Alþýðublaðið - 29.04.1962, Síða 2

Alþýðublaðið - 29.04.1962, Síða 2
Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoöarritstjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. —Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu €—10. — Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson. Menntaskólinn ÞÆR FREGNIR, að byggingafulltrúi Reykjavík ur hafi látið lögregluna stöðva framkvæmdir við menntaskólann, samkvæmt samþykkt bygginga- nefndar, 'hafa vakið athygli og furðu. Ef þessir em bættismenn hindra eða tefja verulega þær bygging ar, sem fyrirhugaðar eru aftan ivið gamla skólahús ið, útiloka þeir nokkur hundruð unglinga frá anenntaskólagöngu og frekara framhaldsnámi. Mál þetta hefur að vísu sorglega forsögu. í eina tíð var búið að teikna risastórt menntaskólahús í Öskjuhlíð og eyða milljón í að grafa fyrir því. Sú framkvæmd var stöðvuð, en þá tók við margra ára ósamkomulag um framtíðar byggíngar fyrir þessa gömlu og þýðingarmiklu skólastofnun. í vetur náð ist loks samkomulag allra aðila um þá lausn, sem nú átti að byrja á. Málið var rætt á Alþingi og sám vinnuefrid um skipulagsmál veitti samþykki sitt. Óhjákvæmilegt var að hafa mikinn 'hraða á málinu, en svo kom meirihluti bygginganefndar (4 gegn 3) á síðustu stundu og stöðvaði framkvæmdir. Munu jþar vera að verki fulltrúi kommúnista í nefndinni og embættismenn. Ef þessir menn eru beinlínis andvígir því að hráðabirgðabyggingar verði reistar bak við onenntaskólahúsið, eiga þeir rétt á að heita stöðu sinni. Þá er yfirsjón að ekki var til þeirra leitað fyrr. Ef þeir byggja afstöðu sína á formsatriðum, ihafa þeir sett af stað hvimleitt mál og engum gert gagn. Vonandi er um hið síðarnefna að ræða og vonandi tekst á skömmum tíma að leysa vandræð in, svo að framkvæmdir geti haldið áfram. Eitt atriði í þessu máli er athyglisvert fyrir Eeykvíkinga: í Þingholtunum, einu elzta og virðu legasta hverfi borgarinnar, hefur ekkert skipulagt verið samþykkt! Sprengjurnar ÞEGAR kjarnorkusprengingar Sovétríkjanna voru til umræðu á Alþingi síðastliðið haust, létu margir þingmenn lýðræðisflokkanna í ljós þá skoð un, að það brot á kjarnorkufriðnum mundi leiða til þess að Bandaríkjamenn teldu sér óhjákvæmi- legt að gera hið sama. Þetta hefur nú gerzt og verð ur ábyrgð Sovétríkjanna nú meiri en ekki minni. Þau rufu grið, þótt kommúnistar tali nú eins og heilagir englar og segi, að nú verði ÞEIR að sþrengja meira af því HINIR séu byrjaðir. • Vesturveldin hafa frá tímum Baruch tilagnanna 1946 til þessa dags boðið samninga um að hætta kjamorkusprengingum — ef eftirlit væri með því a^ samningarnir væru haldnir. Eftirlit mega Rúss ár hins vegar ekki heyra nefnt. Hvers vegna skyldi 'það vera? 2 29. apríl 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ TVÖFALT GLE Framleitt úr Belg. „A“ gleri. Hitasparnaður samsvarar allt að 15% vöxtuBm á ári af því fé sem þér verjið til kaupa á ISOTHERM gleri. Nú er tími til að gera vor og sumar pantanir. GLE R H . F . Kópavogi Verksmiðjan: Brautarholti 2 — Reykjavík — Sími 19565 HANNES Á HORNINU ★ Slæmt ástand í fjölbýl- ishúsum. ★ Löggjöf um sambýli er til. Kærur eina leiðin ef ekki er hægt að komast að samkomulagi. ★ Tripólibragginn á að hverfa tafarlaust. ÞÓRUNN ÍMSLAND skrifar: „Fyrir fáum árum var ég svo ó-' heppin að kaupa íbúð í fjölbýlis- húsi og hefur sannarlega gengið á mörgu misjöfnu. Ég bý oftast ein í þriggja herbergja íbúð og vinn úti allan daginn, og þykir mér hita- reikningurinn allt of hár. Ilitareikn ingur fyrir marzmánuð var kr. 841. 