Alþýðublaðið - 20.01.1963, Síða 7
iimtnniriiiiiiiHitiniinmtiiiitiiiiiiiiniiiiiiiitiiiiimtiitiiiiiiiiiiiiiimiimimiruiiiip
Hvað gerðist
í Hafnarfirði?
SÉRKENNILEGT ástand hefur
skapazt í Hafnarfirði eftir að
samstarf framsóknar og íhalds
fór út um þúfur liðlega sex
mánaða gamalt. — Meirihluti
þeirra er úr sögunni, en eng-
inn nýr meirihluti hefur mynd-
azt, svo að sjálfstæðismenn sitja
í þeim störfum, sem þeir voru
kjörnir í. Nýjar kosningar geta
ekki farið fram, nema samkomu
lag náist ekki um kjör bæjar-
stjóra. Ef nýr meirihluti mynd-
aðist, mundi bæjarstjórinn að
sjálfsögðu verða að víkja, en nú
situr hann meirihlutalaus — og
verður fróðlegt að sjá, hvernig
það gengur. Óneitanlega er
þetta mjög hættulegt ástand fyr
ir bæjarfélagið.
Samvinna framsóknar og í-
haldsins reyndist lærdómsrík
þann stutta tíma, sem hún stóð.
Ilelztu afrekin voru hærri út-
svarsálögur en nokkru sinni
fyrr, en þó kyrrstaða í fram-
kvæmdum. Þótt kvartað væri
um peningaleysi voru Iaun yfir
manna hækkuð stórkostlega á
sama tíma sem engar undirtekt-
ir fengust undir hækkun ann-
arra starfsmanna bæjarins til
samræmis við broddana. Og svo
bættust atvinnuofsóknirnar of-
an á allt annað.
Mest hefur verið rætt um mál
verkstjórans hjá bæjarútgerð-
inni, en brottrekstrarmálin eru
fleiri. Sem dæmi má nefna
Þórð Þórðarson, sem verið hef-
ur framfærslufulltrúi bæjarins.
Hann hefur verið einn af for-
ustumönnum alþýðunnar í Hafn
arfirði og bæjarfulltrúi Alþýðu
flokksins — og var nú rekinn
úr starfi. Ýmsir heiðarlégri
meirihlutamenn skömmuðust
sín fyrir framkomu flokks-
manna sinna I máli Þórðar, og
sögðu þá jafnan: Við gátum ekk
ert að þessu gert. Framsókn
vildi þetta endilega. Og eitthvað
verða nú framsóknarmenn að
hafa upp úr samstarfinu!
Þannig upplýstist, að það var
samkvæmt kröfu framsóknar-
manna, sem þessi starfsmaður
bæjarins var rekinn úr
starfi. En brottrekstrarhvat-
ir framsóknar voru ekki
takmarkaðár við Þórð. *Þeg-
ar tók að kulna milli þeirra
og íhaldsmanna, kröfðust þeir
þess, að forstjóri bæjarútgerð-
arinnar, sem þeir sjálfir höfðu
kosið í starfið hálfu ári fyrr,
væri látinn fara og spöruðu ekki
ákærur á hendur honum. Þegar
þeir gátu ekki komið þessum
brottrekstri fram, slitu þeir sam
starfinu.
Til að beina athygli frá hinni
smánarlegu stjórn Hafnarfjarð-
ar í hálft ár, halda íhaldsmenn
og framsókn fram þeirri fjar-
stæðu, að fjárhagur bæjarins
hafi ekki verið í góðu Iagi. Nú
hafa verið lagðir fram reik"
ingar bæjarins fyrir árið 1961,
sem var síðasta ár jafnaðar-
manna. Samkvæmt þeim hefur
eign bæjarins umfram skuldir
aukizt um 3 milljónir á því
ári og tvöfaldast á fjórum ár-
um. Útgjaldaliðir höfðu yfir-
leitt staðizt þetta ár, nema verk
legar frárhkvæmdir (götur, vatns
veita, holræsi og skólar) höfðu
farið 1,7 milljón fram úr áætl-
un. Var þetta óhjákvæmilegt
vegna hins öra vaxtar bæjar-
ins. Þessir reikningar sönnuðu,
að fjárhagur bæjarins var með
blóma og stóð traustum fótum,
er hinn skammlífi meirihluti
tók við.
Þegar Alþýðuflokkurinn tók
við bæjarstjórn Hafnarfjarðár
af íhaldinu 1928, var fjárhagur
bæjarins í þvílíkum rústum, áð
skuldir hans námu sex ára út-
svörum á þeim tíma og skuld-
laus eign var aðeins 45 þúsund-
ir. Alþýðuflokksmenn innleiddu
þar framkvæmd á hugsjónum
jafnaðarstefnunnar, beittu hinu
opinbera til að tryggja afkomu
fólksins, þegar einstaklingsfram
takið hafði brugðizt, og létu vel-
ferðarráðstafanir sitja í fyrir-
rúmi. Þarna var snúið við blaði
í stjórnmálasögu þjóðarinnar.
Síðan hafa þessar hugmyndir
hlotið almenna viðurkenningu
og ísland er orðið eitt af mestu
velferðarríkjum veraldar. Allir
flokkar aðhyllast meira eða
minna af stefnunni í orði, en
hálfs árs reynsla af samst'
íhalds og framsóknar hefur sýnt
Hafnfirðingum fram á, að trúin
á þessa stefnu stendur ekki
djúpt í huga hinna nýju herra.
