Alþýðublaðið - 19.04.1962, Síða 9
Nýjung í
Danmörku
MJÓLKUR-
„Sjoppurnar", þar sem
unglingarnir „rotta” sig sam-
an eins og eitthvert blaðið
komst svo furðulega að orði
fyrir fáum dögum, eru viður
kenndar einn hættulegasti
samkomustaður þeirra af
vandamönnum þeirra og
wma þeim, sem ábyrgð bera á lög-
um og rétti í borginni. Þar
cru mörg ráð brugguð og
miklum peningum eytt í gos-
drykki og jafnvel annan vafa-
saman varning, ef dæma má
eftir þeim orðrómi, sem um
gengur.
Þetta vita allir, en færri
hafa verulegan áhuga fyrir
að gera eitthvað raunhæft til
úrbóta.
í Danmörku er þessi plága
engu minni en hér, nema síð-
ur sé. Og nú hefur þeim, sem
stjórna mjólkuriðnaði Dana
dottið ráð í hug til þess að
maka krókinn og um leið að
koma (ef unnt væri) lítið
eitt meiri menningarblæ á
samkundurnar.
„SJOPPNA"
Þeir hafa til reynslu kom-
ið upp „mjólkurbar“, þar
sem hinir venjulegu gos-
drykkir eru útlægir gerir, en
mjólk í öllum mögulegum út-
gáfum kemur í þeirra stað.
— Golden milk — Orange
milk — Lemon milk — Map-
le milk shake o.s.frv.
Þessi tilraun danskra mjólk
urmanna virðist ætla að verða
gífurlega vinsæl, eftir aðsókn
unglinganna að mjólkurbarn-
um að dæma og í ráði er, að
hefja samkeppni við gömlu
„sjoppurnar“ með tilkomu
„fíijólkurbara" á hernaðar-
lcga mikilvægum stöðum um
land allt, um leið og hafin
verður innreið mjólkurinnar
í æskulýðsklúbba og æsku-
lýðsheimili um landið allt.
Þessi tilraun er að mörgu
leyti athyglisvert fyrir ís-
lenzku mjólkursamsöluna og
islenzka æskulýðsleiðtoga, og
væri ekki úr vegi, að þeir
kynntu sér þessi mál vel.
Myndirnar eru úr „mjólk-
urbarnum" danska.
Nétt í EVioskvu
i AusLuroæjarDioi 1 Kvold kl. 7 og 9,15.
Söngur — Ballett — Þjóðdansar frá Kákasus — Einleikur á píanó
— Einleikur á harmoníku.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói. — Sími 11384.
Tíminn segir: Fagnaðarlæti áheyrenda voru slík að þess eru
reiðanlega fádæmi.
^lþýðublaðið segir: Atriðin mjög skemmtileg.
Skrifstofa skemmtikrafta.
Rússneskir listamenn skemmta
Hve mikill var hitakosn-
aður yðar á s.l. vetri
/
Látið
?
Spara
fyrir yður á komandi vetri
Tvöfalt Cudo-gler 5 ára ábyrgd.
CUDOGLER c/o
Skúlagötu 26 Sími 12056.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 19. apríi 1362 @