Alþýðublaðið - 16.05.1962, Blaðsíða 10
Ritstjóri: ORN EIÐSSON
KR sigraðí Þrótt
2-0 í lélegum leik
ÞEIR, sem lögðu leið sína á völl-
inn sl. mánudagskvöld, og þeír
vorii ekki alifáir, þrátt fyrir storm
og kulda, til að sjá leik KR og
Þróttar, hafa sjálfsagt fæstir búist
við því, að Þróttur myndi standa
hinum knattliðugu KR-ingum
snúning, sem svo glæsílega „burst-
uðu” Val á dögunum, sem áður
hafði eftirminnilega sýnt Þrótti í
tvo' heimana, í fyrsta ieik mótsins,
urðu áreiðanlega fyrir vonbrigð-
urd, að þvi er leik KR snerti. Því
þrátt fyrir ótvíræðan sigur KR,
tvö mörk gegn engu, var
leikur liðsins í heild vart svipur
hjá sjón, miðað við leik þess gegn
VaL
KR-ingar skoruðu mörk sín í
fyrri hálfleiknum, i byrjun hans
VWWWWX
Frábær afrek
Adrian Matcalfe
UM síðustu helgi kepptu Ox-
ford og Cambridge í frjáls-
íþróttum á White City leik-
vanginum. Cambridge sigr-
aði í keppninni með 71 stigi
gegn 64. Mesta athygli vöktu
afrek Oxford stúdentsins
Adrian Metcalfe, sem sigr-
aði með yfirburðum í þrem
greinum. Hann hljóp 100
yds á 9,7 sek. 220 yds á 21,0
(jafnt hans bezta) — og 440
yds á 47,0 sek. Myndin er
frá 100 yds hlaupinu.
og undir lokin. I þessum hálfleik
áttu þeir gegn vindi að sækja og
honum allstífum, en þrátt íyrir
það sýndu þeir þá, sína beztu kafla
í heild.
Það var Ellert Schram, sem skor
aði fyrra markið, eftir snotran sam
leik og góða fyrirsendingu h. út-
herja. Skot Ellerts, af vítateigi,
fast og öruggt, sendi knöttiim boð
leiðis á markið. Þórður Þróítar-
markvörður, varpaði sér í veg fyr-
ir knöttinn, en of seinn. Knöttur-
inn þaut undir hann og ihn. Var
nú almennt búist við, að þegar
KR „væri komið í gang” fyrir
fullt og allt, yrði um mikið marka-
regn að ræða, þegar svona tækist
til áður, en hin sókndjarfa fram-
lína KR væri búin að „hita upp”.
En þrátt fyrir allt og oft harða
sókn frá KR, tókst ekki að bæta
marki við, fvrr en stuttu fyrir leik
hlé, eða á 40. mín. Það var v. út-
hcrjinn, hinn bráðefnilcgi Sigþór
Jakobsson, sem skoraði úr nær ó-
skothæfri stöðu, frá endamörkum,
en hann hafði heppnina með sér,
knötturinn kom í mið-framvörð
Þróttar og hrökk af honum og
inn.
Þróttur átti í þessum hálfieik
nokkrar sóknarglætur, en ekki
tókst þó að nýta þær. Hörkuskot
af alllöngu færi frá Hauki, úr
sendingu Axels Axelssonar, sendi
knöttinn yfir slá, og skömmu síð-
ar mistókst Hauki aftur, en úr
betra færi. Þá komst h. úth. eitt
sinn inn fyrir en var of seinn,
dró af sér, svo Heimir var fyrri
til og bjargaði með úthlaupi.
Drengjab
í Reykholtí
AKVEÐIÐ hefur verið að starf-
rækja sumarbúðir að Reykliolti í
Borgarfirði fyrir unglinga á aldr-
inum 10—14 ára. Að rekstrinum
standa íþróttabandalag Akraness,
Ungmennasamband Borgarf jarðar
og Héraðssamband Snæfells og
Hnappadalssýslu. Haldin verða
tvö námskeið, standa þau bæði
yfir í 40 daga.
Fyrra námskeiðið hefst 13. júni,
stendur til 23. júní síðara nám-
skeiðið hefst 25. júní, stendur til
7. iúlí.
Forstöðumaður sumarbúðanna
verður Sigurður Helgason skóla-
stjóri í Stykkishólmi og kennari á-
samt honum verður Helgi Hannes-
son sundlaugarvörður á Akranesi.
Ráðskona hefur Verið ráðin Stein-
þóra Steinsdóttii-, með nenni mun
starfa tvær stúlkur. Þá hefur ver-
ið ákveðið að á hvoru námskeiði
verði ráðnir tveir 16 ára ]<iltar,
sem verði kennurunum til aðstoð-
ar með því fyrir augum að þeir
fái þiálfun sem unglingaleiðbein-
endur.
