Alþýðublaðið - 21.12.1962, Page 7

Alþýðublaðið - 21.12.1962, Page 7
LITLI kjóinn undir handarjarðri bandarísku forsetafrúarinnar vistaður á munaðarleysingja hæli í Washington. Þangað kom frúin með jóla- gjafir fyrir skemmstu, — og má sjá á andliti Jþess litla, að honum finnst stundin hátíðleg. því hér væri vissulega um nauð'* synjamál að ræða. ENGIN síld hefur borizt á lanól hér sunnanlands' síðastliðna þrjá sólarhringa. Á miðunum er stöff- ugt versta veður, sem hamlar öll - um veiðum. Togarar Framh. af 3. síðu Vcnus h.f. á Röffull verffur á veiðum yíi?® hátíffarnar. X Búizt var viff að Akranestogarinrv Víkingur yrði á veiðum yfir hátíð- arnar, þó var þaff ekki fullráðiff t" gær. Ennfremur hringdum við í Júpí— ter og Marz (Tryggva Ófeigsson). Þar fengum við þau svör, að úti- lokaff væri að gefa nokkuð upí> um hvar skipin yrðu stödd, aW svo komnu máii. reglugerffar um aflífun dýra, sem 1 gefin er út samkvæmt áttundu; grein fyrrnefndra laga. j Hilmar kvað ríkja hálfgert vand I ræða ástand í þessum málum, lög- reglan annaffist að vísu aflífanir dýra, væri um það beffið, en hún hefffi enga aðstöffu til að sinna þessu eins og nauðsynlegt væri. Dýraverndunarfélagið á nú von á aflífunartækjum fyrir dýr, — sagði Hilmar Foss og kvaffst hann vonast til aff þau yrffu sett upp aff Keldum og samvinna tækist við hiff opinbera um rekstur þeirra. Nauðsynlegt væri einnig að koma upp miðstöð þar sem hægt væri að hjúkra særðum dýr- um og geyma dýr. Aflífunartæki þessi eru þa'nnig, að dýrið er sett inn i kassa og síðan er hleypt eter blöndu inn i kassann og þegar dýrið er fállið í dá, er lokað fyrir loftstrauminn inn í kassann. — Þannig verður dauðdaginn algjör- lega þjáningarlaus. Hilmar kvaðst að lokum vona, að tækin kæmust sem fyrst upp, Um kattarmálið sagði Hilmar Foss, að Ðýraverndunarfélagið hefði kynnt sér lögregluskýrsluna um málið, og hefur félagið óskað þess, að málið verði sent til sak- sóknara ríkisins, sem síffan ákveð ur hvort höfða skuli mál. Hér er um að ræða brot á 1., 8. og lð. gr. laga um dýravernd og sömuleiðis brot á annarri grein EINS og skýrt var frá fyrir. skömmu, sendi maður nokkur, son sinn ungran meff kött í poka niffur á bryggju og skyldi drengurinn drekkja kettinum. Lögreglan komst í máliff og forffaffi kettin- um frá drukknun. Dýraverndunar- félagiff skarst í leikinn vegna þessa atviks og lögregluskýrsla var tekin af föffur drengsins. Blaðið ræddi í gær við Hilmar Foss, ritara Dýraverndunarfélags Reykjavíkur, og skýrði hann m. a. frá þvf, að félagið ættl von á aflífunartækjum fyrir dýr innan skamms og mundu þau verffa sett upp að Keldum, ef samvinna um þessi mál tókst við opinbera að- DÝRAVERNDUNARFÉLAG- IÐ FÆR AFLlFUNARTÆKI Sigurður Einarsson í Holti: ÞAÐ var gaman að fá ferðarollu ! Magnúsar Stephensens, svo ýtar- lega, sem kostur er á, núna rétt fyrir jólin, en ferðarollan er dag- bók, sem Magnús ritar um för sína til Kaupmannahafnar haustið 1825 og dvöl sina þar fram á vor 1826. Hann sendir konu sinni dag bókina með fyrsta vorskipi heim í Viðey, svo að hún megi gjörla vita um alla hans framferð vetrar- langt í Kóngsins stað. Og Magnús er svo sannarlega enginn undan- %'illingur í Kóngsins stóra stað. Hann er jústitsráð og statsráð og konferensráff að nafnbót, doktor og dómsstjóri með 41 árs embætt- isferil að baki. Og hann hefur oft- er en einu sinni verið kóngi sín- um betri en enginn. Meðal ann- ars einu sinni gefið honum aftur sitt elskaða land, ísland, þegar gáf aður og djarfur ræningi hafði hrifsað það úr hendi konungs og stofnað hér sjálfstætt ríki. Ferðarollan er algert trúnaðar- plagg, sem Magnús hefur ætlað sér og konu sinni einum, smá- smugulega opinská og nákvæm um allskonar hversdagslegan hégóma, en gefur af þeim sökum afar skýra nærmynd af Magnúsi sjálf- um og lífi fyrirmanna ríkisins á þeirri tíð í Kaupmannahöfn. Hann segir konu sinni allt smátt og stórt, hvað hann borðar, hvemig hann klæðist, hvað hann kaupir og greinir innvirðulega verð hvers hlutar. Hann fær ekki svo illt í magann að þess sé ekki getið — og það er raunar furffa, hvað hann fær sjaldan illt í magann, því þeir borða vel þarna í Kaup- mannahöfn, 5—8—14 rétti matar og allt upp í 8 tegundir „syltetoj“ og drekka þéttingsfast með. Og Magnús hefur auðsæilega mjög gaman af að segja frá sumu. Stund um kemur kóngsins hlaupari og býður honum til hirðVeizlu. Og þá klæðist