Alþýðublaðið - 01.05.1962, Síða 4
Skátasveit
fatlaðra og
iamaðra
EINS OG mörgum mun vera
kunnugt, er starfandi nér í
Reykjavík skátasveit fyrir fötluð
börn.
Þetta starf er að vísu á byrj-
-unarstigi, en hefur þó nú þegar
gefið góða raun. Að minnsta
kosti hefur það gefið þeim bórn-
ura, sem þarna starfa, margar á-
nægjustundir, og það sem meira
virði er, það hefur sannað þeim,
að þau eru alls ekki útilokuð né
óhlutgeng í skátastarfi, þó þau
hafi ekki fulla líkamshreysti.
Öil sjálfsbjargarviðleitni er
nauícynleg, og þá ekki hvað sízt
þei.n, sem skortir heilbrigði á
einlivern liátt. Það sem öðrum
reynist ókleyft, getur annar fram
kvæmt. T. d. þeir sem ef til vill
ekki geta notað fæturnar, eru
k duglegri við allt, sem hægt er
að vinna með höndunum, Svo
eru þeir, sem af einhverjum á-
stæðum ekki geta notað hend-
urnar, oft skýrari í hugsun,
minnugri, o;rðheppnari o. s. frv.
Það verður að laða fram og
þroska það sem hverjum og ein-
um er eðlilegast og auðveldast.
Skátastarfið gefur marga mögu-
leika á þessu sviði, enda eykst
skátastarf meðal vanheilla barna
ár frá ári víðsvegar um heim.
Þá er ekki að neitá, að svona
starf krefst sérstakrar umönn-
unar þeirra skáta, sem alheilir
eru. Það er því þroskavænlegt
fyrir þá, og gefur þeim ótal tæki
færi til þess að láta gott af sér
leiða, og greiða götu þeirra, sem
minni máttar eru. Sannleikur-
inn er sá, að báðir aðilar gera
sitt gagn hvor í annars garð.
í Reykjavíkursveitinni munu
nú vera 15 börn, bæði stúlkur og
drengir. Þau eru mörg áhuga-
söm, og eru ótrúlega dugleg,
bæði við prófin, fundarsókn og
útilegur. Auðvitað verða þau aö
hafa fieiri foringja, en aimennt
er hjá öðrum skátum, þar sem
þau þurfa sérstakrar hjálpar við,
t. d. við skriftir o. fl. En engum,
sem hefur séð þessi börn á skáta-
fundi eða útilegu, blandast hug
ur um það, að þau eru alsæl að
geta verið með. Það hefur opnast
þeim nýr heimur leikja og æfin-
týra, þau hafa eignast stóran
hóp vina, sem ekki einungis eru
leiðbeinendur þeirra, heldur og
félagar.
Til þess að standa straum af
kostnaði við þetta starf, bæði til
að efla foringjamenntun og ann-
að, hefur Reykjavíkursveitin,
sem kallar sig „Hirti”, kaffisölu
í Skátaheimilinu þriðjudag 1.
maí n. k. Þar verður selt kaffi,
mjólk, öl og gosdrykkir, og 'svo
auðvitað ótal tegundir af góm-
sætum dieimabökuðum kökum,
sem skátar og aðrir velunnarar
sveilarinnar eru góðfúslega
beðnir um að gefa. Vonandi fjöl-
menna svo menn á kaffisöluna
og kaupa jafnvel sínar eigin kók
ur. Sala hefst kl. 3 e. h. Munu þá
Hirtirnir ásamt sínum liðsmönn-
um taka óspart til starfa.
Það er ósk mín og von, að
skátastarfið geti stuðlað að auk
inni lífsgleði vanheilla barna, og
fært þeim lieim sannin. um það,
að þau eru á allan hátt hlutgeng
og blátt áfram nuðsynleg í skáta
starfinu. Það hlýtur ætíð að vera
takmarkið, að Það nái til sem
flestra með sín göfgandi og hress
andi áhrif. „Allir skátar eru góð
ir lagsmenn."
Hrefna Tynes
Hún fékk
ókeypis
Elna-vél
JÓHANNA Sigurðardóttir
Grindavík, datt aldeilis I
lukkupottinn í vikunni, sem
leið. Þegar hxin ætlaði að
festa kaup á Elna-saumavél
hjó Heildverzlun Árna Jóns-
sonar h.f., var henni tilkynnt
að hún fengi Vélina að gjöf.
