Alþýðublaðið - 04.05.1962, Blaðsíða 2
fíltstjórar: GIsli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AðstoSarrilstjóri:
IBjörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 —14 902.— 14903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
€—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
94 kílómetrar
ÞAÐ ERU 94 klíómetrar af malargötum í Reykja
vík í dag — götum sem ekki þættu sæmandi nú-
tíma bæjarfélagi í nokkru landr nema á íslandi.
Þrír fimmtu hlutar af öllu gatnakerfi borgarinnar
eru í því bráðabirgðaástandi, sem verður að pollum
og aur í rigningum en sendir moldrykið í vit manna
og inn í íbúðir, þegar þurrt er.
Sómasamlegar götur eru alls staðar taldar frum
stæðasta framkværnd bæjarfélags, og víða um
lönd eru göturnar malbikaðar áður en húsin eru
byggð. Hér á Iandi hefur þetta mál setið á hakan-
um. Og nú finnur meirihluti Sjálfstæðismanna, að
fólkið muni ekki þola þetta lengur. Starfslið bæjar
ins er sett í gang, áætlanir gerðar, stórar tölur skrif
aðar upp og tilkynnt, að Mjóahlíð verði malbikuð
• 1963. Ægissíða 1964 og meirihluti allra gatna í bæn
um 1965—68. Þetta á að vera huggun fyrir bæjar-
búa.
Alþýðublaðið vill fyrst og fremst benda Reykvík
ingum á, hversu dýr vanræksla stjórenda bæjarins
á þessu sviði mun verða þeim. Vegna dýrtíðar hef
■ur kostnaður við framkvæmdirnar farið sífellt
hækkandi undanfarin ár. Þess vegna kostar malbik
un eða steyping gatna nú og næstu ár miklu meira
en hún hefði kostað, ef göturnar hefðu verið lagð-
ar á réttum tíma. Á þennan hátt mun g'etuleysi bæj
arstjórnarinnar í gatnamálum kosta bæjarbúa a.m.
k. 2—300 milljónir króna.
Borgarstjóri hefur valið rétta leið, er hann lét
gera fasta áætlun um malbikun og steypingu 94
kílómetranna. Þýðir ekki annað en ráðast á verk-
efnið af skipulögðum krafti, enda verða komnar
nýjar götur svo nemur tugum kílómetra og þörf á
breikkun annarra árið 1972. En mikið mega vinnu
brögð bæjarstjórnarinnar breytast til batnaðar, ef
staðið verður við þá áætlun, sem birt hefur verið.
Ekki mun veita af góðu aðhaldi, og það aðhald geta
borgararnir veitt með'því að efla ábyrga og lýð-
ræðislega andstöðu innan borgarstjórnar.
Hvgö segir Einar?
í HÁTÍÐAHÖLDUNUM 1. maí tók Tíminn af-
stöðu með kommúnistum. Blaðið skoraði á Fram-
sóknarmenn að sækja fund kommúnista og fylkja
sér undir merkin gegn samstarfi lýðræðisríkja og
gegn efnahagsbandalagi. Eftir hátíðahöldin var
Tíminn ánægðari með sig en sjálfur Þjóðviljinn.
í tilefni þessai’ar afstöðu, sem vakið hefur at-
i hygli Reykvíkinga, vill Alþýðublaðið beina þeirri
fyrirspum til efsta manns Framsóknarlistans í
^ Reykjavík, hvort hann sé samþykkur þessari stefnu
e og hvort þetta þýði, að hann muni ætla að styðja
J kommúnista sem borgarstjóra, ef tækifæri gæfist.
Bæjarbúar bíða svars.
Happdrætti Krabbameinsfélagsins
vekur almenna athygli vegna hinna glæsilegu
vinninga, sem í boði eru:
LANDROVER og HJÓLHÝSI.
KR. 25.00 kostar miðinn.
Vinningar skattfrjálsir.
Dregið í næsta mánuði.
Styrkið gott málefni.
HANNES
Á HORNINU
★ Eru Svíar uppgefnir?
★ Málspilling fer í xöxt.