Magnús hvítum undir- klæðum, gullbróderuffum ein- kennisbúningi, hvítum silkistrump um. Hann skrýffist gylltum hnéspennum og öklaspennum, svörtum gljáskóm, ber nýjan korða meff gullnum sverðskúf. Síðan ek- ur liann með toppuðum hestum og þénara aftur upp á Kóngsins stað, ræðir við hoffrúr og hefð- armenn, konung og prinsa, etur af silfurdiski. Nei, Magnus Stephensen er enginn undanvillingur í Kóngsins stað. Frú Guðrún getur veriff al- veg róleg. En við sjáum líka aðra hlið á Magnúsi: Hina dæmalausu elju hans. Hann er að vísu tekinn að lýjast og reskjast. En hann er uppi fyrir birtingu hvern dag, vinnur sleitulaust fram á kvöld aff Jónsbókarútgáfan seinni, rann- sakar handrit ber saman ritár, hefur tvo þrjá ritara í starfi, fer hamförum. Hann er að taka til handargagns í lagaglundroðanum, sem ríkir á íslandi, koma fram nýju lagaverki, sem á nú fyrir sér að silast í gegnum hina þungu, seinvirku skrifstofuvél einveldis- ins — og hann hefur þungar á- hyggjur og ekki að ástæðulausu. En hann hefur fleiri járn í eldi. í sál þessa gullborðalagða embætt- ismanns brennur heilagur eldur. Það er ástin á listum og mennt- um, þekkingu, fegurð í hverri mynd. Hann sækir kirkjur, hlustar á fræga ræðusnillinga, sækir há- skólafyrirlestra, söngleika, sýning- ar listaháskólans. Það eru hrein undur hvað hann kemst yfir. Og undir niðri vakir með honum ó- slökkvandi þrá til þess að skapa fagurlíf lista, þekkingar og hárra mennta með sirini elskuðu, fá- tæku þjóð, sem hann hafði litið nálega í dauðateygjunum í hörm- ungum eldsins 1784. En Magnús er ekki sonur Ólafs St.efánssonar og dóttursonur og nafni Magnúsar amtmanns Gísla- sonar fyrir ekki neitt. Hann er is- lenzkur búhöldur og höfðingi, for- sjármaður og aðdrátta. Það kost- ar mörg spor. Hann kaupir hús- gögn, trjávið, trjáplöntur til gróð- ursetniiigar, fræ til útsæðis. Hann hleypur um allan staðinn til að finna góðan indigolit, en því mið- ur, hann fæst hvergi góffur undir átta ríkisbankadölum. Hann verður að sæta afarkaup- um til þess að heimafólk í Viðéy geti gengið sómasamlega til fara. Og nú ganga fá skip, örðugleikar miklir með að fá góss sitt flutt. Það kostar mikil umsvif, því að Magnús ætlar ekki að koma tóm- hentur. Hann þarf að semja um flutning á fjórum hestum, sjá um, að hvaðeina komist með vel um búið. Og loks hefst það fram fyrir makalausan dugnað þessa einstæða manns, sem ekki kann að gefast upp. En Magnús Stephensen hefur fleiru að sinna. Það kostar líka mörg skrif, margar heimsóknir, mörg spor. Hann þarf að koma syni sínum í aðstoðarritarastöðu við Landsyfirréttinn, með von um ritaraembættið þegar frá liður. Einnig það tekst. Allt tekst, sem fram er auðið að hnika. En laga- Verkið hans, hins lögkæna og milda dómara, kemst ekki fram. Það festist í nornakvörn skrifstofu mennskunnar úti f þéím stóra stað. Hann hefði getað látið ferff- ina ófarna þess vegna, með ölluhi þeim lífsháska, sem að honum steðjaði í þessari ferð. Og mörg- um öðrum, því aff þetta eftirlætis- barn hamingjunnar er fengsælla á f jandsamleg veffur, ef hann hætt- ir sér um íslandsála, cn menn viti dæmi til. Jafnvel þegar heill og ei“ og gifta þeirrar þjóðar, sem hann. elskaði, veltur að nokkru á því,. að hann komist skjótlega fram, eru veður honum einatt fjandsamleg. Tvennt er mikil prýði þessarai- bókar, eins og hún liggur nu fyrir. Hið fyrra er ritgerð Þorkels Jó- hannessonar, háskólarektors, ritirx. þá er hundrað ár voru liffin frá andláti Magnúsar Stephensen, hiíT síðara er eftirmáli og skýringar- hins unga menntamanns Jóntr Guðnasonar við bókina og allui' frágangur hans á þessu litla verki, að ógleymdri vandlegri nal'na* skrá. í sjálfu sér segir þaff ekkfc mikið um hversu manni kunna afft farast fræffistörf, hverníg hanrt. gengur frá slíku smásmíði, en smá um hlut má haga þannig í bygg - ingu íslenzkra mennta að vel sómt sér. Er þá alls góðs vonandi un> það, að þeir sem lítilli völu koir.st vel í vegg, færi þar stærri hiuti að til borgarsmíðar, er stundir- líða fram. Bókfellsútgáfan hefur gefiít þessa bók út af venjulegum snyrt.t leik. Og hefur sýnt það enn sent fyrr, nú hin síðari ár, að þióffleg: fræði má stunda með nokkrinr* tilkostnaði og áhættu án þess aik verða hæstbjóðandi á uppboðs— bingi draugaframleiðslunnar á ís» landi. Sigurður Einarsson f Holti. AIÞÝÐUBLADIÐ - 21. de^-1962 ?

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.