Frækorn


Frækorn - 04.01.1906, Blaðsíða 6

Frækorn - 04.01.1906, Blaðsíða 6
'6 FRÆKORN Miðvikudaginn 10. janúar. Þjóðir og landsijórnendur. Bæn fyrir konungum og stjórnend- um, að þeir stjórni í ótta drottins, leiti sannrar velferðar þegna sinna, þjóni guði í valdastöðunni, og fái trúa þjóna, líka Daníel. — Að drottinn blessi ríki vort og land, og hjálpi til að hatur og eigingirni, vantrú og kæruleysi flýi land, en lifandi trú og sönn ættjarðarást komi í staðinn. — Að siðferðileg og réttlát itörf blómg- ist, en spilling og kúgun þverri. Að stjómir allra landa stundi samhuga réttlæti, frið og velferð allra stétta. Biblíuleskaftar: 1. Tím. 2, 1—4, 1. Kon. 3, 7 — 10, Jer. 5,20-29, 2. Sam. 23, 1-5, Rómv. 13, 1-8. Fimtudaginn 11. janúar. Heiðingjatrúboð. Rakkargjörb fyrirallablessun síðasta árs og síðustu aldar, — fyrir það, að ýmsar þjóðir vilja fúsar hlusta á fagn- aðarerindið og eignast biblíur; fyrir blessun þá, sem fagnaðarerindið hef- ir flutt inn á heimili heiðingja ogMú hameðstrúarmanna, og fyrir játningar- hugrekki, sem mörgum veittist, er lið- ið hafa fyrir Krist. Bæn um fleiri verkamenn, karla og konur, albúna til að hlýða skipun drottins síns og fara í hans erindum til endimarka jarðarinnar; um dýpri ábyrgðar-tilfinningu einstaklingsins gagnvart kristniboðsstarfi; um meiri gjafmildi til þessarar greinar af guðs- ríkisstarfinu; um stöðuglyndi hjá þeim, er taka kristna trú og að þeir verði áhugasamir í að útbreiða kristindóm- inn meða! landa sinna. Bæn fyrir öllum kristniboðum, sem komnir eru til starfa, og fyrir læknatrúboðinu. — Bæn fyrir Japan, Kína, Tibet, Ind- landi, Arabíu, Tyrklandi og Afríku, einkum fyrir Sudan og Nigeríu; fyr- ir kaþólskum og heiðnum landshlut- um í Norður- og Suður-Ameríku, Ind- landseyjum, Kyrrahafseyjum og Ástra- líu. — Bæn um að brátt megi koma I fram hin mikla fyrirætlun drottins, að taka frá heiminum »lýð eftir sínu nafni« og öll jörðin fyllast af dýrð hans. | Biblíuleskafiar: Sálm. 2, 67., 72, 8 — 11, Post. 10, 34 — 48, Rómv. 16, 25-27. Föstudaginn 12. janúar. Heimilin, uppeldisstofnanir og ceskulýðurinn. Bæn um að heimilisrækt blómgist í öllum kristnum löndum; að kenn- ingar guðs orðs njóti sín bæði á heim- ilum og í skólum um víða veröld. Bæn fyrir skólum vorum æðri og lægri, að efasemdirnar og vantrúin gagnvart guðs orði , sem þar ber of mikið á, megi hverfa, en í stað þess koma trú og lotning, og að öll sönn menn- ing dafni. Bæn fyrir sunnudagaskól- um, biblíulestrum, allri starfsemi, sem miðar að því að efla andlega velferð æskumanna; fyrir öllum munaðar- leysingjaheimilum ; fyrir K. F. U. M. og K. F. U. K.; fyrir löndum vorum erlendis. — Biblíuleskafíar: 5. Mós. 6, 4-9., 21, 12-13., l.Mós. 18, 17-19; Matt. 18, 1-6., 19, 13-15., Efes. 6, 1-4. Laugardaginn 13. janúar. Heimatrúboð og Gyðingar. Bæn fyrir kristniboði meðal Gyð- inga í öllum löndum, að allir sannir lærisveinar Krists elski það starf meira, að heilög ritning, bæði gamla og nýja testamentið, breiðist út, svo að augu margra opnist, og þeir sjái, að Jesús er Messías. Bæn um, að drottinn blessi ríkulega alla heimatrúboðsstarf- semi, bæði inn á við og út á við; að guð leiði og blessi hverja tilraun til að forða mönnum frá ofdrykkju og öðrum löstum; að vellíðun og bróðurandi blómgist meðal allra stétta; að allar rangar kenningar hverfi. — Biblíuleskaflar: Sak. 10, 9 — 19., 14, 20-21.; Mal. 3, 1—6.; Rómv, 10, 1-2., 11.; Post. 15, 13-18.; 27, 22-44. Sunnudaginn 14. janúar. Rœðutexti. Sá, sem þetta vottar, segir: Já, eg kem skjótt, amen. Kom, drottinn Jesús! — Náðin drottins vors Jesú

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.