★ Eru blaðamenn að búa
til nýtt mál.
★ Bjarni Einarsson og er-
indi hans.
BJARN'I EINARSSON magister
talar um íslenzkt mál í útvarpið
eins og kunnugt er. Hann sagði ný-
lega, að hann áliti ekki að það
vaeri mjög hættulegt fyrir hrein-
leika íslenzkrar tungu þó að ein-
staka sinnum væri slett erlendu
orði. Hann orðaði þetta þó ekki á
þennan veg en þetta lá í orðunum.
Hitt væri hættulegra hversu það
færi í vöxt, að íslenzk orðatiltæki
væri misnotuð og jafnvel viðliöfð
í gagnstæðri merkingu.
ÉG ER BJARNA algerlega sam-
mála., en það ber nú einmitt mjög
á því, sérstaklega í blöðunum, að
málspillingin að þessu leyti fari
í vöxt. Þetta hlýtur að stafa af því,
að blaðamenn skorti tilfinningu fyr
ir málinu. Það er ekki góður vott
ur^ um árangurinn af námi og
skólagöngu. Svo virðist, sem engln
eða lítil áherzla sé lögð á íslenzku
kennslu í skólunum.
MÉR DATT þetta í hug í gær
þegar ég las grein í Tímanum. Þó
skal ég taka það fram, að það er
mjög langt frá því, að Tíminn sé
verr skrifaður en önnur blöð, að
ýmsu leyti er hann betur skrifaður.
Á fyrstu síðu er grein sem sagt er
frá því, að rannsóknir bendi til
þess, að íslendinga skorti mjög
þrek miðað við aðrar þjóðir, og
þá fyrst og fremst Svía.
OG SVO KEMUR þessi furðu-
lega setning: „ ... Að visu eru Sví
ar þjóða þrekaðastir samkvæmt
þessum mælingum ... “ Blaðamað-
urinn heldur bersýnilega að orðið
þrekaður þýði þrekmikill. En það
þýðir: algerlega uppgefin. — Það
er skelfilegt að sjá svona lagað.
Hvar hafa menn, sem þannig skrifa
lært málið? Hér væri hægt að
nefna fjölda dæma úr öllum öðrum
blöðum. En þetta nægir í dag.
PÉTUR SKRIFAR: „Alltaf, þeg-
ar ég get því við komið hlusta ég
á erindi Bjarna Einarssona cand.
1 mag. um „daglegt mál“. Mér líka
þessi erindi ágætlega og svo mun
um marga fleiri, því hann segir
afdráttarlaust hvað hann telji rétt
og hvað rangt af þeim orðum og
orðatiltækjum, sem hann tekur til
meðferðar, en þetta viðist mér
meira virði, en bollaleggingar, sem
réttlæta hverskonar orðaskrípi.
í ÞESSU SAMBANDI dettur mér
í hug hvort það sé ekki fremur
ófrjótt og gágnslítið til fegrunar
íslenzkri 'tungu, allur sá eltinga-
leikur, sem höfundar íslenzku orða
bókainnar leggja stund á, til aS
safna að sér fágætum og oft lítti
skiljanlegum orðum og orðaskríp-
um. En þetta eru lærðir menn 03
vita þá sjálfsagt betur en ég að
hvaða gagni slíkur sparðatíningur
getur orðið.
Framk. á XI. síðu
<í <e> «•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Bíla- oS
l^ílpartasalan
Höfum til sölu m. a.: Mótor,
frambita, hásingu, hurðir,
skottlok o. fl. í Chevrolet
1947.
Hurðir, skottlok og húdd á
Dodge, Plymouth og Da
Soto ‘49—’52.
Samstæða, V8 mótor, gír-
kassi og fleira í Ford ‘47.
Samstæða, hurðir, gírkassi
og hásing í Humber ‘49.
Felgur, öxlar, kúplings-
pressur, mótora og gírkassa f
ýmsar gerðir ameríska bíla.
Seljum os tökum í umboðs
sölu bíla og bílparta.
Bíla- ©g
bílpartasalan
Kirkjuvegi 20. Sími 50271.
2 4. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