00, aðeins olían. Kynt er daga og nætur þótt húsfélag og húsreglur segi, að hiti eigi að vera frá klukk- an 9 að morgni til klukkan 22 að kvöldi, sbr. einnig lög frá Alþingi nr. 19, 24/4 1959, 15. gr. II. kafla, sem segja að hiti eigi að vera frá klukkan 9 að morgni til klukkan 11 að kvöldi. BÆÐI ég og aðrir í þessu fjöl- býlishúsi erum margbúin að kvarta undan þessum háu hita- reikningum og liöfum beðið um, að settir séu mælar á alla ofna og hitavatnskrana, og þá geti þeir, sem þennan næturhita vilja, haft hann og yerða að greiða hann sjálf ir. En ekkert er gert. Ber manni að greiða svona reikninga, ef ekki hvert á maður að snúa sér? Sam- eiginlegir mánaðarreikningar okk- ar í þessu sambýli geta orðið og hafa farið upp í kr. 1700.00 á mán- uði. KJALLARI er sameiginlegur. — Börnin brjótast inn í geymslur og skemma ekki fyrir hundruð króna heldur þúsundir króna. Þau saga í sundur hurðarhúna á geymslu- hurðum og brjóta hurð. Sprengja allar perur í sameiginlegum kjall- ara, rífa merkispjöld úr bréfaköss- um, rifa bréfapakka upp og eyði- leggja innihald, hamast í stigahús-. um svo enginn hefur frið í sínum íbúðum fyrir öskri og látum, bera jafnvel eld að dyramottum. Hvert þessara barna brjóta ekki aðeins húslög okkar heldur alla góða siði manna á milli. Foreldrarnir skipta sér of lítið af þessu, mér finnst vanta barna- eða unglingadómstól eða fjársektir, eitthvað verður að gera. — Ef á að gera kjallarann í stand að nýju, þá kostar þaS ekki hundruð heldur þúsundir króna, og fellur þessi kostnaður jafnt á alla, þótt óréttlátt sé. ÞAÐ hefur oft verið skrifað um, hve illa og seint sé géngið frá lóð- um í kringum fjölbýlishús. Nú á að reyna að ganga frá lóð þessa sambýlishúss í sumar, en hvern langar til þess að leggja í það þús- undir króna, þegar vitað er fyrir fram að allt verður skemmt?“ VEGFARANDI skrifar: „Þegar þú minntist á hið nýja Tónabíó, sagðir þú að það væri sjónarsvift- ir að Tripolí-bragganum við Mela- veg. Mig furðar á þessum ummæl- um þínum. Ég hélt satt bezt að segja, að það yrði fagnaðarefni öll- um þegar þessi nauðaljóti bragga- skratti hyrfi með öllu af andlitl hverfisins. — Mig langar nú að spyrja: Hvers vegna er bragginn ekki rifinn tafarlaust? Hvað á að láta hann hanga uppi eftir að eng- in not eru fyrir hann?“ SAGÐI ég sjónarsviftir? Annað hvort hafa það verið pennaglöp eða prentvilla. Ég vil láta útrýma öll- um bröggum eins fljótt og mögu- legt er, og þá ekki sízt þessum stóra og ljóta bragga þarna suður frá. Ilannes á horninu. Aðalfundur rithöfunda FÉLAG íslenzkra rithöfundá liélt aðalfund fimmtudaginn 20, þ. m. Formaður var endurkjörinn Ingólfur Kristjánsson og með lionum í stjórnina Ármann Kr, Einarsson gjaldkeri og Gunnar Dal, annar meðstjórnandi; fyrir í stjórninni voru Þóroddur Guð- mundsson ritari og Stefán Júlíus- son fyrsti meðstjórnandi. í vara- stjórn voru kjiirnir: Indriði G. Þorsteinsson og Hannes Pétursson. Fulltrúar félagsins í stjórn Rit- höfundasamhands íslands vom kjörnir: Stefán Júlíusson, Guðm. G. Hagalín og Indriði Indriðason og til vara Ingólfur Kristjánsson. í stjórn rithöfundasjóðs Ríkisút- varpsins var kjörinn Guðmundur G. Hagalín. __ Á fundinum var samþykkt skipu lagsskrá fyrir bókmenntasjóð fé- Iagsins, sem stofnaður var á síð.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.