Alþýðublaðið - 27.03.1963, Qupperneq 16
ÞETTA SOGBll KIR
ALLTAF helzt sama blíðan, segja fréttarita'arnir. Háfættur skjóttur hestur kom í heiminn
norður í Þingeyjarsýslu um daginn og undi sér vel í vorveðri vetrarins. Skagfirðingar undirbúa
sæluviku. Ný tæki hafa verið keypt tii Rauðku á Siglufirði. Hvernig fer með landsmót skíða-
manna? Verður Jiað haldið á Vatnajökli?!
Fréttabréf frá Sauðárkróki.
Aðalfundur Alþýðuflokksfé-
lags Sauðárkróks var haldinn
22. marz sl. Á fundinum fór
fram kosning stjórnar og trún-
aðarmannaráðs. Fráfarandi for-
maður baðst undan endimkjöri
og var honum og stjórninni
þakkað fyrir störf undanfar-
inna ára. í stjórn voru kosnir:
Gúðbrandur Frímannsson, for-
maður, Jón Karlsson, gjaldk.,
Birgir Dýrfjörð, ritari og með-
stjórnendur þeir Ármann
Helgason og Albert Magnús-
son. Á aðalfundinum var rætt
um stefnuskrá flokksins og
ýmis önnur mál.
Sæluvika Skagfirðinga hefst
31. marz. Leikfélag Sauðár-
króks sýnir Fjalla-Eyvind, leik-
stjóri er Eyþór Stefánsson. —
Kári Jónsson, fulltrúi, ’leikur
Éyvind, en frú Eva Snæbiam-
ardóttir Höllu. Leikurinn verð-
ur sýndur í félagsheimilinu
Bifröst. Þar verður kvenfélagið
lika með kabarett. Einnig
munu karlakórar syngja og
svo verður auðvitað stiginn
dans,
í Alþýðuliúsinu verður rev-
ía, sem frú Guðrún Gísladóttir
hefur samið, og er hún leikstj.
Karlakórinn syngur í húsinu.
Ýmislegt fleira verður og þar
til skemmtunar. t- b.d.
Fréttir frá Akureyri.
Sífelld blíða liefur haldizt
liér á góunni, og sólin hefur
brætt upp allan snjó úr bæ
og byggð. Naumast er þverfót-
að fyrir bamavögnum á gang-
stéftum strætanna, en sjaldan
ber mikið á því ,,ökutæki“ á
góunni.
Meðan færeyskur togari beið
bráðabirgðarviðgerðar í höfn á
Akureyri, brugðu skipverjar
sér í Iand og skruppu austur í
Vaglaskóg. . Færeyingunum
þótti skógurinn vorlegur á aö
líta og brugðu sér í sólbað í
skjóli trjánna.
í nýútkomnum íslendingi á
Akureyri er bréf frá akureyskri
liúsmóður. Þar kemur fram, að
miðaldra konur væra einna
helzt taldar líklegar til að
hnupla sér í kjörbúðum, að því
er staðarblöð önnur hefðu sagt.
Taldi konan þennan áburð
illkvittnislegan, og sagði, að
miðaldra konur á Akureyri
mundu sýna sóma sinn í því að
muna blöðunum og aðstand-
endum þeirra kinnhestinn, þótt
síðar yrði.
Þær fréttir berast frá Siglu-
firði, að Vélsmiðjan Héðinn í
Rvík og Siglufjarðarbær hafi
nýlega undirritað samning þess
cfnis, að vélsmiðjan tæki að
sér að koma upp tveim settum
af soðvinnslutækjum og síld-
'arsjóðara í verksmiðjuna
Rauðku fyrir kr. 5,175 milljón-
ir. Bærixm ætlar einnig að
kaupa frá Bandaríkjunum ket-
il í verksmiðjuna, sem getur
framleitt 6800 kíló af gufu á
klukkustund, en hann kostar
1,160 milljónir króna kominn
til Siglufjarðar. Rauðka skil-
aði hagnaði tvö síðastliðin ár,
en liafði mörg ár samfleytt áð-
ur verið rekin með tapi.
Frá því segir í Akureyrar-
blaðinu Degi, að útigengin
hryssa lijá Sigurði bónda að
Efra-Lóni, N-Þing. hafi kastað
fyrir skömmu og átt brúnskjótt
hestfolald, sem var hið spræk-
asta og nokkurra daga gamalt,
þegar að var komið. Amma
þessa folalds á merka sögu í
sinum heimahögum, því hún
bjargaði mannslífi á ánum
tíma.
