkeri styrkt-
arsjóðs.
MWMWVWWVWMWVWtWV
sér heilsutjón og vinnutap, auk
þess sem sjúkrahússkosturinn tor-
veldar nú æ meir störf lækna 'og
hindrar eðlilega þróun og framfar-
ir í heilbrigðismálum, segir nefnd
in.
Nefndin taldi, að pað vær: ó-
heillavænleg þróun hversu langan
tíma sjúkrahúsbyggingar þær, sem
nú eru í framkvæmd, tækju. Fund-
Urinn samþykkti áskorun um að
hraða þessum framkvæmdum.
Að áliti nefndarinnar er skortur
hjúkrunarfólks eitt hið mest að-
kallandi og alvarlégasta vandamál
í sambandi við bætta og aukna
þjónustu á sjúkrahúsum.
Nefndin segir, að í landinu séu
nú um 350 hjúkrunarkonur, sem er
að tiltölu nær helmingi minna en
í Danmörku. Fæst sjúkrahús á
landinu uppfylla lágmarkskröfur
um tölu hjúkrunarkvenna.
Til þess að fullnægja þörfinni
þyrfti Hjúkrunarskólinn að út-
skrifa árlega tvöfalt meira hjúkr-
unarlið en hann gerir nú, en þó
mætti ráða nokkra bót á þessv.m
vanda með betri nýtingu starfs-
krafta hjúkrunarfólks, segir nefnd
in ennfremur. Fundurinn taldi
mjög aðkallandi að bæta við
kennsluhúsnæði Hjúkrunarskólans
— þegar á þessu ári.
Þá samþykkti fundurinn tilmæli
ríkisstjórnarinnar þess efnis, að
hraða lagasetningu um öryggisráð-
stafanir frá geislavirkum efnum og
geislatækjum og taldi vinsamlega
aðstoð Kanada. Bandaríkjanna og
Bretlands við hina íslenzku lækna-
stétt mjög þýðingarmikla.
Þyrfti
tvöfalt
starfslið
★ ÓVENJU margir þurftu að
leita til Slysavarðstofunnár í
gærdag með ýmis konar
meiðsli og sár, einkum var
komið þangað með mörg
börn.
Starfsliðið var önnum kaf-
ið, enda ekki of margir til 1
að sinna þeim fjölda, sem
daglega þarf að leita á Slysa-
varðstofuna.
Einn Iæknakandidatinu
sagði í gær, að það þýrfti
að tvöfalda tölu starfsmanna,
ef Vel ætti að vera.
FEGRUNÁ
BORGINNI
MRS. KAY GREGSON frá
snyrtivörufyrirtækinu Innoxa,
hélt í gær fyrirlestur með sýni-
kennslu að Hótel Borg. Hún
kynnti þar vörur frá Innoxa og
sýndi andlitssnyrtingu.
Fjölmargar konur voru boðn-
ar til að vera viðstaddar fyrir-
lesturinn, og Alþýðublaðið tók
myndir á staðnum.
Frúin var hin kátasta og baðst
afsökunar á því, að hún kynni
ekki íslenzku, — en ef einhver
skildi ekki það, sem hún segði,
skyldi sú spyrja sessunaut sinn
og, ef hann skildi ekki heldur
gæti hann reynt að spyrja sessu
naut sinn, og ef sú skildi ekki
heldur hina enska tungu, skyldu
þær kæra sig kollóttar um það,
sem hún segöi: Frúin hafði ráð
undir rifi liverju gegn öllum
skavönkum, scm kvenfólk vill
losna við,. — en Innoxavörur
breiða yíir allt slíkt, segir frú
Gregson. Nöfnin á snyrtivörun-
um voru óneitanlcga heillandi
lt. d. * ANDLITSIIANASTÉL
(face-cöcktail), YNDISLEGRI
EN VORIÐ, og fleira í þessum
dúr.
