Alþýðublaðið - 19.04.1962, Síða 3

Alþýðublaðið - 19.04.1962, Síða 3
★ KAFFITERTA: 3 egg, 2 dl. sykur, 2Vi dl. hveiti, 4 msk. sterkt kaffi, lVz msk. lyftiduft. Páska- Þeytið eggin í nokkrar mínút- ur. Bætið sykrinum í og þeytið í um það bil 10 mínútur. Blandið saman hveitinu og lyftiduftinu. Bætið mjölinu og kaffinu til skiptis saman við eggin og syk- urinn. Hellið deiginu í vel smurt og brauðmylsnustráð mót og bak- ið kökuna við um 175—200 gráðu hita í um það bil hálftíma. EINKUM FYRIR KVENFÓLKIÐ Fylling og skreyting: 3 dl. rjómi, Vz hg. sætar möndlur, 2 msk. sykur, 4 msk. sterkt kaffi. Stífþeytið rjóman. Blandið í hann kaffi og sykri. Skiptið rjóm- anum í tvo helminga, annan helm inginn skal nota inn í tertuna, liinn helminginn til skreytingar. Blandið saman við rjómann, sem á að nota í fyllingu, Vi dl. afhýdd um muldum möndlum. Skiptið kökunni, þegar hún er orðin köld í tvo eða þrjá botna. Látið fylling una milli botnanna, én með rjóm- anum, sem af gekk skreytið þið tertuna annað hvort með skeið eða sprautu. (Sænsk uppskrift). FLESTAR húsmæður vita, að það má oft gera tvenns konar kökur úr sama deiginu. Sumir vilja segja, að slíkt sé ekki góður búskapur, því að þá sé sama bragðið af öllum kökun- um, — en svo þarf ekki að vera. í nýrri matreiðslubók, sem við höfum hér við hend- ina er svo að sjá, sem í tertu- botna,na sé svo til alltaf not- að sama deigið, — þ. e. í venjulega tertu ,en ekki vatnsdeig eða smjördeig, sem er sjaldgæfara. Sykur- kökur, — eða það, sem við hér kölhim svampterur, — má framreiða á ýmis konar mis- munandi máta og búa þannig til nýjar tertur. ★ PÁSKATERTA: 6 egg, 3 dl. strásykur, 250 gr. rifnar gulrætur 2Vi hg. sætar möndlur, rifið hýði af hálfri sítrónu, 1 msk. koníakk, 1 tsk. kanel, 1 tsk. nellikkur V/i dl. hveiti. Skiptið eggjunum. .— Hrærið eggjarauðurnar og sykurinn mjög vel. Blanda saman við það rifnar m........malaðar og afhýðaðar möndlurnar, sítrónubörkinn, sem er fínt rifinn, koníakk, kanel og nejlikor, ásamt með hveitinu. Stífþeytið eggjahvíturnar, blandið þeim varlega saman við deigið. Jfellið deiginu í vel smurt og brauðmylsnustráð mót. Bakizt við fremur lágt hitastig, þ. e. við um 175 gráðu hita í 55 mínútur. Bakið kökuna daginn áður en hún er skreytt með flórsykri, marsipanfígúrum eða konfekt molum. Þeyttur rjómi fer einnig ágætlega við þessa köku. ★ Krem FLESTAR eru búnar að baka til páskanna, en efalaust eigið þið eftir að setja krem á tertubotn- ana, sem þið eruð búnar að baka og kannski þurfið þið að bregða köku í ofninn laugardaginn fyrir páska. Ef svona stendur á er á- gætt að hafa við hendina upp- skriftir af góðum kremum, en það er um margt að velja í þeim efnum. Við getum búið til mis- munandi tertur með sams konar botnum aðeins með því að nota mismunandi krem, — en svamp tertubotn er ákjósanlegastur í þessu tilfelli. Uppskriftir að svamptertubotnum voru í blað- inu síðasta fimmtudag. SÍTRÓNUKREM 4 dl vatn, 250 gr. sykur, 2 eggjarauður, 3—4 msk. Kartöflumjöl, safinn af 2 sítrónum, hýðið af einni sitrónu, 2 msk. smjör. Allt blandizt kalt saman, sett yfir eld og hrært þar til sýður, hrærið öðru hvoru í þar til krem ið er kalt. Það er freistandi að lita svo- lítið af kreminu sterkgult og sprauta því í krans á kökuna, sem annars er smurð með krem- inu og eins má skreyta hana með rjóma, ef vill. MOKKA- eða SÚKKULAÐIKREM 3 dl. vatn, 70 gr. hveiti, 1 eggjarauða, 200 gr. smjör, 100 gr. sykur, vaniljusykur, 1 dl. kaffi, þ. e. mjög sterkt kaffi. 