Alþýðublaðið - 27.03.1963, Side 7
ýx^.-íi:
á;-:;-- - ::v<
-SMÆLKI-SMÆLKI-SMÆLKI ÍM-iMu
ÞULUR í kvöld er Jóhannes Arason. Hann hefur starfað við Ríkis-
útvarpið sem þulur frá því árið 1956. Þulirnir við Ríkisútvarpið vinna
á vöktum, sex klukkustundir í senn, stundum getur þó svo farið', að
vaktirnar hjá þeim séu tólf eða jafnvel fimmtán klukkustundir í Iotu.
Viðskiptavinurinn: Hvað á þetta
að þýða, það var fluga á botnin-
um í tebollanum mínum?
Þjónninn:. Hvernig á ég að geta
sagt um það, ég er þjónn en ekki
spákona.
★
Unglingurinn: Hvað þarf ég að
bíða lengi eftir rakstri?
Rakarinn: Svona tvö ár.
★
Móðirin: Hvað sagði pabbi þinn,
þegar þú sagðir honum að þú vær
ir búinn að klessukeyra nýja bíl-
inn?
Sonurinn: Á ég að sleppa blóts-
yrðunum.
Móðirin: Já, umfram allt.
Sonurinn: Að þeim undanskildum
sagði hann ekki stakt orð.
★
Viðskiptavinur.- Mig vantar
hjarir til þess að setja á endavegg
inn á bílskúrnum mínum.
Búðarmaðurinn: Það var skrýtinn
staður fyrir hjarir.
Viðskiptavinurinn: Já konan mín
er ekki alveg viss á því hvenær hún
á að stoppa þegar hún er kominn
með bílinn inn.
Hann: Eina nóttina meðan þú
varst í burtu heyrði ég í innbrots-
þjófi. Þú hefðir átt að sjá til mín
þegar ég stökk niður. Ég tók
minnst þrjár tröppur ( skrefi.
Hún: Var þjófurinn uppi á þaki,
eða hvað?
★
— Varst þú á bílnum í gærkveldi
sonur sæll
— Já, ég fór í smábíltúr með
strákana-
— Jæja, þú getur sagt tveim
þeirra, að ég hafi fundið varalit-
ina þeirra í aftursætinu á bílnum.
★
Lögregluþjónninn: Heyrðuð þér
ekki þegar ég kallaði og sagði yð
ur að stoppa?
Ökumaðurinn: Ég vissi ekki að
það væruð þér. Ég hélt það væri
einhver, sem ég hefði keyrt á.
★
Dóttir ritstjórans kom heim úr
sunnudagaskólanum með biblíu-
mynd í iitum.
— Hvaða mynd ertu með þarna,
spurði ritstjórinn, faöir hennar.
— Ó, þetta er bara auglýsing frá
himnaríki, svaraði sú litla.
Miðvikudagur 27. marz.
8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi. ______ 8.15 Tónl. __
8.30 Fréttir. — 8.35 Tónl. — 9.10 Veðurfr. ___ 9.20 Tónl.).
12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar).
13.15 Þáttur bændaVikunnar: Frá búnaðarþingi. Agnar Guðnason fær
búnaðarfulltrúa til að segja frá störfum og afgreiðslu mála á
þinginu.
14.15 „Við vinnuna“: Tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum“: Sigurlaug Bjarnadóttir les skáldsög-
una „Gesti“ eftir Kristínu Sigfúsdóttur (11).
15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.00 Veður-
fregnir. — Tónleikar. — 17.00 Fréttir. ,— Tónleikar).
17.40 Framburðarkennsla í dönsku og ensku.
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Börnin í Fögruhlíð" eftir Halvor Flod-
en; III. (Sigurður Gunnarsson).
18.20 Veðurfregnir. — 18.30 Þingfréttir. — 18.50 Tilkynningar.
19.30 Fréttir.
20.00 Lestur fornrita: Ólafs saga helga; XXI. (Óskar Halldórsson
cand mag.).
20.20 Kvöldvaka bændavikunnar:
a) Sumardvöl kaupstaðarbarna í sveit: Séra Bragi Friðriksson
flytur ávarp, og rætt verður við Reykjavíkurbörn og hjónin
að Hlíð í Gnúpverjahreppi.
b) Veiðimannaspjall: Erlendur Vilhjálmsson deildarstjóri ræðir
við Kristján Guðmundsson veiðimann.
c) Á milli kunningja: Páll Zóphaníasson fyrrverandi búnaðar-
málastjóri og Ólafur E. Stefánsson ráðunautur talast við. -
d) Þrjú skemmtiatriði frá Dalvík: Jóhannes Haraldsson fer með
lausavísur, Jóhann Daníelsson syngur og Karlakór Dalvíkur
syngur undir stjórn Gests Hjörleifssonar.
e) Lokaorð formanns Búnaðarfélags íslands, Þorsteins Sigurðs-
sonar bónda á Vatnsleysu.
