Alþýðublaðið - 04.05.1962, Side 10

Alþýðublaðið - 04.05.1962, Side 10
Rrtstjóri: ÖRN EIÐSSON Afmæiismót Hauka í kvöld: Hraðkeppni í handknattleik í kvöld kl.. 8,15 efnir Knatt- spyrnuféíagið Haukar í Hafnar- Gabor kom- inn aftur UNGVERSKI þjálfarinn Gabor kom til Reykjavíkur í gær og þjálf ar frjálsíþróttamenn og konur ÍR í sumar. firði til afmælismóts í handknatt- leik að Hálogalandi. Alls taka 8 félög þátt í mótinu eða öll I. deild arliðin þ. e. a. s. Fram, FH, ÍR, KR, Víkingur og Þróttur. Einnig keppir Valur og að sjálfsögðu Haukar. Móti þessu lýkur svo annað- kvöld á sama tíma, en þá mun einnig fara fram leikur í meistara- flokki kvenna milli FH og íslands- meistara Vals. Ekki er að efa, að þetta getur Mistök kostubu mark Þessi mynd var tekin I leik Iandsliðs og pressuliðs í handknattleik á dögunum. Slæm sending varð til þess, að Gunnlaugur Hjálmarsson náði boltanum, Guðjón í markinu hljóp á móti Gunn- laugi, en hann henti knettin- um yfir hann í markið. wwwwwwwwwww ★ ÁSTRALSKI hlauparinn Elliott hefur lýst því yfir, að hann sé hættur állri keppni. „Áhuginn er horfinn“, sagði hlauparinn í viðtali fyrir nokkru. orðið hin skemmtilegasta keppni er félagið í miklum uppgangi nú, og mót með þessu fyrirkomulagi sérstaklega í handknattleik. For- eru mest spennandi. , | maður félagsins er Óskar Hall- Haukar urðu 35 ára í vetur og dórsson. Oerter kasfaði 60,50 m. Á FR J ÁLSÍ ÞRÓTT AMÓTI í Bandaríkjunum um síðustu helgi kastaði olympíumeistarinn A1 Oer- ter kringlunni 60,50 m. Það er langbezti árangur, sem hann hef- ur náð í greininni, en heimsmet Silvester er 60,72 m. Er yfirleitt búist við því, að hann bæti það á næstu vikum. ItWWWWWWWWtWtWWWWWWWWWWWW^tWWWVt) vwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww Knattspvrnan í sum E K K I leikur á tveim tung- um að sú íþrótt, sem mestrar hylli nýtur um gjörvalla heims byggðina sé knattspyrnan, — enda göfugust allra flokka- íþrótta. Senn fer knattspyrnu tíminn í hönd hérlendis. Knattspyrnuráð Reykjavíkur, sem fer með framkvæmd alla og yfirstjórn, bæði að því er til Reykjavíkurmótanna tek- ur og landsmótanna almennt, og þá í umboði KSÍ, hefur lokið við að skipuleggja mótin og ætla þeim stund og stað og ákveðið að fyrsti 'leikur- inn að þessu sinni skyldi hef j- ast sl. sunnudag, þ. e. 29. apríl i Knattspyrnumóti Reykja- víkur, en uppkom hlutur KR og Fram, tveggja elstu félag- anna. „En — þegar átti til að taka. Tóman fyrir hitti hann klaka”. Hér á þetta við, sem Grímur gamli Thomsen seg- ir í kvæðinu um Gretti og Glám. Eins fór fyrir KRR, það hitti ekki fyrir nema tóm- an klaka, er leiksvæðið — Melavöllurinn var athugaður, og gerði völlinn ófæran með öllu til keppni, á hinum á- kveðna degi. Var þá ekki um annað að gera, en fresta að- gerðunum um sinn, eða til næstkomandi sunnudags. 6. maí, en þá er ákveðið að Val- ur og Þóttur leiki og verður það fyrsti leikur keppnistíma- bilsins að þessu sinni. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma, mun það knatt- spyrnutímabil, er nú fer í hönd, verða eitt hið mesta og fjölbreytilegasta, sem um getur. í innanlandsmótum, allt frá 5. fl. til meistara- flokka munu leiknir á 4. hundrað leikir. Fyrsti stór- leikur sumarsins verður 17. maí — bæjarkeppni milli Akraness og Reykjavíkur, en sú keppni hefur jafnan vakið mikla athygli. í sama mán- uði og skömmu síðar. verður háður afmælisleikur ÍSÍ í til- efni 50 ára afmæli sambands- ins. Verður það fyrsti Ieikur sumarsins á Laugardalsvellin um. Hinn 