Alþýðublaðið - 29.04.1962, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.04.1962, Blaðsíða 3
TELEXÞJÓNUSTA VIÐ ÖTLÖND TELEXÞJÓNUSTA verður opnuð niilli íslands og útlanda mánudag- inn 30. apríl n. k. kl. 13. Þessi þjónusta er í því fólgin, að notend- ur geta með fjarritatækjum heirna ★GRÍMA sýnir „Biedermann og brennuvargana” í næst síðasta sinn í kvöld klukkan 8.30. Þessi sýning Grímu hefur vakið mikla athygli, og fengið mjög góða dóma í blöðum. Þessi mynd er af Brynju Benediktsdóttur í hlutverki þjónustustúlkunn- ar. MMtUMMMMMMMMMUMH hjá sér skrifast á við aðra telex- notendur, hvar sem er í heiminum, en þeir eru nærri 50.000 að tölu. Hefur póst- og símamálastjórn- in að undanförnu samið um slík viðskipti við flest lönd Evrópu, svo og önnur utan álfunnar. Stofngjald er 10.000 krónur og érsleiga tækjanna 16.000 krónur, en viðskiptagjaldið er um 40% lægra en símtalagjaldið og mun ódýrara en skeytasendingar. Þessi þjónusta er ætluð fyrir þá, sem hafa mikil skeytaskipti. Auk þess sem að þessi nýbreytni getur orðið til mikils sparnaðar, er mun fljótlegra að ná sambandi við útlönd á þennan máta en með því sem hingað til hefur tíðkast. 14 aðilar hafa nú þegar óskað að gerast telexnotendur, en skiptiborð ritsímans getur annað 20 notend- um. Aðalfundur AÐALFUNDUR íslenzk-sænska fé- lagsins var haldinn í Þjóðleikhús- kjallaranum miðvikudaginn 25. apríl. Formaður félagsins, Guð- laugur Rósinkranz, flutti skýrslu um störfin á síðastliðnu starfsári. Hann gat þess sérstaklega, að nú væri fjárhagslega tryggt með fjárframlögum frá Svíþjóð og ís- landi að hafizt yrði handa um samningu sænsk-íslenzkrar orða- bókar. Afhenti hann orðabókar- nefnd fé það, að upphæð nær 10 000 krónur, sem útvegað hefði verið fyrir löngu í þessu skyni og verið hefur í vörzlum félagsins. Halldór Kiljan Laxness, sem ver ið hefur í stjórn félagsins frá stofnun þess, var kjörinn 1. heið- ursfélagi þess. Utankjörstaðakosn- ing hefst UTANKJÖRSTAÐAKOSNING liefst í dag, sunnudaginn 29. apríl. Þeir, sem ekki verða heima á kjör- degi geta kosið hjá sýslumönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Er- lendis er hægt að kjósa hjá ís- lenzkum sendiráðum og ræðismönn um sem tala íslenzku. Nýkomin . röndótt ullarefni og ódýr sum arkjólaefni. Lítið í gluggana. Verzlunin Snót Verzlunin Snót. í dag Kosningaskrifstofa borgarfógeta í Reykjavík er í HAGASKÓLA. — Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 10—12, 2—6 og 8—10. Sunnu- daga kl. 2—6. Kosningaskrifstofa Alþýðuflokks ins í Reykjavík er í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, símar 15020 og 16724. Skrifstofan er opin al'.a virka daga kl. 9—22. Alþýðuflokks- fólk er beðið að hafa samband við skrifstofuna og veita upplýsingar, er að gagni mega koma. Einkum er mikilvæg vitneskja um þá kjós- endur, er eiga að kjósa utankjör- staðakosningu, jafnt þá sem dvelja nú erlendis eða verða ytra á kjór- dag og hina, sem flutzt hafa milli byggðarlaga innanlands. — Kjós- endur Alþýðuflokksins eru hvatt- ir til að ganga úr skugga um sem fyrst hvort þeir eru á kjörskrá eður ei með því að hafa samband við skrifstofuna. „Það er frá Kiljah: Kæri Rósinkranz, hef lokið við að semja nýtt leikrit . . .