Alþýðublaðið - 22.01.1963, Qupperneq 1
44. árg. — Þriðjudagur 22. janúar 1963 — 17. tbl.
Réttu fanganum hringínn
LOGREGLAN tók í fyrrinótt
tvo menn, er höfðu klifrað
yflr girðingvna, sém er í
kringum Hegningartiúsið við
Skólavörðustíg. Fóru þeir yf-
ir garðinn og síðan út aftur,
eftir að hafa afhent eimun
fanganum mynd af kærustu
hans og trúlofunarhring.
Mun þetta ferðalag hafa
verið næsta auðvelt fyrir þá,
og er yfir múrinn kom gátu
þeir auðveldlega rétt fangan-
um myndina og hringitin,
enda var hægt að opna gh gga
á klefa hans, og gat hann
tekið við hlutunum milli riml
anna. Hefðu þeir alveg ehis
getað rétt honum járnsagar-
blað eða járnklippur.
TALIÐ er fullsannað, að citur-
loft frá frystitækjum togarans
Röðuls hafi orsakað veiki þá,
Myndin til vinstri er tekin
inni í fremsta hásetaklefanum,
en þar svaf Snæbjörn Aðils, og
þar er talið að eiturloftið hafi
verið mest. Sængurföt og fatn-
aður skipverja lá þar á víð og
dreif, og auðséð að klefinn hafði
verið yfirgefinn í miklu hasti.
Myndin til hægri er tckin
af lúgunni, sem eiturlofi.ið
streymdi upp úr netalestinni.
Klefinn fremst er lengst til
liægri frá lúgunni.
sem upp kom á togaranum, er
hann var að veiðum á Meðal-
landsbugt i síðustu viku. Eins
og kunnugt er af fréttum leiddi
þessi eitrun einn hásetaun til
dauða, Snæbjörn Aðils, 22 ára
pilt úr Reykjavík. Tveir háset-
anna liggja á sjúkrahúsinu í
Vestmannaeyjum, og er annar
þeirra,, Brynjar Valdimarsson,
mjög þungt haldinn. Ellefu skip
verjar af Röðli liggja á borgar-
sjúkrahúsinu í Reykjavík. Eng-
an yfirmann skipsins sakaöi
nema vélstjórann.
Hið eitraða efni, sem í fr.vstl
tækjunum var, er metliylkóríð.
Það er bannvænt, en í Ijós hef-
ur komið, að það hefur lekið
út, þar eð þéttiskífur vorn éþétt
ar og útblástursvifta hafði ekki
verið höfð í gangi. Frystivélin
er í netageymslunni undir lúk-
arnum, en í gólfinu þar á milli
er hleri, sem Ioft getur leitt
með. Mlkils var því um vert, að
loftræsting væri góð.
Skipaskoðunarstjóri, Hjálmar
R. Bárðarson, sagði í viðtali við
Alþýðublaðið í gær, að líklega
yrði þetta ægilega slys til þess
að skipt væri um efni í frysti-
tækjum þeirra skipa, sem enn
hafa methylklórið £ frystitækj-
um sinum og sett í þess stað
efnið FREON 12, sem er hættu
laust, — en mörg hinna eldri
skipa hafa þegar Iátið skipta um
efni í frystitækjunum og öll hin
nýrri skipin eru með FREON
12.
Þetta verður líklega til þess,
að skipt verður um efni í frysti
tækjum allra togáranna, sem
enn ern með methylklórid, —
en það eru ekki, að ég held,
nema hinir svokölluðu nýsköp-
unartogarar, sem smíðaðir voru
í Bretlandi á árunum eftir stríð
ið. Röðull var smíðaður £ Bret-
landi árið 1948. — Þetta sagði
skipaskoðunarstjóri rikisins, —
Hjálmar R. Bárðarson, í viðtali
við Alþýðublaðið I gær.
Skipaskoðunarstjóri sagðl að
endanlegri rannsókn Röðuls-
málsins væri ekki lokið, en sró
virtist sem augljóst væri, að
veikindi hásetanna stöfuðu af
eitrun frá kælivökvanum i fr.ysti
vél skipsins. Við rannsókn á
t