Alþýðublaðið - 04.05.1962, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 04.05.1962, Blaðsíða 3
Kínverjar ræða við Pakistan NYJA DELHI og KARACHI, 3. maí. (NTB—REUTER) HERMENN Indverja í varöstöðv nm í Ladakh-héraði eru við öllu búnir ef ske kynni að her- sveitir frá kínverska alþýðulýð- veldinu gerðu tilraun til þess að fjarlæg-ja þá. Þetta var upplýst í Nýju-Delhi í dag. Kínverjar hafa hótað því, að ef þrjár varðstöðv- a,r sem ligrgja að baki landamæra- línu þeirra, er þeir sjálfir hafa lagt , verði ekki lagðar niður muni kínversku hersveitirnar sjá sig tilneydda til að leggja til at- lögu og hrekja Indverjana burtu. Jawahalal Nehru forsætisráð- herra sagði í indverska þinginu í dag, að alvarlegt ástand hefði skapazt vegna úrslitakosta Kín- verja, sem þeir afhentu í Nýju- Delhi hinn 30. apríl. Hann sagði, að indversku hersveitirnar yrðu kyrrar þar sem þær væru og mundu ekki flytja sig vegna hót- ana Kinverja. Texti kínversku orðsendingar- innar frá 30. apríl var birtur í Peking sl. miðvikudag. í fréttum frá Karachi segir, að kínverska alþýðulýðveldið og Pak- istan hafi orðið sammála um að ákveða með samningum landa- mæri landanna í von um Iausn á deilu Indverja og Pakist- anbúa um Kasmír-hérað. llWMMMWWWWWWWW Kunni Kiljan utan bókar ★ FELAGIÐ Sovétríkin—Is- land efndi til samkomu í Vin- áttuhúsi í Moskvu hinn 23. f. m., og var tilefnið sextugs- afmæli Kiljans. Á samkomunni gcrðist það meðal annars, aó' ‘e.ézkur rithöfundur flutti kafla úr Sjálfstæðu fólki, og kom á daginn, hann kunni kaflann utanbókar. Þá voru ræður fluttar fyrir minni sltáldsins, og að Iokum sýi lar tvær kvikmyndir frá ís’andi, önn- ur tekin af Rússum en hin af íslendingum. Sendiherra íslands í Mosk- vu var viðstaddur samkont- una. WWWWWHWIiMWWIWWWWI Þetta var tilkynnt í Karachi í dag. Þegar Kasmír-deilan er úr sögunni munu samningaviðræður um formlegan samning Pakistans og kínverska alþýðulýðveldisins verða teknar upp að nýju. Samkvæmt diplómatískum heim ildum í Iíarachi er tilkynningin um landamæraviðræður mjög mik- ilvæg þar eð þessar viðræður muni enn bæta sambúð landanna, sem sé betri en nokkru sinni. Indverska stjórnin hefur mótmælt harðlega samningaviðræðum Kína og Pak- istan þar eð þær fjalli um norð- urlandamæri Kasmírs, þ. e. a. s. landamæri héraðs, sem sé ind- MOCH birtist óvænt Genf, 3. maí. (NTB-Reuter). UNDIRNEFNDIN, sem starfar í1 vandamálinu um bann við tilraun um með kjarnorkuvopn, hóf aftur viðræður sínar í Genf í dag, eftir fimm daga hlé. Það eru fulltrúar Breta, Bandaríkjamanna og Rússa, sem sæti eiga í nefnd þessari, og ræddust þeir við í hálfa aðra klukkustund án þess að ná sam- komulagi um annað en það, að hittast aftur á þriðjudag í næstu viku. U Thant, aðalframkvæmdastjóri I SÞ, var viðstaddur allsherjarfund- inn á ráðstefnunni í dag og harm aði. að ráðstefnunni hefði ekki tekizt að gera samning um til- raunabann. Mesta