“ Wyszynski gagn- rýndur VARSJÁ, 28. apríl (NTB—REUTER) Wyszynski kardínáli hefur sætt harðri gagnrýni í blaði einu I Pól- iandi og er sakaður um að hafa reynt að spilla góðri sambúð, sem ríkt hafi milli ríkis og kirkju. Ennfremur var kardínálinn sak- aður um að hafa brotið stjórnar- skrá landsins, sem veitti trúfrelsi, bæði til handa trúuðum og trú- lausum. Árásir Wyszinskis á þá, sem ekki eru kristnir, brjóta bein- línis í bága við stjórnarskrána, segir blaðið. Kanadamenn tor- tryggnir BRÚSSEL, 28. apríl (NTB —Reuter) Talsmaður brezku samninga- nefndarinnar í Briissel hafnaði í dag þeirri frétt kanadíska blaðsins „Toronto Globe and Mail, að efna- hagsbandalagið hefði neitað að fallast á tryggingar þær, sem Bretar hafa beðið um gagnvart samveldislöndunum. Kanadíska blaðið sagði, að sér- kröfum Breta varðandi hagsmuni samveldislandanna hefði verið vís að á bug, og bráðabirgðalausn í nokkrum atriðum væri það bezta, sem menn gætu gert sér vonir um. Brezki talsmaðurinn f Brussel sagði, að skýrsla sú, er talað væri | um í kanadíska blaðinu, væri að- eins venjulegt yfirlit um gang við- ræðnanna til þessa, og þar væri ekkert nýtt að finna fyrir neinn samningsaðila. Nýr „toppkommi" Moskva, 28. april. (NTB-AFP). AÐALMÁLGAGN sovézka kom- múnistaflokksins, Pravda, skýrir frá því, að Andrcj Pavlovitch Kiri- lenko hafi verið skipaður fyrsti varaforseti miðstjórnarinnar í rússneska ráðstjórnarlýðveldinu, sem er stærsta „sovét-lýðveldið“ í Sovétrílcjunum. Nikita Krústjov er sjálfur for- seti í miðstjórninni. Nýr SÞ hershöfð- ingi Leopoldville, 28. apríl. (NTB-AFP). EÞÍÓPSKI hershöfðinginn Keb- bede Gebre er nú kominn til Leo- poldville, þar sem hann tekur við stöðu yfirhershöfðingja herafla SÞ í Kongó. Gebre hershöfðingi er 41 árs gamall, og hefur áður verið í þjón- ustu SÞ sem yfirmaður hersveita Eþíópíumanna í Kóreustríðinu. — Hann barðist með Bretum fyrir frelsi lands síns snemma í heims- styrjöldinni, þegar ítalir voru rekn ir úr landi. Áður en Gebre hershöfðingi var tilnefndur yfirmaður SÞ-hersveit- anna í Kongó var hann yfirmaður herráðsins í eþíópska keisarahern- um. jr Arangurslaus sáttafundur ENGINN sjáanlcgur árangur varð á sáttafundinum í togaradeilunni, sem sáttasemjari boðaði til í fyrra- kvöld. Sáttasemjari sagði blaðinu í gær, að ekkert væri um fund þenn- an að segja, en hann hefði engan árangur borið. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður. MMMMMMMMMMMMMMMM næsta bæjar SAGA TIL NÆSTA BÆJAR Hin 38 ára gamla kona, Elísabet Foyle liefur nýlega fengið skilnað frá manni sínum, ekki þó vegna hans sjálfs, heldur vegna ljóns. Svo var mál með vexti, að eiginmaðurinn hafði villt ljón í búri í garðinum um- hverfis húsið, og með stöð- ugu öskri sínu um nætur gerði það frúna svo hrædda, að hún varla mátti vatni halda. Þar kom að hún sótti um skilnað, og nú situr mað- urinn heima með sárt enn-t ið — og ljónið. MMMMMMIMMMMMMMMMt ALÞÝÐUBLAÐID - 1962 29. apríl 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.