Áheyrendur fylgdust með af
áhuga, ,.og bæði þjónarnir á
Borginni og kvenfólkið undi sér
hið bezta, meðan frú Gregson
málaði fórnardýrið sitt með
rauðum. varalit, bláum augn-
skugga, rauðum kinnlit, bleiku
undirkremi brúnum augna-
liáralit ,og púðraði svo yfir allt
saman með lausu púðri_Vala
Kristjánssön, hin eina sanna
„fair Lady“, kynnti frúna fyrir
áheyrendum.
iWWWWMWWMWWWWWWWnvtWWWWWWWWWWWWWW
ÞAÐ HEFUR verið mikið um
það rætt manna á meðal, hvers
vegna Kurt Nicholin, framkvæmda
stjóri SAS kom hingað til lands-
4ns á dögunum. Margar getgátur
-hafa verið á lofti, en engin stað-
festing hefur fengist á neinni
þeirra.
Hafa margir talið, að hann hafi
komið hingað til að kynna sér að-
stæður með það fyrir augum að
SAS-flugvélar lentu hér, og hefðu
hér eins konar miðstöð fyrir
Grænlandsflug. Það er vitað, að
SAS hefur síðan 1946 haft mik-
inn áhuga fyrir því að koma á
föstum Grænlandsferðum. Sá á-
hugi félagsins hefur aukist mjög
síðan Grænland fór að verða vin-
sælt sem ferðamannaland.
Flugfélag íslands hefur um ára-
bil haldið uppi samgöngum við
Grænland, og hefur þjónusta fé-
lagsins á þeirri flugleið þótt með
afbrigðum góð og er það flug stór
tekjuliður lijá félaginu. SAS mun
hafa litið þetta Grænlandsflug
F.í. nokkru hornauga, og sterkar
raddir eru nú uppi um það, að
það hyggðist koma á ferðum þang
að með ferðamenn.
Þá hefur því verði haldið fram,
að SAS liafi ætlað sér að hefja
samkeppni við Loftleiðir á Ame-
ríkuleiðinni, og bjóða þar sömu
lágu fargjöldin. Á þessu er eng-
inn möguleiki, þar eð SAS er í
IATA og getur því ekki lækkað
fargjöldin á þessari leið, nema
leyfi IATA fáist, og á því eru tald
ar litlar líkur.
Sannleikurinn mun þó vera »á,
að Kurt Niccolin ræddi hér aðal-
lega um samvinnumöguleika milli
félaganna, en hvert erindi hans
hefur raunverulega verið er mönn
um ráðgáta. Þá mun hann hafa
rætt hér við Jóhann Rönning, sem
er umboðsmaður þeirrar verk-
smiðju í Svíþjóð, sem Niccolin
var forstjóri fyrir áður en hann
gerðist framkvæmclastjóri SAS.
Hann mun nú innan skamms fara
til Svíþjóðar aftur og taka við
fyrri stöðu sinni, en hann var að-
eins ráðinn hjá SAS í eitt ár. —
Hann hefur verið beðinn um að
vera þar áfram, en því hefur hann
neitað.
Mikill fundur var haldinn í
Stokkhólmi um síðustu helgi, og
var þar rætt um hver yrði næsti
framkvæmdastjóri. Að þessu sinni
mun það ekki verða Svíi, en þeir
hafa skipða æðstu embætti hjá
SAS frá býrjun. Ekki mun þó- hafa
náðst samstaða á fundinum um
kjör eftirmanns Niccolins.
Þá má geta þess að Viggo Rass-
mussen, forstjóri SAS í Dan-
mörku hefur nú látið af störfum,
en hann tekur við ábyrgðarmikilli
stöðu hjá Carlsberg-fyrirtækinu.
1. maí nefnd kjörin
FULLTRUARÁÐ verkalýðsfé-
laganna í Reykjavík heldur fund
í kvöld kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu. Kosin verður 1.
maí ncfnd. Guðjón Hansen trygg-
ingafræðingur fiytur erindi um
tryggingamál.
HBi
Ik VIÐ spilum næstkomandi ;J
föstudagskvöld í Iðnó. Spila- |J
kvöldið hcfst kl. 8,30 aö J>
venju. Afhent verða verðlaun ! >
í fimm kvölda spilakeppn- ![
inni. Fjölmcnnið tímanlega. ;J
— Skemmtinefnd Alþýðu- ;!
flokksfélags Reykjavíkur. !>
'W í
4VvWWWWWV,VAWWWWWWV