Alþýðublaðið - 08.08.1962, Síða 3
MIKILVÆG KAFLA-
SKIPTI í ALSÍR
ALGEIRSBORG 7. ágúst (NTB-
Reuter) Ný og mikilvægleg kafla-
skipti urðu í sögu alsírsku bylting
arinnar í dag þegar tilkynnt var,
að FLN-stjórnin hefði afhent hinni
nýstofnuðu stjórnamefnd völdin.
Þetta felur einnig í sér, að Ben
Khedda forsætisráðherra hefur
loks viðurkennt stjórnmálalegan
sigur Ben Bella varaforsætWáð-
lierra í Alsír að lokinn rúmlega
eins mánaðar baráttu.
Tilkynningin kom ekki á óvart.
Þar sagði m.a., FLN-stjórnin muni
Jialda áfram störfum og verða
„stofnun" byltingarinnar sjálfrar
þar til byltingarráðið kæmi sam
an til fundar í september. Ráðið
á að viðurkenna stjórnarnefndina.
Samkvæmt góðum heimildum
er hafðar eru eftir FLN, er á það
lögð áherzla, að FLN-stjórnin sé
nú fulltrúi Alsír út á við. Stjórn
arnefndin mun hins vegar sjá um
stjórnina í innanríkismálum.
Mohammed Boudiaf varaforsæt-
isráðherra, einn af hörðustu and-
^tæðingum Ben Bella, tekur í
raun og veru við stöðu Dalhab,
fyrrverandi utanríkisráðherra, sem
er farinn til Sviss.
Formaður bráðabirgðastjórtiar-
innar í Alsír, Abderrahmane Fares,
hélt til Alsír í dag, en hann hefur
verið í Frakklandi og rætt við
Joxe Alsírmálaráðherra, m.a. um
fjármálaástandið í Alsír.
Talið er, að Fares hafi farjð
fram á 360 millj. nýfranka lán
sem landið þarf til útgjalda á
næstu mánuðum.
LÖGREGLAN
LÁ í SÓL . .
Framhald af 1. síðu.
um, varðeldi og sögusögnum, sem
fólki þótti fýsilegra að dveljast við
en brennivínið. Á sunnudagskvöld
ið var dansað eftir harmonikuspili.
Alla helgina var unaðslegt veður í
Þórsmörkinni, og um hádaginn lá-
meiri hluti fólksins og sólaði sig,
— þar á meðal lögreglan.
Róleg helgi
á Akureyri
Akurcyri í gær:
SAMKVÆMT upplýsingum lög-
reglunnar var fremur rólegt liér
um helgina og var hún ekki mjög
frábrugðin öðrum helgum sumars
ins
AIIs lentu 13 bílar í árekstrum
hér í nágrcnninu. Ekki munu liafa
orðið stórvægileg slys á fólki. Bif
reið fór út af vegimim á sunnudag
vestur í Ilörgárdal. í henni voru
fjórir farþegar, og voru þeir allir
fluttir á sjúkrahús. Þrír fengu þó
að fara þaðan fljótlega en einurn
var haldið þar eftir.
Um helgina fóru 60-70 manns
héðan inn að' Öskju á vegum
Ferðafélagsins. — G.S.
NYJUSTU FRÉTTIR FRÁ „FESTIVALI":
LÖNDUM MEINAD
AD MÓTMÆLA!
HELSINGFORS, 7. ágúst: Starfs
menn Heimsmóts æskunnar í Hels
ingfors urðu að beita hörðu til þess
að neyða níu íslendinga að hætta
við mótmælagöngu gegn hinum
nýju kjarnorkutilraunum Rússa.
Þátttakendurnir í mótmælagöng
unni voru um 100 talsins frá 10
þjóðum. Þeir báru m.a. spjöld, sem
á var letrað „Stöðvið tilraunirnar
í austri og vestri.“
Á sumum spjöldunum var minnzt
I á Sovétríkin. Starfsmenn heims-
mótsins sögðu, að ekki mætti bera
þessi spjöld þar eð þau væru móðg
andi í garð nokkurra ríkja.
Starfsmennirnir og þátttakend
urnir í mótmælagöngunni deildu
um þetta og fleira þegar níu ís-
lendingar héldu göngunni áfram.
Þeir gengu um tvö hundruð metra,
og báru spjöld þar sem tilraunum
Rússa var mótmælt.
- Þrjátíu og sjö ára gamall Frakki
ntMwmwmmwHHHHM
ROCKWELL
ERLEITAÐ
London, 7. ágúst
(NTB—Reuter)
BREZKA innanríkisráðuneytið á-
kvað í dag að reka úr landi bandar-
íska nazistaforingjann George Lin
coln Rockwell, sem lögreglan leit-
ar nú að og talið er að sé í felum í
Gloucestershire, en nazistaforing-
inn kom til Bretlands frá írlandi,
en þangað kom hann með flugvél
frá Bandaríkjunum.
Borgaralega klæddir leynilög-
reglumenn voru á ferli í dag á
járnbrautarstöðinni í Liverpool
Street i leit að Rockwell. Áður
hafði heyrst, að maður, sem likt-
ist honum, hefði keypt sér far-
miða með lestinni til Harwich.
Japan mót-
mælir til-
raunum
Rússa
Tokyo og Moskva, 7. ág.
(NTB—Reuter)
JAPANSSTJÓRN mótmælti í
dag nýjum tilraunum Rússa
með kjarnorkuvopn í við-
ræðum við sendifulltrúa
Rússa í Tokyo, Sergei P. Suz-
dalev. Utanríkisráðherrann,
Masayoshi Ohira, hafði orð
fyrir stjórninni.