Þykir tíðindum sæta, að
veðrátta sé svo blíð á þessum
árstíma, að nýkastað folald
skyldi ekki krókna, — en nú
er litli Skjóli kominn í hús
mcð móður sinni.
Frá • Húsavík berast þær
fréttir, að stóri Norðurlauds-
borinn sé farinn af Húsavíkur-
höfða og hættur að skína eins
og jólatré í næturmyrkrinu
norður þar. Hann náði að bora
rúma 1154 metra í jörð niður,
og var þar mikill hiti á holu-
botni, en ekkert vatn.
Skagfirðingar eru ekki af
baki dottnir í hestamennsk-
unni. Tamningastöðvar era
reknar í héraðinu bæði úti í
sveitunum og eins á Sauðár-
króki á vegum hestamannafé-
lagsins Léttfeta. Á búnaðar-
skólanum á Hólum eru hestar
einnig tamdir. Skagfirðingum
þykir þetta hin þarfasta starf-
semi og telja þetta stuðla mjög
að þvi, að hestaeigendur geti
komið í verð þeim hrossum,
sém þeir þurfa ekki á að halda
til eigin nota.
Sú nýbreytni hefur verið tek-
in upp í Menntaskólanum á
Akureyri, að einn maður frá
hverjum stjórnmálaflokki flyt-
ur þar erindi og kynnir mark-
mið og leiðir. Þegar liafa flutt
erindi þeir Hannibal Valdimars
son fyrir Alþýðubandalagið og
Helgi Sæmundsson fyrir Al-
þýðuflokkinn. Ræðnmenn frá
hinum stjórnmálaflokkunum
eru væntanlegir.
Fyrr í vetur var hliðs+æð
kynning f Menntaskólanum í
Reykjavík. (Frá þessu segir í
Degi á Akureyri).
Ólafsvík.
Fiskirí hefur verið sæmilegt
síðustu dagana, en aflahrotan
virðist gengin yfir í bili. Afli
bátanna var frá engu upp í 25
tonn.
Raufarhöfn.
AUtaf er sama blíðan, og ekk-
ert bólar á inflúenzunni. —
Landsmót skiðamanna, sem
halda átti á Neskaupstað, hefur
verið flutt út á Siglufjörð, þar
sem ekki gránar jörð á Nes-
kaupstað og því skilyrði til iðk-
unar snjóíþrótta harla léleg! En
menn eru farnir að segja sín á
milli, að ef ekki verði einu
sinni skíðafæri á Siglufirði, þá
verði þrautalendingin Vatnajök
ull! Þar er þó alltaf snjór!
TINGIR jafnaðarmenn og
æskufólk. Munið skemmti-
kvöldið í Burst i kvöld kl.
8,30. Þar verður margt til
* skemmtunar, og þá meðal
annars kvikmyndasýning,
dans og leikir. Öllum er
heimill ókeypis aðgangur.
tamup
44. árg. — MiSvikudagur 27. marz 1963 — 72. tbl.
SIJÖRNARKOSN-
NG i FRAMA
KOSNING til stjórnar og trún
aðarmannaráðs í Bifreiðastjóra-
félaginu Frama fer fram í dag og
á morgun í skrifstofu félagsins
að Freyjugötu 26. Verður kosið
frá kl. 1-9 báða dagana. — í sjálfs
eignardeild félagsins hafa komið
fram þrír listar, og tveir í laun-
þegadeild.
Listi stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs er A-listi. Hann skipa
í sjálfseignarmannadeild:
Formaður: Bergsteinn Guðjóns-
son, Hreyfli. Varaformaður: Jak-
ob Þorsteinsson, BSR. Ritari:
Narfi Hjartarson, Bæjarleiðir. —
Meðstjórnendur: Sófus Bender,
Borgarbílastöðin. Gestur Sigur-
jónsson, Hreyfill. Varastjórnend-
ur: Kristján Þorgeirsson, Borgar
bflastöðin. Guðmundur Ámunda-
son, Hreyfill.
Trúnaðarmannaráð: Guðjón
Hansson, Hreyfill. Jens Pálsson,
BSR. Einar Helgason, Borgarbíl-
stöðin. Hörður Guðmundsson,
Bæjarleiðir. — Varamenn í Trún-
aðarmannaráð: Skúli Skúlason,
Ilreyfli. Karl Þórðarson, Hreyfli.