Tilefnið var, að þetta var
1000. Elna-vélin, sem fyrir
tækið selur frá því í júní
1960, er þær komust á frí
iista. Áður höfðu selzt hér um
3000 vélar þannig að um 4000
Elnasaumavélar eru í notkun
í landinu.
Þegar Elnasaumavélin kom
á markað árið 1$46, vakti hún
mikla athygli, og var m.a. get
ið í blöðum liér. Það hafði
engum dottið í hug, að unnt
væri að framleiða saumavél
sem ekki væri stærri en ferða
ritvél, en þó fullkomin og
auðveld í notkun. Síðan hafa
Tavaroverksmiðjurnar í Genf
Sviss ávallt verið aö endur
bæta þessar saumavélar með
mjög góðum árangri.
Elna-Supermatic saumavél
in saumar hvaða efni sem er
bæði þunnt og þykkt, auk
fjölda mismunandi sauma,
bróderar, húllsaumar og gerir
tugi tegúnda skrautsaums
með því einu að skipta um
munsturskífu, sem settar eru
í vélina.
Mjög auðvelt er fyrir hvern
og einn að læra á Elna-vél.
Heildverzlun Árna Jónssonar
gefur lcaupendum þeirra kost
á námskeiði í notkun, sem
Kristín Kristjánsdóttir stjórn
ar. Elna-búðin í Aðalstræti 7
var opnuð í júní 1960. Þrjár
tegundir saumavéla er þar
um að ræða, á kr. 7400-9500
Verzlunarstjóri er Birgir
Magnússon.
Myndin er tekin í Slnaþ
búðinni á laugardag. Árni
Jónsson afhendir Jóhönnu
vélina, sem hún fékk að gjöt'.
4 1. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Mesti
gróði
Steel
U. S. STEEL, stálframleiðslu-
fyrirtækið í Bandaríkjunum,
sem fyrir skemmstu kallaði
yfir sig sem mesta reiði Ken-
nedys forseta vegha hækkun-
ar sinnar á verði stáls um
3 VÍ! % og varð að hvcrfa frá
þeirri ákvörðun, hefur nýlega
tilkynnt fjárhagslega stöðu
sína eftir fyrsta ársfjórðung
1962.
Gróði félagsins á ársfjórð-
ungnum var $55.808.436 eða
rúmlega 2500 milljónir kró^ia
af seldri framleiðslu upp á
$978.219.633 eða um 4,5 millj-
arða króna, og er þetta nærii
tvöfaldur gróði miðað viö
sama tímabil s.l. ár.
Eftir að forgangs-ágóða-
hluta er úthlutað þýðir þetta,
að gróðinn er 91 se,it á hvert
almennt lilutabréf í félaginu,
sem er 47 sentum meira en á
sama tíma í fyrra. Þessi ágóði
er meira en nægjanlegur til
að greiða þann 75 senta á-
góða á hlutabréf, sem verið
hefur regla hjá félaginu að
greiða undanfarin ár eöa frá
1957. Á það má beuda, að í
fyrra nægði gróðinn ekki fyr-
ir ágóðalilutanum, en hann
var greiddur samt.
Þetta er mesti ársfjórð-
ungsgróði félagsins síðan á
öðrum ársfjórðungi 1961, þcg
ar U. S. Steel græddi sem
svaraði 98 sentum á hluta-
bréf. Hins vegar er þetta
miklu minna en á fyrsta árs-
fjórðungi 1960, þegar gróð-
inn var 1,97 dollarar á bréf.
í yfirlýsingu stjórnarinnar
er enn á þaö bent, að ágóði fé
lagsins sé aðeins nægilegur
til að greiða ágóðahluta og
skuldir, en ckkert sé eftir til
að verja til endur-fjárfesl-
ingar í félaginu til endurnýj-
unar o. s. frv. Þörfin á aukn-
um gróða til slíkrar endur-
nýjunar vegna aukinnar sam-
keppni erlendis frá var gefin
sem ein aðalástæðan fyrir því,
að félagið þyrfti að hækka
verð sitt hér á dögunum. Fc-
lagið sýndi hins vegar aldrei
fram á, hvernig það mundi
bæta samkeppnisaðstöðuna
gagnvart innfluttu stáli og
hækka verðið.
Loks má benda á það, að
það kostar félagið um $47
milljónir að greiða allan á-
góðahluta á ársfjórðungi, þar
sem hins vegar að gróðinn var
nálega $56 milljónir.