furðu vakti á ráðstefn- unni. að Jules Moch, afvopnun- armáiasérfræðingur Frakka, birt- ist í salnnm, en að vísu aðeins á áhevr««ndapöllum. Sæti Frakka á ráðstefnunni hefur staðið autt síð- an hún hófst. -Mooh studdi það sjónarmið Rús=a. að tæki til þess að flytja kiarnorkuvonn yrðu eyðilögð, en það kvað hann upphaflega hafa veríð franska hugmynd. verskt yfirráðasvæði. Er sagt, að landamæravandamálin sé aðeins hægt að leysa með viðræðum Ind- verja og Kínverja. STIKKER HAFNAR GRIOASÁTTMÁ Aþenu, 3. maí. (NTB-Reuter). DIRK STIKKER, aðalritari sagði á blaðamannafundi, áður en vor- Segni sigur- stranglegur Róm, 3. maí. (NTB-Reuter). ENN tókst ekki að kjósa for- seta ítalska lýðveldisins í dag. í ljós kom eftir fjórðu atkvæða- greiðslu þingmanna fulltrúa- og öldungadeilda þingsins, að hvor- úgur hinna tveggja helztu fram- bjóðenda liafði náð hreinum meiri hluta, sem tilskilið er. Segni, fyrrverandi utanríkisráð- herra, sem er frambjóðandi Kristi lega demókrataflokksins, fékk 354 átkvæði í fjórðu atkvæðagreiðsl- unni, og foringi Jafnaðarmanna- floklcsins, Saragat, 321 atkvæði. Frambjóðendurnir urðu að fá 428 atkvæði til þess að ná kosningu. Síðdegis á föstudag verður 5. atkvæðagreiðslan háð. *Þá verður einfaldiu- meirihluti látinn nægja. STIKKER OAS-árás á 14, hæð í stórhýsi Sæmilegur afli t svik, 3. maí. EÁTARNIR hafa aflað sæmilega undan^arna daga, og fengið upp undir 30 tonn í róðri, en að vísu hefur fiskurinn verið tveggja nátta. Bátarnir hafa mokað upp síld. Einnig hefur veiðzt talsvert af þorski, og afli handfærabáta hefur verið sæmilegur. ALGEIRSBORG og ORAN, 3. maí (NTB—REUTER) ÞRJÁR gífurlegar sprengingar eyðilögðu i dag 14. hæðina í ný- tízku byggingu í miðhluta Óran, þar sem stjórn lögreglunnar hefur skrifstofur sínar. Voru OAS- hryðjuverkamenn hér að verki, og sprengingarnar áttu sér stað tæpum tveimur sólarhringum eftir að nýi lögreglustjórinn, Rene Thomas, kom tii Oran að taka við stöðu sinni. Alls tíu sinnum áður hafa sprengjuárásir verið gerðar á byggingu lögreglustjórnarinnar, en aldrei eins Öflugar og nú. Ekki er ljóst hvernig OAS-mönnum hefur tekizt að koma sprengjun- um fyrir þar sem byggingarinnar hefur verið stranglega gætt af ótta við sprengju tilræði OAS- manna. Mörg skjöl eyðilögðust í sprengingunum, og sprungu þau bókstaflega út um glugga og vegi í skrifstofu lögeglustjórans á 14. hæð. Þrátt fyrir víðtækar öryggisað- gerðir og húsleitir á stöðum, þar sem grunur leikur á að OAS-menn hafi hreiðrað um sig héldu hermd arverkin áfram í dag. Samkvæmt opinberum upplýsingum biðu 112 manns bana og 147 sæi'ðust í liin- um blóðugu hryðjuverkum á mið- vikudag. Átján manns biðu bana á fimmtudag, en 13 særðust. Menn úr alsírska þjóðfrelsis- hernum myrtu í dag níu Marokkó- menn, þ. á m. fjögur börn og tvær konur, þar eð þau neituðu að hlýðnast skipun FLN um að flytja burtu frá bóndabæ einum við Sidi Bel Abbes þegar