Alþýðublaðið - 04.05.1962, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 04.05.1962, Qupperneq 1
Almenna, Phil & 43. árg. - Föstudagur 4. maí 1962 — 100. tbl. SJÓMANNAFÉLAG Reykjavík- ur hafði fund í gærkvöldi til að ræða málamiðlunartillögu sátta- semjara í togaradeilunni. Sam- þykkt var tillag'a á fundinum að skora á togaramenn að felia sátta- tillöguna. í byrjun fundarins ræddi og skýrði Jón Sigurðsson, íormaður félagsins, sáttatillöguna. Á eftir Framhald á 14. ÍISÍL óánægja er nú meðal fólks í Laugaráshverfi vegna þess, að æílunin er að setja upp áfengisútsölu í miðju íbúða- hverfinu. Er verið að innrétta nýja áfengisútsölu í verzlunar- húsnæði á horni Sundlaugar-- vegar og Laugarásvegar. Skýrði Jón Kjartansson forstjóri Áfeng isverzíunar rikisins blaðinu svo frá í gær, að væntanlega yrði hin nýja áfengisútsala opnuð í þessum mánuði. —Myndin var tekin í gær og sýnir börn við' nýju áfengissöluna. Alþýðublaðið hefur frétt, að mikil ólga sé meðal íbúanna í liverfinu vegna þessa, það óttast milcinn samsafnað kringum hina nýju áfengisútsölu, jafnvel það, að „rónar“ safnist þarna að, þar eð autt svæði er fyrir neðan og aðstæður ekki ósvipaðar og á Arnarhóli, þar sem áfengissjúkl ingar hafa löngum átt athvarf. Skammt frá þessum stað voru til skamms tíma lækningastofur, þ. e. á Langholtsvegi 84, þar sem Holts Apótek er. Lækn- ingastofurnar þar hafa ekki ver- ið starfræktar um skeið og því hafa ýmsir bent á, að gott hefði verið að fá lækningastofur í hús næði þvi, sem nú er verið að innrétta fyrir áfengissölu. En borgarstjórn Reykjavíkur hefur ekki gert ráð fyrir lækninga- stofum í úthverfunum. Virðast áfengisútsölur nú ætla að halda innreið sína í þau í staðinn. 8— B i’íjthtííí''hííi»»tfi" Blaðið hefur hlerað AÐ þegar Kiljan kom að utan í gærmorgun, liafi beðið hans á pósthúsinu — fjórir sekkir af pósti! PS. — Vjð erum með síma- viðtal við skáldið á baksíðu. VILJA Reykvíkingar áfengis- útsölur í íbúðahverfum borgar- innar? Óska þeir eftir opnum áfengissölum og þeirri umferð sem þeim fylgir, þar sem börn eru að leik og unglingar fara imi alla daga? Þessar spurningar vakna við þá frétt, að Tóbaks- og áfengis einkasala ríkisins muni innan skamms opna útsölu á horni Sundlaugavegar eg Laugarás- vegar, í miðju eins stærsta í- búðahverfis borgarinnar. Alþýðublaðið mótmælir opn- un þessarar útsölu. Blaðið er þess fullvisst, að íbúar í ná- grenni við þennan stað, ekki sízt húsmæður, taki undir þau mótmæli. Þarna er mikil um- ferð barna og unglinga. — Skammt frá er íþróttamiðstöð Reykjavíkur í Laugardal og mikil umferð æskufólks þangað. Rétt hjá er dvalarheimili aldr- aðra sjómanna. Á þessum stað hefði verið til- valið að koma upp lækninga- stofum, sem brýn þörf er á í íbúðahverfunum. Læknir, sem setti upp stofn á slíkum stað, mundi fljótlega fá mikil við- skipti og vinsældir. Þarna hefði einnig getað verið tómstunda- heimili fyrir æskufólk hverfis- ins. í þess stað kemur áfengisút- sala. líingað til hefur þótt nóg að liafa útsölur í miðbænum eða .Framhald á 12. síðu. Sön munu byggja Þorlákshafnarhöfn í FYRRAKVÖLD var ákveöið a3 taka ' tilboði Aimenna byggingafé- lagsins h.f. og Phil og Son í Kaup- mannahöfn um byggingu hafnar I Þoriákshöfn. Tilboð þessara tveggja fyrirtækja, sem gerðu sameiginlegt tilboð, var upp á rúmiega 40 mill- jónir. Ráðuneytið hefur ekki enn sám- þykkt hina gerðu samninga, en sú samþykkt mun ekki langt undan. Þrjú fyrirtæki gerðu tilboð í verk- ið, en tilboð Almenna bygginga- félagsins og hins danska fyrirtæk- is reyndist hagkvæmast. Undirbúningsvinna hefur farið fam allt frá því í fyrrahaust á Vita- og hafnarmálaskrifstofunni í Reykjavík og einnig í Vestur- Þýzkalandi, þar sem gerðar hafa verið modeltilraunir með brhn- styrkleika og sandbúrð með ný- tízkulegustu aðferðum. í ráði mun vera að hefja verkið á komandi sumri, en þegar Alþýðu- blaðið ræddi í gær við vitamála- stjóra og Árna Snævarr, sem er aðalverkfræðingur hjá Almenna byggingafélaginu, vildu Jieir ekki gefa nánari upplýsingar um málið, að svo stöddu. SAMÞYKKT AÐ FELLA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.