Frækorn - 26.08.1904, Síða 3
FRÆKORN.
131
engu að síður bæði sannar og gull-
fagrar. Vér viljum ekki ganga fram
hjá þeim. Hér skulu settar fáeinar
þeirra:
»þér er það í fréttum að færa, að
vegurinn inn í heim þess sjáanda,
sem eygir lengra en efagirni skamm-
sýninnar grillir, iiggur ekki í gegn um
danssa! léttúðarinnar, eigi um fjala-
gólf þæginda né næðis, eða um hæg-
lætishlið há!fvelgjunnar«. (Bls. 5).
Um opinberun guðs dýrðar í sköp-
uninni segir höfundurinn þessi fögru
og sönnu orð:
»Önnur er ’hlið’ alföður, sú er í
öllum heimum, ætíð og alstaðar, skín
og birtir endurljóma af hans óendan-
legu veru«. (Bls. 8).
»Það er eigi kirkjan í sveit þinni,
heldur þú sjálfur, sem í sannleika er
musteri Ouðs. Gættu þess vandlega,
að halda musteri Guðs hreinu og
flekklausu. Þá skalt þú verða skugg-
sjá hans eih'fu dýrðar>.
Vér nemum hér staðar. Bókin vitn-
ar um áhuga og alvöru og lotningu
fyrir hinu guðlega, og þótt höf. eigi
sé kominn lengra en hann er i tilliti
til opinberunarvissu kristindómsins, þá
er bókin, sem heild skoðuð, eins og
fórn og tilbeiðsla til hins »ókunna
guðs«, sem Kristur opinberar þeim,
er til hans koma.
Oddur Björnsson stendur meðal vor
sem ærlegur, sannleikselskandi vinur,
og leitun hans er svo einlæg og elsku-
leg, að hver sá, sem hefir lært að
meta gildi manns, ekki eftir einskorð-
uðum játningarbókum, heldur eftir því,
sem verulega þýðingu hefir, hann hlýtur
að virða hann og elska, hvort meira
eða minna beri á milli, hvað skoðanir
snertir.
Ritið er prentað sem »handrit«, og
hefði ef ti! vill átt að liggja í þagnar-
gildi. En þögnin er áður rofin (af
M. J. í »Norðurlandi«), og mun eng-
inn skaði vera í því, að um slík mál-
efni sé rætt.
J. Raabe: Lœre- og lœsebog i Norges og
Jj Nordens historie for folkeskole og hjem.
Med 81 mynd. 223 bls. í stóru i 8 bl.
broti. Cammermeyers bókaverzlun,jKrist-
ianíu. Verð í pappabindi 90 au.
Það er sjaldgæft, að norskar bækur
komi til íslands, og enn sjaldgæfara,
að þeirra sé getið í íslenzkum blöðum.
Vér viljum reyna að breyta svolítið
til í þessu efni, gerum því hér byrjun
með að nefna bók, sem að mörgu
leyti verðskuldar að verða keypt á ís-
landi.
Hinn ötuli forstöðumaður Cammer-
meyers bókaverzlunar í Kristjaníú,’ hr.
Lars Swanström, hefir sjálfur 'verið
hvatamaður að útgáfu þessarar bókar.
Fyriraetlunin hefir verið, að gefa mönn-
um reglulega skemtibók yfir jsögu
Noregs og Norðurlanda frá upphafi
til vorra daga. Kenslubækur eru oft
mjög leiðinlegar, svo lesarinn leggur
þær sem fyrst frá sér. Öðruvfsi er
þessari bók varið. Hér er varla hægt
að finna neitt af þurru kenslub ókar-
bragði. Alstaðar mesta snild á frá-
sögninni. í Noregi hefir bókin með
réttu hlotið alveg einstætt lof.
Höf. er vel þektur, reyndur kennari
í sögu, og hann hefir haft auga fyrir
því, sem mest er um vert í sögunni,
en það eru ekki eintómar áratölur og
konunganöfn, heldur það, sem ein-
kennir líf hverrar kynslóðar og þjóðar.
Björnstjerne Björnson skrifar um
bókina:
»Bókin nær hátt upp yfir allar aðrar’