Alþýðublaðið - 27.03.1963, Side 1

Alþýðublaðið - 27.03.1963, Side 1
hann Ólafur Ólafsson, varð fyrir j bifreið á Kársncsbraut móts við húsið nr. 28. Hann var þegar flutt ur á slysavarðstofuna, en var lát inn er þangað koma. Þetta er ann að dauðaslysið í Kópavogi á rúm um mánuði. Nánari atvik eru þau, að bifreið var ekið vestur Kársnesbraut. í sama bili komu þrír litlir drengir hjólandi niður Hábraut, og beygðu inn á Kársnesbraut. Jó- hann litli hjólaði út á miðja göt- una, en þar rann hjólið til og hann féll af því. MlkU hálka var, og j tókst bifreiðarstjóranum ekki að hemla í tæka tíð,- eða sveigja frá Jóhanni. Bifreiðin mun hafa far- ið yfir hann. Er bifreiðih stöðvaðist lá Jó- hann á götunni fyrir aftan hana, og var meðvitundarlaus. Sjúkra- bifreið kom þegar á vettvang, og Jóhann fluttur á slysavarðstofunfi. Hann var andaður þcgar þangað kom. Jóhann átli heima að Ktirsneg- braut 25, og var faðir hans Óíaf- ur Þorgrímssou. DAUÐASLYS varð í Kópavogi í gærmorgun um klukkan hálf níu. Sjö ára gamall drengur, Jó- Kuldamynd Óvenjuleg mynd af vorhreti gærdagsins. Hún er tekin ofan úr Kolakrananum um fjögurleyt iff. SkipiS, sem veriS er a8 af- ferma, er Selfoss 400 þús. tapa aleigu á BaBi DJAKARTA, 26. marz. NTB-Reuter. Um 400 þús. manns hafa misst aleiguna á eyjunni Bali vegna eldgossins í Agung-eld- fjallinu. Forseti Rauða Kross Indónesíu, frá Abdul Rahman, skýrði frá þessu í dag. Þetta fólk verður ef til vill flutt til annarra eyja þar eð sá hluti Suð-austnr-Bali, þar sem það bjó, er nú hulinn ösku, hrauni og grjóti. Líða munu að minnsta kostí tíu ár áður en aftur verður hægt að rækta Framhald á 13. síðu. LONDON, 26. marz (NTB-Reuter-AFP) — Rúmlega 7 þúsund atvinnu leysingjar, sem höfffu streymt til London víðsvegar að af landinu lentu i óðum áflogum í dag við fjölda blákiæddra lögreglumanna fyrir utan aðalinnganginn að Neðri málstofunni. Margir meiddust og varð að flytja þá burtu f sjúkrabifreiðum. Enda þótt svo virtist í kvöld sem lögreglunni hefði borizt liðsauki og hún hefði tök á ástandinu voru enn mörg þúsund uppþotsmanna f nágrenni þingbyggingarinnar. Mótmælaaðgerðir sem þessar, þar sem borin voru spjöld með kröfum um atvinnu og brauð hafa ekki komið fyrir í London síðan á árunum milli heimsstyrjald- anna. Uppþotsmennirnir, sem komið höfðu til London í lestum og stræt isvögnum, gengu fyrst um göt- urnar með spjöld sem á stóðu víg orð eins og „Gefið okkur atvinnu“, „Niður með Macmillan" og „Út j með Tóríana (íhaldsmenn)“. Verkamennirnir söfnuðust því | næst saman til fjöldafundar, en síðan var gengið til þinghússins. Þeir reyndu að ryðjast inn í Neðri málstofuna, þar sem þingfundur stóð yfir. Ekki komust allir til þinghússins því að lögreglusveit- irnar höfðu fyrirskipað, að kröfu gangan yrði leyst upp, þur eð komið hafði til áfloga. Einkum var mikil harka í leikn- um fyrir utan hinn sögulega Inn- gang, St. Stephens. Verkamenn- irnir hrópuðu í takt: „Út með Tóríana." Um 500 ríðandi og fót- | gangandi lögreglumenn háðu ör- væntingarfulla baráttu til þess að halda mannfjöldanum í skefjum, og þegar liðsauki hafði borizt tókst að halda uppþotsmönnunum frá þingbyggingunni. Margir þingmenn reyndu að tala við fjöldann úr gluggunum, en enginn heyrði í þeim. Umræð ur Neðri málstofunnar héldu á- fram eins og ekkert hefði í skor- izt. Samkvæmt bráöabirgðatölumi eru a.m.k. tveir lögreglumenn svo alvarlega slasaðir, að það varð að flytja þá á sjúkrahús. Nokkrir npp, þotsmenn voru handteknir. í kvöld var tilkynnt utn dreifða á- rekstra milli lögreglumanna og uppþotsmanna I hliðargötunum, en jafnframt var nýr liðsaKki kvaddur á vettvang. Tveim stundum eftir að áftogin dundu yfir stóðu mörg hundruð lögreglumenn eins og veggur fyr ir framan þiiighúsiö. Fréttaritari Reuters skrifar, aði minnstu hefði munað að uppþots- Framhald á 13. síðu. ÞINGHÚSIð — Þingmenn fengu ekki hljóð út um gluggana. DAUÐASLYS í KÓPA- VOGI I GÆRMORGUN

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.