Frækorn - 01.03.1906, Blaðsíða 2
66
FRÆKORN
sem kalkið hefir verið höggvið og síðan
brent, og svo veit hann, að eftir að það
í -þessu ástandi hefir verið flutt á bygg"
ingarstaðinn, hefir það verið slökkt og
því næst haft til að líma múrsteinana í
byggingunni saman. Hann getur enn-
fremur bent á staðinn, þar sem tré þau,
er þurftu til hússins, hafa verið feld.
Hann fylgir þeim í huganum til sögun-
ar-mylnunnar, þar sem þeim hefir verið
flett í bjálka og borð, áður en þau voru
flutt á sinn núverandi stað. Og loks
sér hann erfiðismenn, smiði, múrara, timb-
urmenn, og athugar með eigin augum,
hvernig þeir — og engir aðrir en þeir -
koma upp byggingunni af efni því, sem
er fyrir höndum. Manninn, sem gjört
hefir uppdráttinn af byggingunni og
sameinar alla hina ýmiskonar krafta sína
í eitt, sjálfan byggingar-meistarann, sér
hann ekki. Ef nú þessi niaður ályktað'
af því, sem hann þannig hefir séð með
eigin augum, að enginn bygginga-meist-
ari væri til, að tilvera hans væri ekk'
annað en draumórar hjátrúarfullrar og ó'
upplýstrar tíðar, er hlyti að hverfa eins
og dögg fyrir sólu fyrir upplýsing vorra
tíma, ef hann, þá er hann ætti að gjöra
grein fyrir hinni kynlegu samverkan hinna
mörgu ýmiskonar krafta, segði, að þessi
samverkan væri tilviljan og ekki annað>
þá hefðum vér þarna mynd af mörgum
manni, sem á vorum dögum talar með
regingi miklum í nafni mentunar þess-
arar aldar, vísindanna og sannleikans, læt-
ur blinda tiiviljun hafa myndað heiminn, ;
og neitar þar af leiðandi tilveru guðs-
Oss er það full kunnugt, að þetta er
ekki annað en n jög einfaldur barnalær- '
dómur, en það er einmitt á honum, sem
oss ríður fremur en öllu öðru. í þess-
um einfalda barnalærdómi er langtum
meiri sannleikur en því, sem vor öld kall-
ar speki. — D. G. Monrad: „Úr heimi
bœnarinnar. “
Andatrúin.
Hvernig andarnir fá vald yfir líkamanum.
Framh.
Eftirfylgjandi spádóma, sem andar í
Ohio spáðu 20. seft. 1860, og sem A.
J. Davis gaf út á prenti, geta lesararnir
sjálfir dæmt um, hvort ekki séu frádjöfl-
inum að uppruna :
1. »A komanda vetri mun þingið
lenda í bardaga, og blóðsúthellingar rtiunu
verða.«
2. Þessi þjóð mun verða dauð, sem
þjóð, fyrir 4. marz.«
3. »Framar fáum vér engan forseta.
Sá, sem nú er (Buchanan) mun ekki sitja
á stóli alveg út sinn tíma.«
4. »Sá, sem verður í kjöri mun fá
meiri hluta atkvæða, en þó ekki verða
kosinn.
5. »Kanada mun verða innlimað Banda-
ríkjunum í Ameríku.«
Svedenborg segir:
^Þegar maður talar við anda, verður
maður að sjá að sér, að trúa engu þeirra
orði, því að nálega alt, sem þeir segja,
er þeirra eigin uppspuni, því að þeir eru
lýgnir. Sé þeim leyft að segja nokkuð
því viðvíkjandi, ljúga þeir svo ákaft, að
hver maður hlýtur að undrast.* Bann-
er of Light 20. marz 1869.
The Crucible 25. apríl 1871 komst
svo að orði:
Andi getur ekki ætíð fengið miðil til
að tala sannleika. Síðastliðin 10 ár hefi
eg aflað mér ýmiskonar og mikillar reynzlu
í þessu efni, og þá aðallega beint rann-
sóknum mínum í sálfræðislega átt, en
þessar rannsóknir mínar og reynzla hefir
gjört mig færari til að íhuga fyrirbrigði
andatrúarinnar með meiri skynsemi og
ígrundun en áður, en jafnframt sannfært
mig um óáreiðanleik hennar. Eg hefi
komist að raun um, að þótt niaður gjöri
sitt allra ýtrasta til að fá sannorðan mið-
il, er það með öllu ómögulegt. Rað er