Endurskoðendur: Tryggvi Kristj-
ánsson, Hreyfill. Varaendurskoð-
andi Þorvaldur Þorvaldsson, BSR.
A-listinn í launþegadeild er
þannig skipaður:
Form. Styrmir Þorgeirsson,
Landleiðir. Varaform. Haraldur
Sigurðsson, Steindór. Ritari:
Björn Sigurðsson, Landleiðir. —
Varastjórnendur: Sigurjón Einars-
son, Borgarbflast., Kristinn ísak-
sen, Bæjarleiðir. Trúnaðarmanna
ráð: Matthías Einarsson, Steinð.
Loftur Jónsson, Steind., Einar
: Steindórsson, Vestfj.Ieið. Sigtr.
Guðmundsson, Norðurleið. Vara-
menn: Jóhannes Ellerts, Vestfj.-
leið. Bjami Guðmundsson, Land-
leiðir. Endurskoðandi: Samúel
Bjömsson, Landleiðir. Varaendur-
skoðandi: Einar J. Jónsson^
Steindór.
Félagsmenn eru hvattir til að
mæta vel á kjörstað og kjósa x-A.
Alþjóðaleik-
húsdag urinn
Verwoerd: Lifum
í hæituástandi
Jóhannesarborg, 26. marz.
NTB-Reuter.
Forsætisráðherra Suður-Af-
ríku, dr. Hendrik Verwoerd, sagði
á þingi í dag, að hættuástand
ríkti nú í Suður-Afríku,
Lögum og reglu er reyndar
haldið uppi í landinu, svo er öfl-
ugum vömum og öflugri lögreglu
fyrir að þakka. En á hinn bóginn
gelur enginn neitað því nú, að
hættuástand rikir I S-Afríku, sagði
hann.
Þessi ummæli dr. Verwoerds
komu fram í f járlagaumræðum þeg
ar þingmenn stjómarandstöðunn-
ar höfðu haldið því fram, að
stjómin hefðl farið klaufalega að
í aðgerðum sínum gegu neðan-
jarðarsamtökunum Poqo.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
Framhald á 13. síðu.
í DAG er haldinn hátíðlegur í
annað sinn alþjóðaleikhúsdagur.
Álþjóðaleikhúsmálastofnunin, sem
hefur aðsetur sitt i París, gekkst
fyrir því 27. marz á sl. ári, að sá
dagur yrði helgaður leiklist þjóð
anna.
ísland er meðlimur Alþjóðaleik
húsmálastofnunarinnar og beitti
íslandsdeildin sér fyrir því í fyrra,
að minnast dagsins með kynningu
á starfsemi leikhúsanna liér á
landi. Ennfremur var nokkuð rit
að um alþjóðasamstarfið í leikhús
málum.
Kynning leikliússins á- þessum
degi fer fram með ýmsu móti
víða um lönd. Dagblöð qg útvarp
gegna þar miklu hlutvetki. Dags
ins er sérstaklega minnst i leikhús
unum og sjónvarpi og boðssýning
ar haldnar fyrir þá, sem að öðru
jöfnu eiga þess ekki kost að sækja
leiksýningar. Á þennan hátt er
stigið stórt skref í þá átt að kynna
almenningi hið mikla gildi leik-
listar í menningarlífi hverrar
þjóðar.
Leikritahöfundurinn heims-
þekkti, Arthur Miller, hefur sam
ið sérstakt ávarp í tilefni dags-
ins, sem birt verður í blöðum og
úfvarpi um allan heim.
Þjóðleikhúsið hefur valið dag-
inn til að frumsýna hinn fræga
sjónieik „Andorra" eftir Max
Frisch. leikstjóri ér prófessor
\Valter Firner fr: Vínarborg. Á
morgun verður síðan í Þjóðleik-
húsinu boðssýning á leikriti Sig-
Framhald á 13. síðu.
Aðaiíundur
Kvenfélagsins
AÐALFUNDUR Kvenfé-
lags Alþýðuflokksfélagsíns í
Reykjavík verður haldinn
annað kvöld kl. 8 í Félags-
heimili prentara að Hverfis-
götu 21. Að aðalfundarstörf-
um loknum, mæta sem gest-
ir á fundinum, Ólafur Ól-
afsson læknir og Helga Ní-
elsdóttir, Ijósmóðir, sem
veitir forstöðu hjálpar-
stúlknastarfsemi hér í bæ.
Á fundinum verða umræð-
ur og fyrirspurnir í sam-
bandi við aðbúð eldra fólks
og hjálparstúlknastarfsem-