Reynslan í landsmálum sýnir
raunar hið sama. Tryggingakerf
íð er nú orðið lang þýðingar-
mesti hluti velferðarríkisins,
600 milljón króna tekjujöfnun
frá hinum sterku til hinna veik-
ari í þjóðfélagi okkar. En trygg
ingakerfinu hefur alltaf hrakað
og þýðing þess minnkað, þegar
Alþýðuflokkurinn hefur ekki
haft aðstöðu til að standa vörð
um það. Á sama hátt hafa hin
stóru framfaraskref í trygginga
málum verið stigin, þegar AI-
þýðuflokkurinn hefur verið í
stjórn og krafizt þeirra.
Þetta hefur verið hin mikla
þjóðfélagslega þýðing Alþýðu-
flokksins síðari ár, og alþýða
Iandsins mundi fljótlega verða
vör við breytingu á velferðar-
ríkinu, ef flokkurinn missti að-
stöðu til að gegna þessu hlut-
verki.
EITT I DAG
ANNAÐ Á MORGUN
ÞAÐ er athyglisvert viff
stjórnmálin á íslandi, hve
mjög sumum forustmnönn-
um flokkanna hættir til aff
taka allt aðra afstöðu til
mála, þegar þeir eru í stjórn
eða utan stjórnar. Eitt
gleggsta dæmið um þetta er
afstaffa Framsóknarflokks-
ins til hvers konar utanríkis
mála. Þeir spila sig alltaf
eins konar þjóðvarnarmenn,
þegar þeir eru í andstöffu,
en eru gallharðir alþjóffa-
sinnar, þegar þeir þurfa aff
sitja í ráðherrastólum. Einu
sinni rugluðust línurnar hjá
þeim. Ráðherra flokksins var
ákafur stuffningsmaður
NATO í París sömu dagana,
sem formaffur flokksins var
aff sparka í NATO hér
heima.
ÞÁ MÁTTI TALA
UM BANDALAG
ÞEGAR vinstri stjórnin sat,
voru sexveldin á meginlandi
Evrópu aff mynda Efnahags-
bandalagiff. Þá voru gerffar
miklar tilraunir til að breyta
því í allsherjar tollabanda-
lag fyrir alla Vestur-Ew-
ópu og voru haldnir mikiir
fundir um það í París á veg
um OEEC. Þá töldu Alþýffu-
flokkurinn og framsókn tví-
mælalaust rétt, að ísland
tæki þátt í þeim umræffum
til að varðveita hagsmtmi
landsins og tók Gylfi Þ.
Gíslason þátt í mörgum slík-
um ráðstefnum. Nú er mjög
svipað uppi á teningunum
í sömu málum, en framsókn
telur það fráleitt að rætt
sé við nokkurn mann. Þver-
. öfug afstaffa.
BREYTT AFSTAÐA
TIL KOMMANA
í VINSTRI stjórninni var
samkomulag Alþýffuflokks-
ins og kommúnista mjög
slæmt og þurfti framsókn
oft að ganga á milli — en
tók líka oft afstöðu meff
kommunum. Þó skildu Éy-
steinn og Hermann, að ekki
þýddi aff ræffa tollabanda-
lagsmáliff viff kommúnísta
og voru engin samráff höfff
viff þá um viðræðurnar í
París. Þetta fannst framsókn
vera rétt. Nú eru framsókn-
armenn utan stjórnar, og
þjappa sér upp að kommún-
istum í þessu máli. Þveröf-
ug afstaða.
Svona gengur þaff. Á-
byyrgðarleysi, hringsnún-
ingur, áróður. Það er starf
og stefna framsóknar í dag.
Er hægt að styrkja slíkan
flokk til áhrifa í landinuf
DOMUR
Opnum aftur á mánudag að
HVERRSGÖTU 37.
Permanent frá 150 kr.
Handsnyrting á meðan þér eruð í hárþurrku.
Einnig handsnyrting fyrir karlmenn. (Þarf að panta meíJ'
fyrirvara).
Tökum sérgreiðslur og lagningu án þess að panta sérstak*-
an tíma.
Öll hárskol dýr og ódýr,
Sérstök háralitun framkvæmd af starfsfólki sem unniQf
hefur hjá hinu þekkta hárlitunarfyrirtæki CLARIOL.
Minha Breiðfjöð
(áður Raffó).
ItlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIItllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIUIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlMIIHIIIIIIIIIIIIttllHIIIIUIIMIIIIIUUnuVuuVtuHHIlVllUtUUHMIIIMHniÍHHVriufntlMUHHHUnM
Útsala á skófatnaði
SELJUM MEÐAL ANNARS:
Karlmannaskó Verð kr. 210.— og kr. 298.—
Kvenskófatnað sléttbotnaða og með hæl. Verð frá kr. 98.—
Nælonsokka saumlausa og með saum. Verð kr. 15.— og kr. 25.— parið
Austurbæjar
:c.
£
1
:r
i
1
■E
LAUVAVEGI 100 ]
.........
ALÞÝÐUBLAÐiö - 20. januar 1963