26. maí hefst fyrsti leikur í I. deildinni — íslands mótinu, milli KR og ísfirð- inga, sem með svo eftiminni- legum hætti tóku sæti í deildinni á sl. ári, með hinum glæsilega sigri sínum yfir IBK. Síðan munu svo leikir I. deildarinnar skiptast á milli Reykjavíkur, ísafjarðar, Ak- ureyrar og Akraness, svo sem vera ber. Auk innanlands- mótanna verður mjög mikið um heimsóknir erlendra flokka, svo sjaldan hefur ver- ið annað eins. Bæði landsleik- ir og heimsóknir til einstakra félaga. Til Víkings kemur tékkneskt unglingalið, mun hér ekki verða um lakara lið að ræða, en það sem síðast kom hingað á vegum Víkings frá Tékkóslóvakíu, var það' líka unglingalið, sem sýndi afburða knattspyrnu og hvarf af landi burt ósigrað. Tékkarnir koma hingað í júníbyr jun og lcika fjóra -■ leiki. Síðar í sama mánuði koma svo Danir til KR, lið frá Knattspyrnusambandi Sjá lands, en í því sambandi eru m. a. margir af snjöllustu leik mönnum dana. Danska liðið leikur þrjá leiki. Hinn 9. júlí fer fram fyrsti landsleikurinn á sumrinu, — verður það við Noreg. Einnig verður aukaleikur við Norð- menn. Á undan landsleikn- um verður háður Pressuleik- ur,s svo sem venja er. Annar landsleikurinn i röðinni verð ur við Færeyjar 3. ágúst, B- landslið íslands leikur gegn Færeyingum. Þriðji landsleik urinn verður gegn írska Frí- ríkinu, 2. sept. og íslenzka iandsliðið leikur svo síðar á haustinu við íra heima á ír- landi. Þá kemur hingað í heim sókn lið blökkumanna frá Hollenzku Antilleyjum og leikur hér einn leik, sem einnig telst landsleikur. Er þetta í fyrsta skipti sem ís- lenzkir knattspyrnumenn etja kappi við lið þeldökkra. En svertingjar eru margir hverj- ir í hópi snjöllustu knatt- spyrnumanna, svo sem kunn- ugt er. Leikur þessi mun fara fram á Laugardalsvellinum 16. sept. Auk þeirra heim- sókna, sem nú hafa verið tald- ar og eru vissulega ærnar, mun koma hingað um miðjan júlí liðið Haka frá Finnlandi, sem eru meistarar þar, og leika hér tvo leiki. Er í flokki þessum um 20 menn og ásamt 60 öðrum Finnum í skemmti- ferð og koma í eigin flugvél. Dvelja Fínnarnir hér í fimm daga. Er för þessi m. a. á veg um Finnska knattspyrnusam- bandsins og forseti þess einn af fararstjórunum. í tilefni af 50 ára afmæli Akureyrar hefur þess verið óskað af Akurevringa hálfu að KRR sæi sér fært að senda Iið norður til bæjarkeppni. Var að sjálfsögðu orðið við þessari ósk, og mun sú keppni, milli fjölmennustu bæja landsins fara fram á Ak- ureyri 26. ágúst. ■ Af þessu stutta yfirliti er augljóst, að mikið stendur tii á knattspyrnusviðinu í sum- ar. Auk móta og heimsókna hér fara nokkrir flokkar héð- an utan m. a. KR til Danmerk ur með meistaraflokk, Valur og Fram með II. fl. líka til Danmerkur og Víkingur með III. fl. til Færeyja. Öll I. deildar liðin í Reykja vik hafa æft af kappi í vetur innanhúss og nú undanfarið utanhúss, eftir því sem að- staða hefur leyft. Allmargir æfingaleikir liafa verið háðir og má væuta bess að reykvísk- ir knattspyrnumenn hafi ekki í annan tíma verið betur und- ir keppnistímabilið búnir, en að þessu s*nni. Öll hafa félög ia starfandi þjálfara, sem hafa unnið ötullcga að því að efla flofeka sína sem mest og búa þá sem bezt undir baráttu þá sem framv.ndan er, bæði að því er tckur til innanlands- keppninnar og keppni við hina erlendu gesti sem hing-. að hópast í sumar. EB MWWtWWWIWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWVIWWWtWWWWWWW^O’ MWWW%WWW««**- % Ijp 4. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.