Alþýðublaðið - 28.11.1962, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 28.11.1962, Qupperneq 11
i RiivKiavlkm KÍNA VILL SEMJA VIÐ PAKISTAN Framh. af 3. síðu • færi að vel gæti komið til mála að Pakislan gerði slíkan samning við Kínverja. Indverjar liafa hvað eftir annað reynt að ná slíkum samningum við Pakistan. Það er að segja þeir hafa viljað fá tryggingu fyrir því, að Pakistanar gerðu ekki árás á Kasmír meðan þeir ættu í styrj- öld við Kínverja. Hinir eftirsóttu þýzku hjólbarðar Sterkir - Endingargóðir Ávallt til í öllum síærðum, nýjar scndingar koma með hverri skipsferð CONTINENTAL hjólbarðar fást aðeins hjá okkur. _ Önnumst allar lijólbarðaviðgerðir með full- komnum tækjum. Sendum um allt land. G úmmívinnustofan Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 18955. Sjónvarpsmaður Framh. af 1G. siðu leiðis næstkomandi föstudag. Hér fer á eftir viðtal frétta- manns Alþýðublaðsins og sænska sjónvarpsmannsins Bo Holm- tröm, — það eru að sjálfsögðu Loftleiðir og SAS, sem eru á dag- skrá. — Er það rétt hermt, herra, Hol- ström, að sænsk blöð hallist á sveif með Loftleiðum en ekki SAS? — Það mundi ég ekki segja. Mikið er um málið skrifað í sænsk blöð, og eins og eðlilegt er, birtast þar fremur skoðanir SAS-manna en fulltrúa Loftleiða, þar eð skemmra er til þeirra að leita. Taka verður einnig tillit til þess, að SAS er sænskt félag, og rit- stjórar flestra blaðanna munu hlynntari sínu eigin félagi en ís- lenzlca keppinautnum. Aftur á móti cru fréttir sænskra blaða yf- irleitt mjög hlutlausar, og þar er ekki tekin opinber afstaða með einum né neinum. Hingað til hafa ekki komið fram neinar opinber- ar niðurstöður heldur aðeins vangaveltur um málið, og þar hef- ur að sjálfsögðu komið margt fram, sem bæði er með og móti fyrir báða aðila. — Munduð þér segja, að þessi deila hafi verið góð auglýsing fyr- ir Loftleiðir? — Tvímælalaust. Nú vita allir, að fargjaldið með Loftleiðum er 600 sænskum krónum ódýrara en með SAS. — Hefur verið mikið um það rætt í Svíþjóð, að annað væri und- ,irrótin að fjárhagsörðugleikum SAS en samkeppni Loftleiða? — Nei, í Svíþjóð er ekki minnzt á annað en Loftleiði, — en það er fyrst, þegar hingað kemur, sem maöur fer að efast. — Hefur málið verið rætt í sænska sjónvarpinu? — Ekki enn, — en það verður . nú í byrjun desember. Við höf- um í undirbúningi samtal við , norska SAS-forstjórann, Braatlien, umhoðsmann Loftleiða í Gauta- borg, Herra Steenstrup og loks verður sá þriðji einhver fulltrúi sænskra yfirvalda, ef til vill (sænski samgöngumálaráðherrann. 1 Ég hef nýlokið viðtali við Alfreð Elíasson, forst.jóra Loftleiða, og fleira er á döfinni. Áætlað er, að sérstök Loftleiða-SAS dagskrá vcðri í sjónvarpinu 3. desember. — Og ferðinni er hingað heitið eingöngu til að kynna sér þetta mál? — Já, við eruin hingað komnir til að kynna okkur og taka mynd- ir af því, — hvað Loftleiðir raun- verulega eru. Við flugum hingað í Loftleiðavél og tókum myndir á leiðinni, við liöfum verið úti á flugvelli og tekið myndir þar, við höfum rætt við forstjórann eins og áður segir, og ef til vill náum við tali af einhverjum ráðherranna, | annað hvort utanríkisráðherran- ' um eöa forsætisráðherranum. | — En hvert verður hlutverk Vestmannaeyja? — Við fórum aðeins í nokkurs konar skemmtiferð og fengum að sjá um leið nokkuð af landinu. i Við liöfum hugsað okkur að taka auk Loftleiðamynda, fréttamynd- ir af íslandi, fyrir sérstaka frétta- dagskrá í sjónvarpinu. Við höf- um komizt á snoðir um, að Efna- hagsbandalagið er á dagskrá í þinginu um þessar mundir, og við höfum í huga að spyrja um álit íslendinga á því. Við höfum einn- ig í huga að taka myndir úr at- vinnulífi hér og loks bæjarlífinu í Reykjavík. — Var þessi ferð hingað lengi í bígerð? — Nei, hún var ákveðin síðdegis á föstudag, og við lögðum upp morguninn eftir. — Ilafið þér ferðast víða á veg- um sænska sjónvarpsins herra Holmström? — Já, talsvert víða. Til Finn- Iands, Noregs, Danmerkur, Þýzka- lands ... — Ef til vill einnig til Asíu? — Já, ég fór til Persíu í haust, — eftir jarðskjálftana. — Var þar ekki hræðilegt um að litast? — Jú, það var ægilegt. Loks þetta: — Hvernig kemur þetta yður I fyrir sjónir? | — Ef þér eigið við ísland — ! þá lízt mér vel á það, — þótt hann blási dálítið napurt, — ef i að þér eigiö við deilu Loftleiða og SAS, þá get ég ekkert um það sagt, — ekki ennþá ... — Hvað haldið þér að gerist 15. desember? — Ég spyr þess sama og þér! II. ENSKA Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi. EIÐUR GUÐNASON, Skeggjagötu 19, Sími 19149. Sknfstofustúlka dugleg og ábyggileg, óskast. Þarf ekki að vera mjög vön. Æskilegt væri að hún gæti hafið starf 1. janúar 1963. ■-'■•v.'v. Umsóknir sendist afreiðslu Alþýðublaðsins fyr ir helgi, merktar „góð laun“. Verkstjórafélag Reykjavíkur Verkstjórafélag Reykjavíkiar-, UMSÓKNIR Umsóknir um úthlutun úr Styrktar og minningarsjóði Verifc stjórafélags Reykjavíkur, þurfa að berast stjórn félagsinK eigi síðar en 10 des. n.k. Umsóknir sendist skrifstofu félagsins Skipholti 3, Stjórnin. LÖGTAK Eftir kröfu ríkisútvaipsins og að undangegnum úrskurði, uppkv. 26. þ. m., verða látin fara fram lögtök fyrir afnota- gjaldi af útvarpi fyrir árin 1961 og 1962 á kostnað gjaldt- enda, að liðnum 8 dögum frá birtingu þessarar auglýsing** ar. Borgarfógetinn í Reykjavík, 27. nóv. 1962. Kr. Kristjánsson. Auglýsingasíminn er 14906 •ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. nóv .1962 U

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.