Sovétríbin hafja nú að
nýju tilraunir þessar. — Ef
heimurinn á nokkru sinni að
komast úr þessum vitahring
verður Sovétstjórnm að
hætta þessum tilraunum,
sagði utanríkisráðherrann.
Jean Garcias að nafni, sem er
„æskulýðsleiðtogi" og kommúnisti
þreif spjöldin af íslendingunum
og reif þau í tætiur.
Áður höfðu íslendingarnir verið
neyddir til þess að fara úr göng
unni.
Foringi mótmælagöngunnar, sem
íslendingarnir tóku þátt í, var 19
ára gamall danskur stúdent, Steff
en Larsen að nafni. Hann sagði:
„Eftir tilraun Rússa í gær (þ.e.
mánudag) með 40 megalesta
sprengjuna vorum við ákveðnir í
að mótmæla á okkar hátt, þrátt
fyrir það að stjórn heimsmótsins
banni spjöld.“
Jean Garcias sem áður er minnzt
á, sagði Larsen, að í göngnunni
mætti aðeins bera spjöld sem væru
„opinberlega undirbúin."
Að minnsta kosti níu Austur-
Þjóðverjar, sem tóku þátt í heims
móti kommúnista, leituðu hælis
á þeim níu dögum, sem heimsmót
ið stóð yfir, segir í fregn frá NTB.
Auk þess kunna nokkrir aðrir
að leynast á finnskum heimilum.
Ef svo er kemur það tæplega í ljós
fyrr en skip a.-þýzku þátttakenda
anna „Völkerfreundschaft“, er far
ið frá Ilelsingfors.
Skipið átti að fara samkvæmt á-
ætlun kl. 14.00, ísl. tími, í dag.
Berlínarmúrinn
senn ársgamall
mmumHHmmmmHw
Um þessar mundir dvelja hér á
landi á vegum Alþýffuflokksins,
fjórir borgarfulltrúar fyrir vestur-
þýzka jafnaffarmannaflokkinn í
Vestur-Berlín. Var þeim boðiff hing
að í tilefni þess, að senn er eitt
ár liffiff síðan kommúnistar reistu
múrinn illræmda í gegnum Berlín
þvera.
Fréttamönnum var í gær boðið
að spjalla við þessa Þjóðverja, en
þeir komu til íslands síðastliðið
laugardagskvöld og dvelja hér
þangað til á mánudagsmorgun, en
þá fara þeir flugleiðis utan. Þessir
menn heita, Gehrke, Goldberg, dr.
Walther og dr. Reichard. Orð fyrir
þeim hafði einkum dr. Walther.
Ræddi hann aðallega um Þýzka
land og einkum þó Berlín og minnt
ist þá meðal annars á múrinn, sem
kommúnistar létu reisa um þvera
borgina fyrir tæpu ári síðan. Bar
hann fram þá spumingu við frétta
menn, hvernig þeim fyndist, ef
byggður yrði múr gegnum Reykja
vík þvera, til dæmis frá Háskólan
Fjórmenningarnir úr borgarstjórn V-Berlínar, sem hér dvelja í boði Alþýffuflokksins. Talið frá vinstri,
Gehrke, dr. Reichard, dr. Walther, og Goldberg.
um að Alþingishúsinu og þaðan
niður að höfn. Sagðist hann búast
við að Reykvíkingar mundu ekki
kunna múrbyggingarmönnum mikl
ar þakkir. Múrinn í Berlín kvað
hann kallaðan skammarmúr, eða
Ulbrichts-múr.
Hann sagði aðalmarkmið í stjórn
málum í Vestur-Berlín um þessar
mundir vera, að losna við múrinn
og að tryggja frjálsar samgöngur
við borgina. Svöruðu Þjóðverjarn-
ir síðan spurningum, er frétta-
menn báru fram.
Eftir að múrinn var byggður £
fyrrasumar minnkaði ferðamanna
straumur til borgarinnar nokkuð
um tíma. í febrúar í vetur var
hann hins vegar kominn í eðlilegb
horf aftur, og var þá meira að
segja um aukningu að ræða miðað
við árið áður.
Áður en múrinn var reistur
komu um 50 þúsund manns daglega
frá A.-Berlín til vinnu sinnar í V,-
Berlín. Þegar múrinn hafði verið
reistur komst þetta fólk ekki til
vinnu sinnar. Þrátt fyrir það, var
ekki vart við neinn samdrátt í iðn
aði og verzlun í Vestur-Berlin.
Þökkuðu Þjóðverjarnir það eink-
um samstöðu NATO-ríkjanna um
að standa vörð Um réttindi og
frelsi íbúa Vestur-Berlínar.
Varðandi friðarsamninga Sovét
ríkjanna v.ið A-.Þjóðverja tjóku
borgarfulltrúarnir undir orð Willy
Brandt, borgarstjóra í V.-Brtlin
og leiðtoga jafnaðarmanna þar, að
þeir samningar mundu vera hlæi
legir, því þeir yrðu milli Krúsjeffs
og Krúsjeffs, og hefðu þannig ekk
ert raunhæft gildi.
Tillaga vesturveldanna væri- sú,
að komið yrði á frjálsum kosning
um. Það þyrðu kommúnistar ekki
fyrir sitt litla líf að fallast á.jþar
sem vitað væri að þá mundi þeirra
þeirra málstaður tapa. k
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. ágúst 1962 J