Breiðablik - 01.05.1907, Síða 6

Breiðablik - 01.05.1907, Síða 6
BREIÐABLIK 186 deildunum við almennu mentaskólana eru ekki færri en 552, alls 1053; er það 92 fleira en í fyrra. Þegar athöfninni sjálfri er lokið, er ár hvert fengánn til þess einhver ágætur ræðuskörungur og oftast ágætur skóla- maður um leið, að flytja ræðu við þetta hátíðlega tækifæri. Eru þeir oft til þess kvaddir langar leiðir að. I þetta sinn var til þess fenginn Canon Cody frá Toronto, maður sérlega málsnjall og fróður og fyrirtaks kennari. Ræða sú, sem hann flutti, kom flestum saman um, að hefði verið sú bezta, er hér hefir heyrzt við sama tækfæri, enda var hún hverjum manni mikils virði, sem heyrði og hug- leiddi. ,,Það er munur, óskaplegur munur, milli þess, sem rétt er,og þess, sem rangt er. Þegar til langframa Iætur, er rétt- lætið máttugt, en ranglætið aflvana. Gáfur eru ekkert í samanburði við göfugt lunderni. Göfugt lundarfar er uppspretta allrar atorku. Þér haldið út í heiminn eins og þjónar ríkisins, þjónar meðborg- aranna, þjónar þess tíma og þeirrar kyn- slóðar, er þér heyrið til. Dýrlegasta nafnbótin er sú, sem Gregorius VII. tók sér : Servus servorum Dei — þjónn þjónanna drottins. “ Hvar sem vér vorum með innlendum mönnum þenna dag var viðkvæðið sama: j ,,Enginn hefir jafn-mikla ástæðu til að þykjast af þjóð sinni og þér!“ Síðast var það margendurtekið af dr. Sparling í samkvæmi í húsi hans, þegar athöfnin í leikhúsinu var um garð gengin. Svo mikla eftirtekt hafði það vakið, hve vel íslendingar Ieystu prófin af hendi. Hvar- vetna höfðu þeir hlotið verðlaun eða heiðurspening. Engum dylst hér lengur, hvílíkum námshæfileikum þeir erugæddir. Undir niðri má samt við því búast, að dómar sé nokkuð misjafnir. Einn nem- endanna heyrði í leikhúsinu mælt af ein- hverjum að baki sér: ,,Þessir íslending- ar eru á undan við prófin; en úr því heyr- ir enginn þeirra að nokkuru getið. “ Fremur er það óvingjarnlega mælt Og líkt því hugarfari, sem innlendum mönn- um er of gjarnt að bera í brjósti gagnvart útlendingum. Tíminn, síðan Islendingar tóku að út- skrifast frá skólum hér, er naumast svo langur, að til þess verði ætlast, að þeir fáu hafi enn unnið mikil afreksverk. Verð- laun fyrir ágæta frammistöðu í lífinu hljóta fæstir fyrr en eftir margra ára þrautseiga þjónustu. Islendingum er líka naumast jafn-sýnt um og öðrum að þeyta lúður fyrir sjálfum sér og trana sér hvar- vetna fram. En samvizkusamlega gegna þeir vanalega skyldustörfum sínum og eru þar naumast eftirbátar annarra. í trúnaðarstöðum lífsins eru þeir sjald- an mestir afburðamenn, sem mest láta yfir sér. Skyldurækni og yfirlætisleysi eru fegurstu dygðir í fari hvers manns. Og það er von vor, að af þeim komi jafn- mikið fratnífari skólagenginna Islendinga hér vestan hafs og innlendra keppinauta þeirra. En þegar vér sátum þarna í leikhúsinu og virtum fyrir oss alla þessa viðhöfn og alla þá almennu hluttöku, sem þarna var sýnd, hvernig kepst var við af háum og lágum að gjöra daginn að sönnum heið- ursdegi hinna ungu námsmanna og gjöra sóma þeirra sem mestan, um leið og háleitustu hugsjónir mannlífsins voru brýndar fyrir þeim, gátum vér eigi var- ist, að láta annan dag renna oss í hug, er vér vorum staddir við álíka athöfn í latínuskólanum í Reykjavík og vorum sjónarvottar að þeim kulda og því hlut- tökuleysi, sem þar átti sér stað. Það var eins og sú athöfn kæmi helzt engum við og væri eigi álitin eftirtektaverð að neinu leyti. Ósjálfrátt kom fram í huga vorn mynd- in af vakandi þjóð og sofandi þjóð. Og oss langaði til að hylja ósjónu vora og fara í felur.

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.