21.45 íslenzkt mál (Ásgeir Blöndal Magnússon cand. mag.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. — 22.10 Passíusálmar (39).
22.20 Kvöldsagan: „Svarla skýið“ eftir Fred Hoyle; XI. (Örnólfur,
Thorlacius).
22.40 Næturliljómleikar: Síðari hluti tónleika Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói 21. þ. m. Stjórnandi: William Strickland.
a) „In a Paradise Garden“ eftir Frederick Ðelius.
b) Sinfónía nr. 16 (íslands-hljómkviðan) eftir Henry Cowell.'
23.15 Dagskrárlok.
ötti við
háhýsi
UM ÞESSAR mundir er verið
að byggja nýjar höfuðstöðvar fyr
ir bandarisku Ieyniþjónustuna
CIA í Virginíu fylki skammt fyr-
ir utan Washington. Þetta verður
hátt hús og mikið um sig, enda
munu starfa þar 20 þúsund manns.
Nú hefur komið í ljós að verði
háhýsi byggt í grennd við þetta
hús, munu þeir sem þar búa og
,eiga sterka sjónauka getið lesið
Ieyndarskjöl á borði yfirmanns
leyniþjónustunnar án þcss að hafa
mikið fyrir því.
Stjórnin leggur nú áherzlu á
að kaupa upp allt land í nágrenni
þessa húss. Tvær fjölskyldur búa
mjög nálægt húsinu og til þess
að hús þeirra yrðu ekki tekin eign
arnámi urðu þær að gangast und-
ir þá skuldbindingu um að selja
ekki lóðir sínar undir háhýsi.
DR. CARLO SCHMID, sem sótti
okkur íslendinga heim fyrir
skömmu, er maður all gildvaxinn.
Erlcndur blaðamaður spurði hanu
fyrir skömmu hvaða kýmnisaga
um sjálfan sig dr. Schmid þætti
bezt.
Hann svaraði því til, að eitt sinn
liefði hann verið að bíða eftir
dóttur siuni fyrir utan skóla sem
hún sótti, þegar umsjónarmaður
skóláns vék sér að honum og
spurði, hvort hann ætti von á
barni.
— Nei, sagði doktorinn, ég lít
alltaf svona út.
BARNAÞRÆLKUN
AUSTURLÖNDUM
VÍÐA er það svo í veröldinni, að
börn eru látin byrja að vinna allt-
of ung. í austurlöndum er algengt
að börn séu snemma látin byrja
að vinna erfiðisvinnu og hafi þá
alit að því cins langan vinnudag
og fullorðna fólkið. í mörgum
löndum er lagt banu við því að
börn byrji að vinna fyrr en þau
hafa náð ákveðnum aldri. Víða er
þó erfitt að fylgja þessu banni cft
ir. Þar sem ekki eru nógir skól-
ar, kemur það af sjálfu sér að
börnin byrja snemma að vinna.
Rannsókn á þessum málum í
írak sýndi, að árið 1959 unnu 165
þúsund drengir og 135 þúsund
stúlkur yngri en fjórtán ára að
landbúnaðarstörfum. í samskonar
rannsókn ári síðar kom í Ijós, að
yngstu börnin, sem störfuðu að
iðnaði voru aðeins níu ára gömul.
Yfiivöld á Kýpur hafa tilkynnt,
að þar á eynni starfi fjöldi fyrir-
tækja, sem hafi í vinnu börn, sem
séu undir löglegum aldri.
I Egyptalandi kom í Ijós á ár-
unum 1957—1958, að 6—8% af
öllum börnum í sveitum í landinu
á aldrinum 6—11 ára, unnu allan
ársins hring. í borgum þar í landi
var hliðstæð tala 3,6%. Orsökin
til þessa, er sú, að I borgunum býr
menntaðra- fólk, þar eru fleiri skól
ar og yfirleitt rninna um vinnu.
i í iöndum eins og íran, írak og
Arabiska sambandslýðveldinu nær
vinnubann ekki til barna uudir
tólf ára 'aldri, sem starfa í Iand-
búnaði eð'a við heimili sín. í Tyrk-
landi mega ekki börn yngri en
tólf ára starfa við iðnað.
Það eru fyrst og fremst af fjár
hagsástæðum fjölskyldnanna, aff
svo mörg börn í Austurlöndum
verða snemma að byrja vinna fyr-
ir sér með því að selja sígarettur,
vefa teppi eða ganga um beina á.
veitingahúsum.
— Þú lítur bara á mig, sJnr
eitt af húsgögnunum.
ALÞÝOUBLABiÐ — 27. marz 1963 J