Alþýðublaðið - 25.08.1962, Síða 16
tt, WvX^*.. v-X/w x ww^whwwawww^ihwwwæ^^m
Hann selur hlaðib
okkar á Siglufirði
SIGLFIRÐINGAR fá blöð-
'n daglega um kl. 9 á kvöld-
in. Þá taka sölubörn þau og-
fara með þau um borð í
síldveiðiskipin til þess að
selja þau. Hér sjáið þið 9
ára gamlan sölumann, Krist-
ján L. Möller með Alþýðu-
blaðið um borð í einu síld-
veiðiskipanna.
C£D^£M3£P
fV*~
43. árg. — Laugardagur 25. ágúst 1962 - 192- tbl.
GULLFOSS GISTI-
HÚS í K.-HÖFN
EIMSKIPAFÉLAG íslands mun
-i- vetur bjóða upp á ódýrar
ekeanmtiferðir með Gullfossi til
Danmerkur og Skotlands, og til
íleiri landa, ef aðstæður leyfa. Á
Þessum ferðum verður aðeins 1.
farrými skipsins opið og sú nýj-
mag viðhöfð, að farþegar geta m.
a. í Kaupmannahöfn, búið um
borð í skipinu og notið þar allr-
ar þjónustu. Verður það innifal-
íð í fargjaldinu.
Þessar breytingar gilda á tíma-
toiíinu frá nóvember til marz, og
cru það sex ferðir. Fargjöld á 1.
farrými verða lækkuð mikið frá
Því í sumar, og verða þau ekki
hærri en II. farrýmis fargjöld eru
yfir sumartímann. Öll þægindi,
matur og drykkur verða þrátt fyr
ir þetta að engu rýrð.
Ferðunum verður hagað þann-
ig, að frá Re.vkjavík er farið síð-
degis á föstudegi og siglt til
Kaupmannahafnar. Ferðin þangað
tekur 3-4 sólarliringa. Skipið
dVelur nálega viku í Höfn, þ. e.
ef ekki er komið við í Hamborg,
eem oft er gert. Styttir það eðli-
lega dvalai-tímann í Höfn. Frá
Kaupmannahöfn er farið á þriðju-
degi og siglt til Leith og komið
ft-angað að morgni fimmtudags.
feaffan er farið að kveldi sama
dags og komið aftur til Reykja-
víkur á sunnudegi. Ferðin tekur
ÍC' daga og kostar 5100 krónur.
í sambandi við komuna til K-
-traf-nar má geta þess, að á vetr-
-um eru opin þar leikliús, óper-
ur og ýmsir aorir skemmtistaöii-,
sem ekki eru opnir yfir sumar-
tímann. Þá er ekki eins margt
þar um ferðamenn, og því verð
á ýmsri þjónustu og á varningi
ekki eins uppsprengt og það er
yfir sumarið.
Forráðamenn Eimskipafélags
íslands áttu fund með blaðamönn-
um í gær um borð í Gullfossi,
og skýrðu þeim frá þessum nýj-
ungum, svo og ýmsu fleiru, sem
félagið hefur á döfinni.
Togara
sölur
EFTIR að togaraverkfallinu lauk
hefur aðeins einn íslenzkur tog-
ari selt ytra, var það Karsefni. Á
næstunni munu að minnsta kosti
tveir togarar selja í Þýzkalandi.
Næstkomandi mánudag selur
Röðull í Þýzkalandi, og í vikunni
þar á eftir mun Jón Forseti einn
ig selja í Þýzkalandi. Báðir þess
ir togarar hafa verið á heimamið-
um, enda hefur afli verið góðurí
hér við land að undanförnu. |
Jón Þorláksson fór á veiðar í
gærkveldi, og er ja'fnvel búizt við
að hann selji aflann ytra, þó er það
ekki fullákveðið enn þá.
MAÐUR nokkur var sl. laugar-
dag rændur 15000 krónum á
Hverfisgötunni. Voru þar að verki
þrír ungir piltar, tveir 18 ára og
einn 16 ára. Lögreglan náði þeim
sl. miðvikudag og höfðu þeir þá
eyft öllum ránsfengnum og gátu
engu skilað aftur nema veskinu
tómu.
Forsaga þessa máls er sú, að
utanbæjarmaður, sem var eitt-
hvað að skemmta sér í húsi. við
Ifveífisgötuna, skrapp aðeins út
til að fá sér ferskt loft. Er út á
götuna kom hitti hann piltana
þrjá og tók þá tali.
Maður þessi hafði æft hnefa-
leika hér áður fyrr, og er hann
komst að því, að einn drengjanna
var sonur gamals hnefaleika-
kappa, sem hann kannaðist við,
vildi hann athuga hvort pilturinn
hefði erft eiginleikana. Ákváðu
þeir að æfa sig örlítið í vörn og
sókn, en allt var þetta í góðu gert:
Fóru þeir þá úr jökkunum og
tóku hinir piltarnir þá í sína
vörzlu. Meðan þessir tveir voru
uppteknir við linefaleikinn, — sá
annar pilturinn, sem hélt á jakk-
anum mannsins, livar veskið stóð
upp úr vasanum. Tók liann það
og færði yfir í sinn vasa.
