Alþýðublaðið - 30.03.1963, Blaðsíða 3
MtMMMMtMmMHMMMMmUHHMMHHHV tWHMWMWWHtHWMWWtMMWWHMM
RIISIJÓRI VÍSIS
SVARAR RIISIJÓRA VlSIS
ALÞÝÐUBLAÐINU barst í
gær eftirfarandi frá Hersteini
Pálssyni ritstjóra:
Herra ritstjóri!
í tvo daga, fimmtudag og
föstudag, 28. og 29. marz, hef-
ir mér verið meinað a'ð birta
eftirfarandi greinarkorn í Vísi,
sem ég liefi nú starfað við í
samfleytt 27 ár, og sé ég mig
því knúöan til að biðja yður
um rúm fyrir þetta :
„í sl. viku birti Vísir viðtal
við Finn Jónsson listmálara,
þar sem fjallað var uin þátt-
töku íslenzkra listmálara í
sýningum erlendis. Viðtal þetta
skrifaði ég, þótt ég teldi ekki
ástæðu til að auðkenna það,
enda hefi ég sjaldnast gert það
við þær greinar, sem ég liefi
skrifað í Vísi um langt skeið.
Aðrir mega hafa þá reglu fyr-
ir mér.
Gunnar G. Schram fann hins
vegar hvöt hjá sér til að fara
nokkrum orðum úm viðtal þetta
hér í blaðinu í gær, og mundi
ég ekki hirða um að eltast við
skæting hans, ef ekki væri fyrir
þá sök, að í pistli hans felst
sú aðdróttun, að ég hafi sam-
ið viðtal þetta aö öllu leyti
og kennt Finni Jónssyni, en
hann eigi þar minnstan hlut að.
Þetta er ósvífin aðdróttun, og
vísa ég henni hér með á bug
og sem mun Finnur Jónsson
einnig gera á þeim vettvangi,
sem honum mun þykja hent-
astur.
Annars mun viðtal þetta
ekki hafa verið undirrót köpur-
yrða Gunnars G. Schram. Hitt
er sennilegra, að hann hafi
reiðst ummælum í forustugrein
Vísis á laugardag, þar sem
fjallað var um sama efni. Þar
var talaö um yfirgang viss
hóps listamanna og sagt, að
slíkur yfirgangur tíðkaðist nú
víða í þessu þjóðfélagi. Er mér
ekki grunlaust um, að þar hafi
Gunnari þótt nærri sér höggv-
ið, en skort hyggindin til að
leyna gremju sinni. — Og vilji
hann taka þa'ð sem sneið til sín,
er það hans einkamál.
Að öðru leyti tel ég ástæðu-
laust að fara frekari orðum um
þessa sérkennilegu ritsmíð
meðritstjóra míns. Andinn og
orðbragðið dæma sig sjálf.”
Mun ég ekki ræða þetta mál
frekar á þessum vettvangi.
Með þökk fyrir birtinguna.
Hersteinn Pálsson.
★ WASHINGTON: Hassan
Marokkókonungur og Kennedy
Bandaríkjaforseti ræddust við í
þriðja skipti á föstudag. Kon-
ungurinn ætlaði upphaflega að
heimsækja sjóliðsforingjaskól-
ann í Annapolis en ákvað að
ræða við Kennedy í staöinn.
Viðstaddur fundin var Mac
Namara, landvarnaráðherra.
Ilassan konungur heldur síðan
til New York þar sem hann
mun ræða við U Thant, aðal-
framkvæmdastjóra SÞ.
★ TOKYO: Home lávarður,
utanríkisráðhcrra, er um þess
ar mundir í 9 daga licimsókn í
Japan. Hann sagði á föstudag.
að Rauða-Kína ætti að fá aðild
að SÞ, enda kynni aðildin að
bæta framferði kommúnista-
stjórnarinnar. Hann varði verzl
un Breta við kommúnistaríki
og kvað verzlun stuðla að bætt
um lífsskilyrðum þjóða. Verzl
un gæti dregiö úr þeirra hættu,
aö ríki yrðu kommúnistisk.
Ilann sagði að Bretar yrð'u að
leggja harðar að sér vegna þess
að þeir fengu ekki aðild að
EBE. Þeir mundu halda áfram
vinsamlcgri samvinnu við ríki
Evrópu.
„Banddrísk vika
í Nausti
NAUST heldur áfram ferð sinni:
„Umhverfis jörðina á matseðli".
í íréttatilkynningu frá veitinga-
húsinu í gær segir, að næsti við-
komustaður verði Bandaríkin. —
Bandaríska vikan hefst í dag, og
má nefna meðal þjóðarrétta, sem
næstu sjö dagana verða á boðstól-
um í Nausti, glóðarsteikta „T-
steik“, „körfukjúklinga“ og „pies“
af ýmsum tegundum.
