Alþýðublaðið - 27.03.1963, Síða 9

Alþýðublaðið - 27.03.1963, Síða 9
yJÓÐALEIKHÚSSDAGSINS fjarlægist hyort tveggja innra eSli hans, sem er ósýnilegt. Raunar felst hinn leyndi burðarós sjálfs leikformsins einmitt í því að draga smátt og smátt fram í dagsljósiö hið falda óg ósýnilega. Sjónléikur er ekki góður fyrir það sem hann sýnir,- heldur hitt, sem undir býr, og mannkynið hefur alltaf metið að verðleikum þíru lcikrit, sem sýna alheiminn í manninum, þá þætti eðlis hans, sem eru alþjóöleg ir. Undravert er, að í dag, þegar mannheimurinn virðist vera full- komlega klofinn vegna stjórn- mála,'sýnir listin og einkum leik- húsið, að innri eiginleiki hans þekkir engin landamæri. LeÍKrit sem hrífa hugi manna í einu lendi, ná stöðugt sterkari tökum í öðrum löndum. Hinar ýmsu þjóðmenn- ingar hafa alltaf átt ítök í hver annarri, en nú sameinast þær á augljósan hátt. Samt sem áður stöndum við andspænis hvert iðru í viðkvæmum vandamálum lífs og dauða, eins og verur frá ólikum i hnöttum. Leikhúsið hefur óafvit- andi og vissulega án þe?s r.ð stefna að því, sannað okkur, að mannkynið er innst inni ein heild, þrátt fyrir margvíslegar þjóð- menningar og hefðir. Ég lít svo á, að aldrei hafi nútímaleikrit verið eins fljótt skilin alls staðar í heim- inum, sem nú. Mikilvæg frumsýn- ing í New York er á skömmum tíma endurtekin i Berlin, Tokio, London, Aþenu. Og megi marka reynslu mína, eru viðbrögðin skki mjög ólík á hinum ýmsu stöðum. Einnig í þessari merkingu er sam líkingin orðin að staðreynd: allur heimurinn er nú leiksvið, á einum og sama tíma. >að er einnig mikils virði, að sjónleikurinn, ef til vill framar öðrum listgreinum, er hið útvalda tjáningartæki. Á leiksviðinu verð- ur maðurinn að leika og hann verð ur að byggja leik sinn á mannleg- um verðmætum. Nú á tímum, þeg ar hið fánýta yfirgnæfir andann, þegar drepandi aðgerðarleysi ógn ar hjartanu ,er mikils virði, að við skulum hafa yfir að ráða aðferð, sem með tilveru sinni einni sam- svonefndi and-leiklist og absurd- leiklist, sem fram hafa komið á síðari árum, sýnast vera i andstöðu við raunverulegt hlutverk leiklist arformsins, er það ekki andstaða, heldur þversögn. Leikiist, sem sneiðir hjá ákveðnum aðgerðum, speglar alþjóðleg hugarþrengsl, út breidda vantrú á getu mannsins til þess að hafa áhrif á örlög sfn, þar sem öllum skoðunum er hafnað nema kaldhæðni. Hún sór ekki manninn annars staðar en á barmi grafar sinnar; hið eina óhjákvæmi lega, sem hún kemur auga á ,er ó- sigur hans gagnvart sjálfum sér. Hún sýnir ringlaðan manninn, sem er orðinn að flóni eftir að hvert trúarkerfið af öðru er hrunið til grunna. Umrædd leikrit eru fylli- lega sannfærandi, ef bau eru sett á svið daginn fyrir heimsendi. Enn betri, séu þau sviðsett daginn eftir. Fram að þessu hafa þau þó átt gengi að fagna, sem sannar að þau veita fólki skemmtun, ef til vill þá skemmtun að sjá sett á svið þann útbreidda grun, að ekk Framh. á 14. síðu VERNDUM ÚRNINN ÞAÐ væri leiðinlegt, ef við lét- um þessi fáu arnarhjón sem eftir lifa, deyja út. Væri okkur þá lít- ill heiður af menningarþroska okkar. Eg er viss um, að enginn ís- lendingur vill vita þá skömm, að okkar fegursti og stærsti fugl líði tmdir lok, sem hefur þó byggt ís- land lengur en þjóðin. Til þess að tryggja það, að svo verði ekki, ætti að greiða álitlegum manni góða upphæð fyrir að líta eftir og vernda þau arnarhjón, sem vitað er um. Það gæti verið einn mað- ur úr hverri sveit, þar sem arnar- hjón eru. Ætti það að vera nokk- ur trygging fyrir öryggi hans. Eg átti heima um tíu ára skeið þar sem arnarhjón voru. Fór upp í hreiður þeirra og sá ungana tvo spræka og fríska. Varð þó aldrei var utan einu sinni að þau kæmu með nema einn unga niður. Þessi eini ungi var með foreldrunum allt sumarið en hvarf um haustið. Eins var þetta eina sumar, sem ung- arnir voru tveir. Mætti ekki gera afkomuna ör- uggari, þar sem hægt er að kom- ast að hreiðrinu. Til dæmis með því að taka annan ungann og sjá honum farborða fyrst um sinn. — Þetta gæti verið eitt af því, sem eftirlitsmaðurinn hefði með hönd- um. Ef hann fengi sæmilega þóknun, þá gæti þetta verið nokk- ur styrkur fyrir stofninn. Áður en ver er farið, er rétt að taka þetta nokkuð föstum tök- um, annars er ekki góðs að vænta. Eg veit, að þeir, sem eiga hér hlut að máli, sjá þessu máli borgið. Jón Arnfinns. Umferðarslys á Akureyri Akureyri í gær: SKÖMMU fyrir miðnætti í gær, varð alvarlegt umferðarslys hér í bæ. Leigubifreið var ekið aftan á mann, sem var á gangi I skammt frá bifreiðaverkstæðinu ' Þórshamri. Maðurinn féll í göt- , una, og hlaut meðal annars fót- brot. Mjög slæm iýsing er þarna við götuna. I I I I I I STÓRFELLD FARGJALDALÆKKUN í APRIL OG MAI * MOTI0 TÆKIFÆRIÐ Nú er einstakt tækitæri tii þess að njóta hinna ÓDÝRU SKJÓTU OG ÞÆGILEGU yjmjHMJlKJU ferða Flugfélagsins til Evrópu — Kynnið yður vorfargjöldin hjá okkur eða ferða- skrifstofu yðar LæBckunin ueunir t.d. þessum uppuæ&iim Rvík — Kaupmannahöfn — Rvík kr. 1688.— Rvík — Stokkhólmur — Rvík kr. 2786 — Rvík — París — Rvík kr. 2163 — Rvík — Oslé — Rvík kr. 2134 — Rvík — Glasgow — Rvík kr. 1207 — Rvík — London — Rvík kr. 1519 — Rvík — Hamborg — Rvík kr. 2166.— ^ GILDISTÍMI FARSEÐLA SKV. VDRFARGJÖLDUNUM ER EINN MÁNUÐUR FRÁ BRDTTFARARDEGI HÉÐAN - jiir-M '/wfflaár Á/a/ufsax i I I I | ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 27. marz 1963 9

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.