Er æfingunni lauk réttu þeii’
manninum jakkann og hlupu á
burt, sem fætur toguðu. Maður-
inn varð hins vegar fljótlega var
við að veski hans var horfið og
gerði hann lögreglunni þegar að-
vart. Drengirnir náðust svo á mið
vikudag, eins og fyrr segir, og
höfðu þeir þ'á eytt öllum pening-
unum í leigubíla og skemmtanir,
Maðurinn, sem rændur var, er
utanbæjarmaður.
Neitaði að opna
fyrir lögreglunni
Nokkrir krakkar voru að
skcmmta sér í fyrrinótt, og héldu
smá „partý“ í bíl. Þegar líða tók
á nóttina kom upp einhver mis-
sætt meðal karlmannanna, — og
deiluefnið var vitanlega stúlka.
Út af þessu spunnust slagsmál og
læti og var kvartað við lögregl-
una.
Áður en lögreglan kom á stað-
inn hafði einn pilturinn, sem var
nokkuð drukkinn tekið sig út úr
hópnum og farið heim. Er þang-
að kom tók hann bíl, sem stóð
fyrir utan húsið heima lijá hon-
um, og fékk sér smáökuferð, én
fór síðan inn.
Lögreglan þuríti að ná tali af
Góður afli
Þorláks-
hafnarbáta
piltinum vegna slagsmálanna og
fór heim til hans. Hafði hann
þá læst að sér og þóttist ekkert
heyra, er dyrabjöllunni var
hringt. Sleit hann hana að lokum
úr sambandi. Reyndi lögreglan
með öllu móti að fá hann til að
opna og koma út, en allt kom
fyrir ekki.
Var þá ákveðið að leita úrskurð
ar hjá fulltrúa um að fá að fara
inn í liúsið, en meðan á því stóð
sá piltur sinn kost vænni — og
opnaði dyrnar. Hafði hark þetta
staðið nokkurn tíma. Drengurinn |
‘ játaði á sig sökina, — slagsmál,
og ölvun við akslur, en. hann er:
aoexixs 17 ára gamall.
Þorlákshöfn í gær.
MJÖG góður afli hefur ver-
iff undanfarið hjá bátunum, sem
hér leggja upp. Aflinn er mest-
megnis falleg ýsa. Unniff er í
frystihúsinu til miffnættis á
hverju einasta kvöldi, og samt
hefst ekki undan. Nokkur skortur
er á vinnuafli, einkum kvenfólki.
Tveir dragnótabátar eru gerðir
út héðan og auk þess Ieggja all-
margir bátar upp hér.
Vei’ið er að undirbúa hafnar-
gerðina og er skip væntanlegt með
efni um miðjan næsta mánuð. —
Búið er að rífa gömlu húsin hér,
Bæ Jóns á Hlíðarenda, og er ver
ið að rífa gömlu verzlunarhúsin.
Þau eru sennilega um tvö hundr
uð ára gömul. Elztu menn1 hér
minnast þeirra sem gamalla, er
þeir voru ad aiast upp. — M.B.
HÁSKÓLINN
FÆR LOFT-
SKEYTASTÖÐ
Á AFMÆLI Háskóla Islands sl.
vor, afhenti borgarstjóri skólan-
um mikla lóffarspildu, sem er suff-
ur af Bændahöllinni. Þar stendur
m. a. Loftskeytastöffin gamla, og
nokkru eftir afmæliff var ákveðiS
aff Háskólanum yrffi einnig af-
lient stöðin aff gjöf.
Foi-mleg afhending mun vænt-
anlega fara fram í haust, en nú
er verið að flytja starfsemi Land-
símans úr húsinu, og jafnframfi
fara nu fram ýmis konar lagfær-
ingar á því. Hefur það m. a. verið
málað að utan, og einnig verður
gengið frá því að innan.
Blaðið ræddi í gær við Háskóla-
rektor, Ármann Snævarr, og
spurðist fyrir um hvað gert yröi
við húsið. Kvað hann það ekki
ákveðið ennþá, en líklega yrði
það notað fyrir rannsóknarstofur
og til keiinslu.
.WWIVMMVHMmiMMMWIM
Flugkeppnín
á sunnudag
FLUGKEPPNI Flugmála-
félags íslands hefst á Rvíkur
flugvelli á sunnudaginn kl.
3, ef veffur leyfir. Þá fer
fram flugmódelsýning aff
auki, og er öllum lxeimilt aff
koma og fylgjast með keppn-
inni og sýningunni og er aff
gangur ókeypis.