Sumarbúðirnar verða reknar í
fyrirmynd Solmabúðanna í Her-
egi, sem eru fullkomnustu tírengja
búðir þar í landi. Sigurður Helga-
son dvaldi þar eitt sumar fyrir
nokkrum árum og kynnti sér starf
semina rækilega. í sumarbúoun-
um verða drengjunum kennd leik-
fimi, sund, knattspyrna og frjálsar
íþróttir auk þess verður farið mcð
þá í gönguferðir um nágrennið. —
Drengjunum verður séð fyrir lækn
isskoðun.
Allar upplýsingar varðandi nám
skeiðið munu þeir veita, Sigurð-
ur Helgason skólastjóri í Stykkis-
hólmi og Guðmundur Sveinbjörns
son skblastjóri í Stykkishólmi og
Guðmundur Sveinbjörnsson for-
maður íþróttabandalags Akr'aness.
Umsóknir skulu liafa borizt
fyrir 1. júní og sendast til iorstöðu
mannsins Sigurðar Helgasonar. —
Umsókriurn skal fylgja meðmæli
skólastjóra eða kennara.
IIEIMIR hefur ekki fengið á sig
mark í mótinu.
Almennt var búist við að KR
myndi í síðari hálfleiknum ná al-
gjörum tökum á mótherjunurn og
láta þá „kenna aflsmunar”, að því
er til hinnar almennu leiktii og
knattspyrnugetu tæki. Vindurinn,
sem þó hafði nokkuð lægt, var
þeim og hagstæður.
En þar var sem þróttarar kæmu
margefldir út á völlinn, eftir hlé-
ið. Hver einstakur leikmaður barð-
ist ótrauður og af dugnaði. Sóttu
þeir fast, að mótherjunum og unnu
þeim ekki stundargriða, til að
byggja upp samleik. Riðlaðist nú
mjög KR-liðið og náði eiginlega
aldrei neinum tökum á leiknuin.
FramL. á XI. tiíðu
er í kvöld
í GÆR skýrðum við frá því,
að námskeið ÍR myndi hefj-
ast á mánudag, en það var
rangt. Það hefst á Melavell-
inum kl. 4 í dag og er bæði
fyrir drengi og stúlkur. Leið
beinandi er Ilöskuldur G.
Karlsson ásamt beztu frjáls-
íþróttamönnum félagsins.
Bæjarkeppni Rvík
og Akraness frestað
BÆJARKEPPNl Reykjavíkur-
Akraness hefur verið frestað, en
megin ástæðan eru meiðsli þriggja
af beztu liðsmönnum Akurnesinga,
Þórðar Jónssonar, Jóns Leós og
Helga Hannessonar. Ekki hefur
verið ákveðið, hvenær keppnin fer
fram.
Björgvin
60,75m.
★ UM SÍÐUSTU helgi gekkst IF
Bromma fyrir móti á Stora Moss-
en í Stokkhólmi. Björgvin Hólm
tók þátt í spiótkasti og sigraði |
með 60,75 m. kasti.
Bezta afrek mótsins var 52,02 m.
í kringlukasti lijá Lars Ilaglund.
Urslitaleikur frönsku bikar-
keppninnar fór þannig, að Saint
j Etienne sigraði Nancy með 1
marki gegn engu. — Leikurinn
fór fram í París og meðal áhorf-
enda var de Gaulle.
★
Hér eru úrslit í þrem leikjnm
Mitropa-bikarkeppninnar, sem er
nýhafin. Bologna, Ítalíu, sigraði
Rauðu stjörnuna, Belgrad með 2
mörkum gegn 1. Atlanta og MTB
frá Búdapest gerðu jafntefli 0 — 0.
Juventus vann Dynamo, Zagreb
með 4 — 1. I þessari keppni taka
þátt lið frá Suður- og Mið-Evr-
ópu.
N Y L E G A birtist viðíal
við fyrrverandi heimsmet-
hafa, Tékkann Emil Zatopek
í pólska blaðinu Polytika um
hið brennandi spursmál, at-
vinnu- og áhugamennsku í
íþróttum.
Zatopek er berorður mjög
í viðtalinu og segir m. a.: „Á-
hugamennska í flesium
keppnisíþróttum er ekkert
annað en skopleikur, sein
fyrir löngu ætti að vcra bú-
ið að afnema”. Zatopek gagn
rýnir þá venju í V-Evrópu,
að greiða afreksmönmun
fyrir þátttöku í mótum. —
Hann vill, að hið opinbera
greiði kaup. — Það er sómi
sérhverrar þjóðar að eiga
afreksmenn í íþróttum og
þessvegna er það skylcla að
styðja þá og styrkja, segir
Zatopek.
Það er rætt um þetta við-
tal í langri grein í sænska í-
þróttablaðinu og á þaö heiii
þróttablaðinu og á það bcnt
þar, að pólska ríkið leggi
fram upphæð, sem svarar til
rúmlega 800 milljónum ísl.
kr. til styrktar afreksmönn-
um eingöngu. Svíarnir leggja
fram þá spurningu, hvernig
þeir geti þreytt keppni yið
íþróttamenn þjóða, sem
þannig er búið að. En ^hvað
getum við þá sagt?
■16. maí 1962 - ALÞYÐUBLAÐIÐ