Loks er þess að geta, að Carl
Billich og félagar hans munu leika
bandaríska músik öll kvöld vik-
unnar og Savanna-tríóið syngja
bandarísk þjóðlög öll kvöldin nema
miðvikudagskvöld.
Næsti viðkomustaður á hnatt-
ferð Nausts verður Þýzkaland.
★ WASHINGTON: Harold
Wilson, foringi brezka Verka-
mannaflokksins, kom til Was-
hington á föstudag. Áður en
hann fór frá London kvaðst
hann mundi ræða við banda-
ríska ráðamenn um efnahags-
vandamál, sem Bretar eiga við
að stríð'a vegna þess að viðræð
urnar um aðild Breta að EBE
fóru út mn þúfur.
Starfsfræðsla
á Sauðárkréki
Starfsgreinakynning fer fram á
Sauðárkróki á morgun í Barr.askóla
húsinu og hefst kl. 15.
Kynntar verða nálegar 50 sta"ls
greinar í landbúnaði, sjávarutvagi
iðnaði, samgöngum og fleiri at-
vinnuvegum.
Vélin
vinnur á
við átta
G. HELGASON & MELSTED
sýndu fréttamönnum í gær nýja
tegund fiskvinnsluvélar, sem ætla
má að vekji nokkra athygli hér.
Þetta er fiskaðgerðarvél, sem sam
kvæmt upplýsingum umboðs-
manna skilar afköstum á við sex
til átta aðgerðarmenn.
Það er Fiskiðjusamlag Húsa-
víkur, sem kaupir vélina, en hing
að komin kostar hún um 490,000
lcrónur. Hún slægir allt að 24
fiska á mínútu og hefur verið „í
fæðingu" í svo sem átta ár. Hún
hefur verið reynd í togurum síð-
ustu árin og margendurbætt eft-
ir þeirri reynslu. Framleiðandinn
er fiskvinnsluvélafyrirtæki í Huli,
sem meðal annars hefur sent á
markaðinn ýmsar gerðir roð-
fletti- og flökunarvéla.
Erindi Jóhanns
Hannessonar
JÓHANN Hannesson, prófessor,
fiytur í dag erindi á vegum Stjórn-
unarfélags íslancls og nefnir það:
„Verzlun, sem einn af meginþátt-
um menningar".
. Prófessorinn flytur erindið í
Þjóðleikhúskjallaranum kl. 2 og
eru utanfélagsmenn velkomnir.
Enn koma
gjafir
ENN hafa Þjóðminjasafni íslands
borizt afmælisgjafir til viðbótar
þeim, sem þegar hefur verið sagt
írá í blöðum.
Frú Ingibjörg Eyfells afhenti
safninu fyrir sína hönd og syst-
kina sinna nokkra góða hluti, er
flestir höfðu áður verið í eigu
foreldra þeirra, séra Eggerts próf-
asts Pálssonar og Jóhönnu Egg-
ertsdóttur Briem. Meðal þessara
hluta er eikarki&ta stór, tvær fal-
lega riðnar tágakörfur austan af
Jökulfjörðum, reizla úr kopar og
útsaumaður upplilutur.
Þórður Tómasson í Skógum
færði safninu 20 sýnishorn af
gömlum íslenzkum vefnaðargerð-
um.
Þjóðminjasafnið þakkar þessar
góðu gjafir.
Reykjavík, 27. marz 1963.
Kristján Eldjárn
þjóðminjavörður.
Kynninguna annast heimamcnn
og einnig aðkomumenn meðal dnn.
ars frá Akureyri og Reykjac’.k.
Flugmálastjórnin mun til dæmis
láta í té flugvélaráhöfn, sem kynn
ir hin ýmsu störf við flug og flug-
samgöngur.
Þá verða ýmis konar sýningar í
sambandi við fræðsluna meðal ann
ars kvikmyndasýningar.
Gert er ráð fyrir að unglingar’úr
Skagafirði og A.-IIúnavatnssýslu
á. aldrinum 14-20 ára njóti fræðsl
unnar.
Ólafur Gunnarsson sálfræðiþg-
ur stýrir þessari starfsfræðslu að
frumkvæði Rotaryklúbbins á Sauð
árkróki. )
SYNGJA í
REYKJAVÍK
Karlakórinn Svanir held-
r
ur söngskemmtun á morgnn
í Gamla Bíói í Reykjavík.
Síðastliðinn sunnudag hélt
kórinn söngskemmtun á
Akranesi við rnjög góðar
undirtektir. Skemmtunin var
^ndurtekin á föstudagsM
kvöld.
Stjórnandi kórsins er
Haukur Guðlaugsson og ein-
söngvarar: Jón Gunnlaugs-'
son, Baldur Ólafsson og Al-i
freð Einarsson. Undirleik
annast frú Fríða Lárus-
dóttir.
Súlnasalurinn
opinn í kvöld
Hljómsveit
Svavars Gests leikur
Borðið og skemmtið yður í Súlnasalnum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 30. marz 1963
3