húsið, sem þau bjuggu í, var brennt. AFP hermir, að heilar sveitir Serkja, sem gegnt hafa herskyldu í franska hei’num, hafi strokið á Óran-svæðinu og tekið hergögn með sér. Einnig er tilkynnt um lið- hlaupa í Vestur-Alsír, en ekki eins marga. fundur ráðherranefndar NATO hófst í Aþcnu í dag, að það værl skoðun sín, að griðasáttmáll NATO og Varsjárbandalagsins væri ónauðsynlegur. Andúð aðalritarans á hugmynd- inni um griðasáttmála munu hafa vakið reiði ýmissa aðila innan NATO. Bæði brezka stjórnin og sú bandaríska eiga nefnilega að hafa tekið hugmynd þessa upp, og hún á einnig að vera liður í þeirri skip- an mála í Berlín, sem Dean Rusk utanríkisráðherra reynir að fá sov- étstjórnina til þess að fallast á. Stikker aðalritari sagði ennfrem ur, að hann teldi ekki að nein á- kvörðun yrði tekin um eigin kjarn- orkuher NATO. — Viðræðurnar næstu daga munu væntanlega fæi’a okkur nokkuð áleiðis í dýpri skilningi á vandamálinu og færa þar með lausn á þetta mjög svo erfiða vandamál, sagði lxann. Sagt er, að brezka stjórnin ei?t heiðurinn af tillögu um kjarnorku vopnamál NATO, sem franska stjórnin muni hvorki styðja né snúast gegn. Tillaga þessi mun vera í þrem liðum: 1. Bandaríkin munu veita banda- mönnum sítium upplýsingar um birgðir sínar af kjarnorkuvopn- um í Evrópu. 2. Bandaríkjamenn munu gefa tryggingu fyrir því, að þeir muni ráðfæra sig við NATO áð- ur en beir flytji kjarnorkuvopn frá Evrópu. 3. Bandaríska stjórnin mun marka stefnuna varðandi notkun banda rískra kjarnorkuvopna í vissum kringumstæðum. UNNIÐ var að því í gær að landa úr þeim síldarbátum, sem lágu í Reykjavíkurhöfn. Því verki átti að ljúka í gær- lcvöldi. Flestir bátanna munu ekki fara út aftur, og fer m. a. einn í slipp til hreinsunar og lagfæringar. Nokkrir síldarbátar voru að veiðum í fyrradag og fyrri nótt, og öfluðu þeir sæmi- lega. Þó er svo komið að margir bátar stunda ekki veið ar af ótta við að sitja uppi með aflann. mWWtM%WWtWWMMMWWM%tWWWWWWWMW*WM*W*W Telja Faxa- síld of dýra ÁLASUND, 3. maí (NTB) BLAÐIÐ „Sunnmöre Ar- beideravis” upplýsir, að það verði varla tímabært að flytja síld frá Faxaflóa við ísland til norskra síldarverksmiðja. Viðræður hafa farið fram um málið, en samningsaðiljar ekki náð samkomulagi. Verð- ið verður sennilega of hátt fyrir norsku verksmiðjnrnar. íslendingar krefjast nefni- lega kr. 14.50 á hektólítra, og norsltu verksmiðjunum finnst það varla borga sig að greiða svo mikið. Hér við bætast svo flutningsgjöldin, og þá verð- ur verðið rúmar 22 kr. Fitu- magnið í Faxasíldinni er ekki meira en 6 — 8%, sem er u. þ. b. það sama og í norskri vorsíld. Aftur á móti eru möguleik- ar fyrir hendi fyrir norska fiskibáta að veiða í Faxaflóa. Bátarnir yrðu þá að vera bún ir kraftblokkum. WWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWVWtvWWWWMV ALÞÝÐUBLAÐIÐ 4. maí 1962 3 1» •

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.