Frækorn - 20.07.1905, Page 5

Frækorn - 20.07.1905, Page 5
FRÆKORN 117 ALPAJÓMFRÚIN. [Myndir þessar, og eins kvæðið, sem hér fer á eftir, er úr hinni nýprentuðu bók eftir Quðmund Magnússon: » Ferðaminningar «.] Cvo töfrandi fríð, en svo tvíræð og köld, — sem tízkusprundin á þessari öld, sem hallast að skjalli og hóli — hún unir við frægð sína, upphefð og völd á Evrópu-fjallanna tignarstóli. Hún skreytir sig geislum og skautar sér; en skuggi blár yfir hvörmunum er, sem laða, — um leið og þeir hræða. En gullkögruð ský yfir brjósti hún ber, sem bylgjast — sem viðsjállar hirðmeyjar slæða. En faldurinn hátt upp í heiðloftið nær. Par hittast hinn norræni’ og suðræni blær og leika sér, léttir í förum. En gullinni slikju á gljúfrin slær, sem glotta, með helbláum risavörum. Sem steinrunnið sambland af yl og af ís hún yfir dalina þóttaleg rís og lokkandi lítur um veginn; því titbeiðsla’ og aðdáun veit hún er vís frá vötnunum tíðförnu beggja megin. En járnbraut sig vindur upp hryggi og hné; þar hrökkva björg og þar sprengjast vé, því verið er viðjar að leggja. Og bráðum öll dýrðin er föl gegn fé — ogfærtþeim, sem vill upp til hæztu eggja. — En eg þekki hávaxin, herðabreið fjöll, með hreinan svip og með skínandi mjöll; þar markast ei mannspor á svelli. Par lýta’ ekki hlekkir, þar líðast ei spjöll, — þau lifa í meydóm’ til verðugrar elli. Hverju biblían kom tll leiðar. Prédikari nokkur, sem ferðaðist gegn um afskekt hérað eitt, fékk færi á að heim- sækja skósmið nokkurn og komast í sam- ræðu við hann, meðan hann vann. Mað- urinn var mjög óupplýstur, eins og aðrir nábúar hans; en prédikarinn fann, að hann var hugsandi maður, sem ekki var ókunnugt um sitt andlega myrkur. Hann talaði djarflega, og virtist glaður yfir að hitta einhvern, sem gæti skilið sig. Hann sagðist finna sig bundinn og fjötraðann, — hjálparlausan á sál og sinni. — Qat gestur hans skrifað upp nokkurt ráð, sem gæti bætt hið myrka sálarástand hans? »Eg sé hér einkaleifis-meðala-almanak, sagði prédikarinn, »eg býst við þér séuð læs.« »Eg get lesið lítilsháttar, < svaraði skó- smiðurinn. »Og þér finnið engin af þeim meðöl- um þar, sem þér óskið eftir? Hafið þér aldrei fundið yður knúðan til að fara til • biblíunnar, yður til uppfræðingar, upp- ! örfunar og hjálpar, þegar þér voruð beygð-

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.