Alþýðublaðið - 01.05.1962, Síða 1

Alþýðublaðið - 01.05.1962, Síða 1
43 árg. — Þriðjudagur 1. maí 1962 — 98. tbl. | verkalýðsins um allan. heim. Eins og venja er til gengst Full- trúaráð ,! verkalýðsféllaganna í Reykjavík fyrir hátiðahöldum á Laekjartorgi og verður haldinn I>ar útifundur. Ekki náðist samkomu- lag um hátíðahöldin að jþessu sinni og munu kommúnistar einn- 'ig halda sérstakan útifund. Er lýðræðissinnað fólk í verkalýðsfé- lögunum hvatt til þess að fjöl- menna á útifund Fulltrúaráðsins á Lækjartorgi. . t Útifundurinn á Lækjartorgi hefst kl. 2 Jón Sigurðsson forpiað- ur Fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna í Reykjavík flytur ávhrp og stýrir fundinum. Ávarp flytuí fcinn ig Sverrir Hermannsson, formað- ur LÍV. En ræður flytja: Óskrr Hallgrímsson, form. Félags ísl, rafvirkja; Guðjón Sigurðsson, for- maður Iðju, félags verksmiðju- fólks; Eggert G. Þorsteinsson, al- þingismaður og Bergsteinn Guff- jónsson, formaður Frama. Það var ljóst strax og farið var að undirbúa hátíðahöldin 1. mai, að kommúnistar voru staðráðnir í því að koma á klofningi. Fulltrúa- ráðið kaus 1. maínefnd 5. apríl s.l. og tók nefndin strax til starfa. — Voru éins og venja er til kosnar ýmsar nefndir svo sem kröfugöngu- nefnd, skemmtinefnd og merkja- nefnd. Guðmundur J. Guðmunds- son var kjörinn formaður krörn- göngunefndar og skyldi hann því kalla hana saman til fundar. Þaff hefur verið venja undanfarin ár að halda marga fundi í kröfu- göngunefnd en Guðmundur J. kallaði aldrei saman fund í nefnd inni nú til þess að unnt væri að fjalla sameiginlcga um ávarp. Guð- mundur kallaði ekki saman fund í nefndinni fyrr en hann hafði þeg- ar samið, ásamt öðrum kommún- istum ávarp og var það þá lagt fyr ir nefndina 27. apríl en þá fyrst lét Guðmundur halda fund í nefnd- inni. Jón Sigurðsson, sem einnig var í nefndinni lagði þá fram upp- kast að öðru ávarpi. Daginn eftir var enn haldinn fundur í nefnd- inni og kom þá Guðmundur J. með nýtt ávarp þar eð honum hafði orðið það Ijóst, að hið fyrra var Framhald á 3. síðu. RÍKISSTJÓRNIN hefur heimilaS sölu á bræðstusíld til Noregs, eftir beiðni útvegsmanna. Fyrirhugað verð er 15 aurar norskir fyrir kílóið éða um 90 aurar íslenzkir. Leyfið gijdir fyrir síld, sem veidd er í maímániiði. Margra daga iöndunarstöðvun er nú sunnanlands og vestan, en Faxafló- inn fullur af síld. Löndunarstöðvunin nú er mjög bagaleg fyrir tugi báta, sem ætl- uðu á síldv'eiðar til að bæta sér upp lélega vetrarvertíð. Þeir bát- ar, sem byrjaðir voru veiðarnar verða yfirleitt að bíða í vikutíma áður en þeir komast út aftur. Dæmi eru jafnvel um, að bátar hafi þurft að henda allmiklu af síld. Faxaflóinn er fullur af síld, en aðstaða ekki í landi til að nýta afl- ann. Þess vegna hafa útgerðar- menn óskað eftir því að fá að selja síldina til Noregs. Útflutn- ingsverzlun Bernharðs Petersen hefur unnið að sölunni, en viðræð- an veg til Noregs heldur en til hinna afkastamiklu verksmiðja á Siglufirði. Aðra ályktun er ekki hægt að draga, því allar verk- smiðjur SR á Siglufirði hafa ver- ið óstarfhæfar í 8 mánuði og ekk- ert gert til að taka á móti Faxa- síld, þrátt fyrir löndunarstöðvanir iðulega í vetur. Undanfarin tvö ár hafa miklar breytingar orðið á síldveiðum ís- lendinga. Stjórn SR virðist ekki hafa fylgzt með þeirri þróun. um við Norðmenn mun ekki lokið ennþá. Fyrirhugað verð er 15 aurar norskir á kíló, eða um 90 aurar islenzkir. Það er heldur hærra verff en fæst fyrir síldina til bræðslu hér heima. Verffmunurinn er þó aðeins fyrir útflutningsgjöld um og öðrum gjöldum í því sam- bandi. Útgerðarmenn og aðrir eru mjög undrandi yfir því, að það borgi sig betur að flytja út síldina um lang BLAÐ I vmUá&Íí.*, Fjðlmennið á útifundmn á Lækjartorgi í dag!

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.