Alþýðublaðið - 14.08.1962, Side 3
ont Blancgöngin
ná saman í dag
ti»X3
CHAMONIX 13. ágúst (NTB)
Um kl. 10 f.h. í dag verður fram-
kvæmd síðasta sprengingin í hin
um 11,6 km. löngu bílgöngum
gegnum Mont Blanc, hæsta fjall
Evrópu (4.087), og eru það lengstu
bílgöng í heimi. Strax þegar ryk
ið af sprengingunni hefur setzt og
loftið er orðið hreint geta um
900 franskir og ítalskir verkamenn
farið að skjóta kampavíns-kork-
töppum inni í iðrum fjallsins, 2000
metra undir tindi þess.
Eftir þriggja ára strit og hættur
sem kostað hafa eitt mannslíf á
hvern kílómetra — finim frönsk
sjö ítölsk — hafa verkamennirnir
borað sig gegnum fjallgarðinn, sem
alltaf hefur skilið að mið- og suður
evrópska menningu og stytt öku-
leiðina frá París til Rómar um
200 kílómetra. Göngin liggja milli
FRANCO NOGUEIRA, utanrík-
isráðherra Portúgals, sagði á
blaðamannafundi í dag, að Port-
úgalir mundu ekki hika við að
segja sig úr samtökum SÞ, ef það
væri Portúgal í hag. Kvað ráð-
herrann þetta mundu líka bera vott
um viðbrögð Portúgala gegn því-
að SÞ vikju burtu frá alþjóðlegum
siðai’eglum.
skemmtiferðabæjanna Chamonix
;Frakklands megin og Cormaioge,
Ítalíu megin.
Meðfram akbrautinni í göngun-
um er 70 sentmetra há göngu-
braut handa starfsmönnum, sem
eftirlit eiga að hafa í göngunum
Göngin eru hærri í miðju en til
endanna, svo að vatn á að renna
burtu af sjálfu sér.
Enn er ekki ákveðið hvað kosta
jmuni að aka gegnum göngin, en í
1 Shamonix er talið ekki ólíklegt, að
verðið verði rúmar 250 ísl krónur,
sem ekki getur talizt mjög hátt
fyrir að losna við brekkurnar Göng
in stytta og verulega leiðina milli
Genf, Milano og Torino. Má búast
við gjörbreytingu á allri umferð
milli Suður- og Norður-Evrópu
við tilkomu ganganna. En veiga-
mest er, að nú verður hægt að
aka suður fyrir Alpa allan ársins
hring.
Frönsku og ítölsku verkamenn-
irnir hafa hvorir um sig borað sig
fram um 5,8 km. og komust raun
verulega í samband sl. laugardag
Smáhola nægilega stór til að rétta
í gegn kampavínsflöskur og vín-
flöskur og kallast á, var gerð þann
dag. En sambandið stóð aðeins
stutt, því ægiþungi Mont Blanc
I lokaði holunni fljótlega, en þó
ekki fyrr en verkamennirnir höfðu
skálað og hrópað „Lifi Frakkland"
og „Lifi Ítalía.“
Hin opinbera sprenging á síð-
asta haftinu á að fara fram kl. 11
f.h. eftir staðartíma og verða opin
berir fulltrúar viðstaddir af hálfu
bæði ítala og Frakka, en formleg
athöfn fer ekki fram fyrr en 15.
september. Þá munu forsætisráð-
herrarnir Fanfani og Pompidou
hittast og ræða m.a. pólitíska sam
vinnu Evrópu. Er varla hæga að
hugsa sér ákjósanlegri ramma fyr
ir slíkar viðræður en iður Mont
Blanc.
SIUTTU MÁLI
STOKKHÓLMUR 13. ágúst
(NTB) í dag heyrðist hvað eftir
annað í hlustunarstöðvum í Sví-
þjóð raddir og merki frá sovézku
geimförunum.
Sænskir vísindamenn telja, að
þessi síðasta tilraun Rússa sé mun
flóknari og erfiðari en hinar fyrri.
Prófessor Herlofsson, sem er Norð
maður og kennir við Tækniháskól
ann í Stokkhólmi, líkir geimferð
unum við kennsluflug. Hér er senni
lega um æfingu að ræða til undir
búnings annarri og meiri tilraun,
segir hann.
TAIPEH, 13. ágúst,
(NTB/REUTER).
CHIANG KAI-SHEK, hershöfð-
ingi, bar í dag á móti fréttunum
um, að gerður hefði verið leyni-
legur samningur milli þjóðernis-
sinnastjórnarinnar og kommúnista
stjórnar Mao Tse-tung um fram-
tffi Formósu. Er því haldið fram,
að orðrómur þessi sé til kominn
til að reka fleyg milli Formósu-
stjórnar og Bandaríkjastjórnar.
Dobrynirii
o.g Rusk?
Cf
talast við
WASHINGTON, 13. ágúst,.
(NTB/REUTER)
Dobrynin, sendiherra Rúska í
Washington, átti í dag 20 minútna
viðtal við Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, um Berlínar- og
Þýzkalandsmálin, en það viðtal,
leiddi ekki til neinna verulegra
breytinga á ástandinu, sagði
talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins. Kom fram af orðum
talsmannsins, að Rússar vísa enn
á bug tillögum vesturveldanna
um fjórveldafund til að Ieysa
spennuna í Berlín.
Dobrynin sagði eftir fundinn, að
hann hefði ræ,tt friðarsamning við
Þýzkaland við Rusk á grundvelli
fyrri viðræðna Rusks og Gromy-
kos.