2 dl, vatn eða 3 70 gr. súkkulaði, 1 msk vatn. Sjóðið vatn og hveiti í fimm mínútur. Kælið og bætið í einni eggjarauðu. Þeytið saman smjörið og' sykur- inn, þar til það er orðið hvítt og létt og hrætið hveTtiSósuna varlega saman við. Bætið í kaff- inu að súkkulaðinu, sem hefur verið brætt í vatni. Ef* kremið vill ekki jafna sig skal það sett yfir hita andartak og hrært í því, þar til það verður jafnt aftur. 4 ÁVAXTAKREM ! 4 dl. ávaxtasaft, 2 msk. kartöflumjöl, 3 eggjarauður, safinn af Vs sítrónu. sykur. Blandið saman ávaxtasafanum, kartöflumjölinu, eggjarauðun- um og hrærið það saman yfir hita, þar til það sýður. Hrærið öðru hvoru í kreminu þar til bað kólnar. Bætið í sítrónusafanum og sykri. Frá sveitakeppni Sovétríkjanna Á FYRSTA borði í sveita- keppni Sovétríkjanna urðu úr- slit þessi: 1,—3. Geller, Korts- noj og Smysloff 3 vinninga. 4. Stein 2V2 vinning. 5. Tal 2 v. 6. Petrosjan 1V£. Tal gerir sjaldan jafntefli, en í þessari keppni gerði hann fjög ur jafntefli, tapaði einni skák, en vann enga! Petrosjan, sem sjaldan tapar skák tapaði nú ■þrem af fimm. Skákmóti Júgóslavíu lauk 18. marz og urðu úrslit þessi: 1.-2. Matanovic og Minic 11 v. 3. So- kolov 10 v. 4. Ciric 9%. 5.-7. Bu- kic, Ugrinovic og Ostojic 9. v. o. s. frv. Stein sigraði á alþjóðlegu móti í Búkarest hlaut 9. v. 2. Bi- lek 8V2 v. 3. Radiovic, Rúmen- íu 8 v. o.s.frv. Eftirfarandi skákdæmi birtist fyrst í Tidsskrift för Schack ár- ið 1944 og er eftir Bo Lindgren. Hvítur mátar í þriðja leik. — Lausnin er í lok þáttarins. 1. e4 2. Rf3 3. d4 4. Rxd4 5. Rc3 6. Bg5 7. Bc4 8. Dd2 9. 0-0-0 10. Bb3 11. Hhel 12. Bxf6 13. Df4 14. Dg4 c5 d6 cxd4 Rf6 a6 Rbd7 Da5 eG b5 Bb7 Rc5 gxf6 Be7 0-0-0 fl #1 ■ ■ i mím m n sis (Nú er kóngsstaða svarts vafa- söm eins og brátt kemur í ljós, reynandi var 14. — Kf 8). 15. Bd5 b4 16. Bxb7t Kxb7 (Hvítur hefur nú komið öfl- ugasta lífverði svarta kóngsins fyrir kattarnef og kemur nú hans hátign í opna skjöldu með sprengjutilræði). mm m m i mm m m m mm mm mt % wiíi m III. stöðumynd. 17. Rd5!! exd5 (Nú hefði hvítur svarað 17. — Hhg8 með 18. Rc6! Kxc6. 19. Rxe7t en aðrar leiðir veita svarti iieldur ekki neina úr- lausn). í 18. exd5 19. Rc6 Hd7 I. stöðumynd. Hér er svo vlnningsskák Stein gegn Tal úr sveitakeppni Sov- étríkjanna. SIKILEYJARVÖRN. Hvítt: Stein. Svart: Tal. mwm IV. stöðumynd. (Eftir 19. - Ðc7 20. Dxb4t K- c8 21. Kc4 með hótuninni 22. b4 er svartur einnig með tap- að tafl). 19. - 20. Dxb4t 21. Rxe7 22. Da3 23. Rc6 24. Da5t 25. Kbl 26. Hd4 27. Kcl 28. He3 Dxa2 Kc7 Hb8 Dc4 Hb3 Hb6 Ra4 Rxb2 Dc5 II. stöðumynd. (Hvitur svælir nú svarta ridd-' arann inni í greninuj. I 28. - Kb7 29. Hc3 Hb5 30. Da3 Dxa3 t 31. Hxa3 Hxd5 32. Ra5t gafst upp. Lausnin á skákdæminu: 1. H a3 Kg2. 2. d4 fráskák Kfl, 8.' Hal mát. ; Ingvar Ásmundsson. 1 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 19. apríl 1962 3

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.