Frækorn - 04.01.1906, Blaðsíða 8
8
FRÆKORN
Fréttir*
— Rússland. — Blóðugir jóladagar.
Tuttugu þúsundir manna fallnar og
særðar á borgargötunum í Moskva.
t Eystrasaltsfylkjunum er alt í upp-
námi. Kósakkar drepa menn þar í
hrönnum og fremja mörg önnur ó-
hæfuverk.
Frá Moskva berast afskapleg ótíð-
indi. Búðum er lokað, brauð og
kjöt er stígið í gevpiverð, sem hung-
ursneyð væri. Síðari fréttir frá Mosk-
va segja, að hildarleikur sá, er háður
var þar á laugardaginn (Rorláksdag)
sé líkastur >Blóðsunnudagsatförun-
um« (22. jan. þ. áð Mikill flokkur
byltingarmanna ætlaði að taka á vald
sitt opinber hús borgarinnar, en þá
komu að 25 þúsundir hermanna og
skutu þegar á flokkinn fyrirvaralaust.
Fallbyssum var skipað á strætin og
flúðu verkamenn bak við skyndivígi,
er hlaðin voru um þverar götur. Var
þá skotið á vígin með fallbyssum.
En um síðir, þá ei verkamenn létu
uppi vörnina og gengu úr vígstöðv-
unum, þá var ráðist á þá, höggnir
niður sem hráviði og troðnir undir
hestafótum svo margir, að ekki varð
tölu á komið. — Búister við, að fregn-
in um ma.indráp þessi auki um allan
helming uppnámið í Pétursborg.
Múhameðsmenn eru enn vegnir í
hrör.num í Kákasus. Hafa 2000 fjöl-
skyldur flúið burt úr borginni Tiflis.
A jóladagsmorgun snemma vartala
þeirra, er faílið höfðu í róstunum í
Moskva fimm þúsundir, en 15 þús-
tmd voru særðir. Vopnaviðskifti og
sfórskotahríðir héldu enn áfram á
jóladagskveld.
— »Nýtt kirkjubiað* heitir hálfs-
mánaðarrit fyrir kristindóm og kirkju-
lega menning, er feður hinna fyrri
kírkjulegu tímarita hafa tekið fyrir að
gefa út nú um áramótin. Af hinu
iyrsta tölublaði að dæma, virðist »Nýtt
kirkiublað* að verða nýtilegt og gott
blað, og vafalaust mun það vel ráöið,
að þeir sameinuðu sig, ritstjórar »ljóss-
ins* og »kirkjublaðsins« sælu, því að
með því móti verður blaðið fjölskrúð-
ugra en ella. Blaðið er á stærð við
»Verði ljós«, árg. verður 18 arkir, og
verðið 2 kr.
— 52 tölublöð koma af »Frækorn-
um< í ár. Verðið er aðeins 1 kr. 50
au. Enginn getur borið á móti því,
að »Frækorn« eru lang-ódýrasta blað
landsins.
— »Lögrétta« heitir annað blaðið,
sem stofnsett hefir verið hér í Rvík
um nýárið. Er það stuðningsblað
hinnar nýju stjórnar vorrar. Ritstjóri
er Porst. Gíslason.
— »Alþýðublaðið«. Svo kvað eiga
að nefna nýtt málgagn hér í bæ, og
á það að verða blað jafnaðarmanna
(socialista).
Guðs börn
í hinum ýmsu trúarflokkum hér eru
beðin um að mæta til samtals um
áríðandi málefni föstudaginn 5.
jan. 1906 kl. 6e. h. í BeteK Eng-
inn sérstakur trúarflokkur gengst
fyrir þessari samkomu, heldur verð-
ur hún sameiginleg fyrir alia trú-
aða menn og konur.
Frækorn korna út hvern fimtudag.
¥ ¥austið 1905 var mér dregið hvítt
f*\ geldingslamb setn ekki er mín
* eign, mark: sneitt aftan vinstra,
sem er mitt mark; sá, sem það brúk-
ar, gefi sig fram.
Helgastöðum við Stokkseyri
í desember 1905.
Holgi Pálseon.
Upplag „Frækorna“ er 4,500 eintök.
*>* Sunnudaga :
Kl. 2 e. h. Sunnudagaskóli.
K1 6 ’/» e. h. Fyrirlestur.
MiÖvikudaga: Kl. 8 e.h. Biblíusamtal.
Auglýsingum i „Frækorn“ sé skilal
fil ritstjóra fyrir hád. á miöv.daf.
Prcnt&miðja ,,Frækc>rna“ 1906.