Alþýðublaðið - 20.01.1963, Page 1
VALKYRJUR í VIETNAM -
SJÁ OPNU -ÍSLENDING-
UR í LEYNIÞJÓNUSTU-iiA
VEIKINDI komu upp á
togaranum Röðli, er hann
var að veiðum suð-austur
f yrir landi síðastliðinn
fimmtuc^ag. Veikindin
lýstu sér með uppsölu og
innantökum. Álitið var í
fyrstu, að aðeins væri
um að ræða umferðaprest,
— en í fyrramorgun var
ljóst; að alvara var á ferð-
um. Voru þá allir háset-
arnir, að tveim undan-
teknum, og auk þess vél-
stjórinn, orðnir hættulega
Veikir. Var þá haft sam-
band við héraðslækninn í
Vestmannaeyjum, Hinrik
Linnet, pg þegar haldið til
lands. Lóðsbáturmn frá
Herter ræð-
ir við EBE
Washington — NTB
SÉRLEGUR fulltrúi Kenne-
dys forseta í viðræðum um
verzlunarmál, Christian Her-
ter, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, á að hefja samn-
ingaviðræður við Efnahags-
bandalagið í næstu viku.
Herter mun halda til Briis-
sel, Genfar og Parísar á
tímabilinu 24. janúar til 2.
febrúar.
í Briissel á hann að ræða
við formann EBE-nefndar-
innar, Walter Hallstein og
aðra nefndarmenn til Jiess að
kanna, hvernig haga skuli
verzlunarviðræðimum í sam
ræmi við bandarísk lög um
aukna verzlun, sem þjóð-
-j^ringið sambyjíkti í fyrra.
Vestmannaeyjum lagði af
stað með héraðslækninn
út til móts við togarann,
og mætti lóðsbáturinn tog
aranum um tvö-leytið
nótt úti við Dýrhóley, sem
er um 33 mílur austur af
Vestmannaeyjxun. Þá var
einn hásetanna, 22 ára
gamall maður frá Reykja-
vík, Snæbjöm Aðils að
nafni, látinn, en hann lát-
izt um 10-leytið um kvöld-
ið. Snæbjöm var sonur
Jóns Aðils Ieikara. Annar
háseti var fársjúkur, með
krampa og óráð. Bráði
heidur af honum, er lækn-
irinn hafði gefið honum
sprautur. Þegar komið var
til lands undir morgun, var
begar farið með tvo menn
af áhöfn togarans á sjúkra
húsið í Vestmannaeyjum,
“n aðrir af skipshöfninni
virfii^t ekki hætt komnir.
Skipstjóri á togaranum Röðli er
Jens Jónsson.
Héraðslæknirinn í Vestmanna-
eyjum, sagði í símaviðtali við' Al-
þýðublaðið í gær, að svo liti út
sem um einhvers konar mat-
areitrun hafi verið að ræða, — en
lík Snæbjarnar verður sent til
Reykjavíkur til réttarkrufningar.
Læknirinn sagði, að mennirnir
tveir, sem cnn eru á sjúkrahús-
inu, séu nú á batavegi og sömu-
leiðis allir þeir af skipshöfninni,
sem veiktust. Yfirmennirnir á tog-
aranum kenndu sér einskis meins,
nema vélstjórinn, eins og fyrr er
um getið.
Togarinn fór á veiðar síðast-i
liðinn þriðjudag. Hafði ekkert
gerzt til tíðinda fyrr en veikinnar
varð vart á fimmtudaginn. Voru
Þeir þá á veiðum á Lóndjúpi. Ekki
Framh. á 14. síðu
Sjúklingur vakinn til lífsins á Akranesi:
Hjartað stöðvaðist
í tæpar 10 mínútur
SJÚKLINGUR á sjúkrahúl^
inu á Akranesi var dáinn í u.
þ.b. 10 mínútur í fyrradag. Var
verið að flýtja hann á skurð-
arborðið, er hjarta hans hætti
skyndilega að starfa. Yfirhekn
irínn Páll Gíslason, greip til
þess ráðs að nudda hjarta hans,
og eftir 8—10 mínútur var það
farið að slá aftur eðlilega.
Sjúklingurinn var Ingþór
Bjarnason, 19 ára gamall Akur
nesingOT^ sbrn hinn 7. þessa
mánaðah, slasaðist mjög alvar
lega, er síldarháfur féll á hann
í lest vélbátsins Skipaskaga.
Ingþór skaddaðist mjög mikið
Framh. á 12. síðu.