Táragassprengjur
yfir Berlínarmúr
r
r L0 s WEN ELUF
L J
PEINER
kranar fyrir slippa, skipasmíðastöðvar og
byggingar.
Allar stærðir byggðar í fjöldaframleiðslu.
Auðveldir í fhitningi.
Sami viðskiptavinur hefur þegar keypt 8 krana. Einnig fást
PEINER snúnings-turnkranar. — Stuttur afgreiðslufrestur.
Tilboð óskast án skuldbindinga. Bréfaskipti á dönsku, norsku,
sænsku, ensku cg þýzku.
V. L0WENER
VESTE RBROGADE 9B - K0BENHAVN V. - DANMARK
TELEGRAMADR.: STAALL0WENER ■ TELEX: 5S85
BERLÍN 13. ágúst (NTB-Reuter)
Austur- og vestur-þýzka lög-
reglan köstuðust í dag á táragas-
sprengjum yfir múrinn í Kreuz-
ber'g-þverfinu. Austur-Þjóðverjar
hófu aðgerðir með því að kasta um
50 táragassprengjum yfir múrinn
og beittu vatnsslöngum gegn fólki
sem hafði safnazt saman við múr
inn á hernámssvæði Bandaríkja-
manna með stóran kross. Lögregl-
an í Vestur-Berlín kallaði til vara
lið og varpaði um 80 táragas-
sprengjum austur fyrir múrinn,
svo að Austur-Þjóðverjar neyddust
til að hörfa. Frá Zimmerstrasse
héldu mótmælamenn áfram með
kross sinn til varðstöðvarinnar við
Höinrioh Heinegötu, en austur-
þýzku verðirnir þar létust ekki sjá
þá.
Þaðan gengu mótmælamenn í
fylkingu, sem í voru um 500 manns
og fylgt var af á að gizka 50 bíl
um, meðfnam múrnum. Við „Check
point Charlie", þar sem útlending
BUENOS AIRES, 13. ágúst,
(NTB/REUTER).
Lögreglan í Buenos Aires lagði
í dag táragasteppi yfir götur í
grennd við kjötniðursuðuverk-
smiðju í suðurhluta bæjarins til
þess að koma þannig í veg fyrir
að verkamenn, sem sæta verk-
banni, gætu tekið verksmiðjuna í
sínar hendur. Síðar í dag tóku lier
menn í sínar hendur allar niður-
suðuverksmiðjur, sem verkbannið
nær til.
um er hleypt í gegn við Friðriks
götuv höfðu safnazt saman um
4000 Vestur-Berlínarbúar, er köll
uðu ókvæðisorð að varðmönnunum
austan megin. Mótmælafundir voru
einnig lialdnir við múrinn á
jfranska svæðinu við Bernaueri-
strasse.
Lögreglan í Vestur-Berlín til-
kynnti, að sézt hefði verulegur
mannsöfnuður austan megin, bak
við Brandenborgarhliðið. Austur-
Þýzka lögreglan hefði ráðizt á það
fólk og dreift því, en það hefði
safnazt saman aftur hvað eftir
annað.
Fólk stóð grátandi á götum
Vestur-Berlínar, ör Frelsisklukkan
hóf sorgarhringingu sína til að
minnast þess, að eitt ár er liðið
frá því að múrinn var byggður
milli Austur- og Vestur-Berlínar. t
ræðu, sem Brandt, yfirborgarstjóri
hélt og útvarpað var um alla borg
ina, líka með gjallarhornum austur
fyrir, sagði hann, að Vestur-Ber
línarbúar mundu aldrei gleyma
þeim, sem yrðu að þola það að
búa að baki múrnum.
Þriggja mínútna þögn, og vinnu
stöðvun og umferðarstöðvun var
haldin um alla Vestur-Berlín á
hádegi. Á meðan Frelsisklukkan
hringdi kom austur-þýzka lögregl
an með hátalara að Potzdamer
Platz og útvarpaði þar skerandi
músík. Annars staðar sáust Austur
Þjóðverjar veifa varlega hvítum
klútum til fólks vestan múrsins.
Þrem tímum eftir táragassbar
dagann voru mótmælamennirnir
500 enn á ferð meðfram múrnum
með trékrossinn. Á trékrossinum
var áletrunin: „Við ákærum“, og
mannfjöldinn hrópaði í kór „Múr
inn verður að hverfa". Um 50 lög
roglumenn fylgdust með mótmæla-
mönnunum. Austur Þýzka lögreg)
an fylgdist með göngunni í kíkjum
en gerði ekkert.
Mótmælendur skýrðu fréttarit
ara REUTERS frá því að gangan
hefði hafizt alveg ósjálfrátt.
Við Bernauerstrasse köstuðu
nokkrir Vestur-Berlínarbúar
grjóti í austur-þýzku lögregluna.
Frá franska svæðinu sást, að tveir
austur-jþýzkir lögregluþjónar af-
vopnuðu hinn þriðja og leiddu
hann burtu.
>MMWWMMWMW«WWMWW
V-þýzkum
jafnaðar-
mönnum
þakkað
EFTIRFARANDI ályktun
var samþykkt á fundi sam-
bandsráðs SUJ aö Bifröst um
síðustu helgi: j
í tilefni af komu sendi-
nefndar jafnaðarmanna frá
Vestur-Berlín vill sani-
bandsráð Sambands ungra
jafnaðarmanna senda Al-
þýðuflokknum í Vestpr-
Berlín bróðurkveðjur og
þakka honiun , trausta og
árangursríka forystu fyj’ir
frelsi og lýðræði í heiminum.
MMMMM*MMiMMMMM*HIM| i
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. ágúst 1963 3;;