Breiðablik - 01.05.1907, Síða 4

Breiðablik - 01.05.1907, Síða 4
184 BREIÐABLÍK Valdsmanna og embættis hug- myndin hefir áður verið ríkjandi. Lífsins helztu stöður hafa heillað hugi ungra manna og gjöra það sjálfsagt lengi enn. Auður, met- orð og völd hafa hald feiknamikið á hugum nútíðarkynslóðarinnar. Alt glæsilegt ginnir og töfrar. Utan um það snýst heimshyggjan og lætur það verða fullkomnunar hugsjónunum að bana. Það er því óumræðilega gleði- legt tákn, að nú er aftur farið að halda þjónsmyndinni fram við mentastofnanir heimsins. Sá er bezt mentaður maður, er bezt læt- ur sér takast að veita flóði sann- leikans út yfir mannssálirnar. En það flóð má ekki vera kalt jökul- flóð, er færir grjót þekkingarinnar út um PTundir mannlífsins. Það O verður að vera heitt kærleiksflóð, er flytur með sér gróður og vöxt og þroska og blótngan. Skilyrðið fyrir þessu erlunderni mannsins. Þegar vér virðum ein- hvern mann fyrir.oss, er aðalatrið- ið hvorki búningur né líkams- skapnaður. Ekki er það heldur staða hans og auðlegð. Ekki þekking hans og gáfur. Ekki nafnbætur og metorð. En það er innri maðurinn, sálin, hugarfarið, lundernið. Alt er undir því kom- ið. Hann er góður eða lélegur þjónn eftir því lunderni, sem í hon- um býr. Markmið skólanna er því að skapa göfugt lunderni, göfugan hugsunarhátt, göfuga lífsstefnu. Það er í því fólgið að kenna mönn- um að elska hið varanlega, það sem aldrei verður frá manni tekið og aldrei hverfur,-—að elska sann- leikann, af því sannleikurinn gjör- ir manninn frjálsan, — að auka hitann í mannssálunum og kenna þeim að skilja, aðjsá, sem mest á af góðleik og kærleika í fari sínu, stendur hæst í sönnu manngildi. En helztu skólamönnum kemur nú saman um, að þessu megi helzt til leiðar koma með því að halda þjónsmyndinni upp fyrir hugskots- sjónum nemendanna. Hið eina, sem eftirsóknarvert sé, er það að verða þjónn,—að sækjast ekki eft- ir hinu háa og glæsilega, völdum, metorðum, auðlegð, lífsþægind- um,heldur því að taka ásig þjóns- gervið og ganga út í lífið,gyrtur líndúk kærleikans, til að þerra blóðrisa fætur,binda um sár þeirra, er sitja við veginn og hella geisla- flóði kærleikans inn í sálir mann- anna. Ó, að það mætti hepnast! Ó, að þjónsmyndin gæti orðið öllum kær. Glisið ginnir og dregur á tálar. Mörgum verður kalt um hjartað með þekkingunni. Hroki og drambsemi fær að þroskast og dafna. Blindum augum horfir maðurinn þá á lífið. Dofnum höndum fer hann þá um sárin. Kærleikurinn er flúinn. Þá er mentanin orðin að mylnusteini og maðurinn að nátttrölli, öll hepni lífsins að ófarsæld. En blásnauður þjónn er hverj-

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.