Frækorn


Frækorn - 07.06.1906, Side 1

Frækorn - 07.06.1906, Side 1
VII. ÁRG. REYKJAVÍK 7. JÚNÍ 1906. 23. TBL. Kærleiki Krists til föðursins. Eftir dr. Torrey. Framh. Einfaldleiki lífsins. Lesum sem dæmi upp á hvernigjesús opinberaði kærleika sinn til föðursins, Jóh. 5, 30. »Eg megna ekkert að gjöra af sjálfum mér; eg dæmi sem eg heyri og minn dómur er réttvís, því eg leita ekki míns vilja, heldur vilja föðursins sem sendi mig.« Hér er oss sagt, að kærleiki Krists kom fram í því, að hann leitaði föðursins vilja, hann ekki einung- is gjörði hann, heldur var það einn og sami tilgangur með alt starf hans og alt hans líf, að leita og finna hvað væri guðs vilji. Eins og mennirnir Ieita gulls og fjármuna, eða gimsteina, eða nautna, eða komast hátt í heiminum, þannig leit- aði Kristur föðursins vilja — reyndi að skilja hann til þess að geta framkvæmt hann Flettum upp Jóh. 5, 34. og 41. »Eg tek ekki vitnisburð af mönnum, eg tek ekki heiður af mönnum.« Jesús sýndi kærleika sinn til föðursins í því að taka ekki vitnisburð eða heiður af nokkrum manni, — með að taka engan annan vitnisburð en guðs, engan heiður nema af guði. Hversu er ekki þetta ólíkt lífi nútímans. Ef þessi eina hugsun fengi fest rætur í hjörtum yðar, mundi hún veita lífi yðar það, sem vér köllum ein- faldleik. Mikill rithöfundur hefir nýlega gefið út bók, sem hann kallar »Einfaldleiki Iífsins.« Þetta er ágæt yfirskrift. Bókina sjálfa gef eg ekki mikið fyrir. Jesú líf bar vott um sannan einfald- leik. Hinn eini tilgangur þess var að leita guðs vilja og svo að framkværua hann. Sá eini, sem hann tók vitnisburð og heiður af, var guð. Pað hafði enga þýðingu fyrir hann hvað menn sögðu um hann, þeir gátu vitnað með eða móti honum, lofað hann eða lastað, það hafði ekkert að segja, hann tók einungis inóti heiðri af guði. Mikill leyndardómur. F*að er leyndardómurinn við líf í fullri undirgefni. Ef þú lætur líf þitt stjórnast af því, sem fólk hugsar, eða segir um þig, muntu aldrei fá að reyna hvað veru- legt líf í trú er. Einn daginn er þér hrósað, annan dag- inn ertu ásakaður. Beztu vinir þínir munu fyr eða seinna snúast móti þér, ekki í þeim tilgangi að gjöra þér rangt, heldur blátt áfram af því, að vér misskiljum hvorir aðra. Pað er enginn af lesendum mínum, sem ekki hefir verið misskilinn — misskilinn af góðviljuðum mönnum. Sum af hinum beztu verkum, sem þú hefir gjört, hafa menn eignað óhreinum hvötum, af því þeir þektu ekki þá hugs- un hjá þér, sem þau stjórnuðust af, og þeir dæmdu þig hart. Meðan þú ert háður því, sem menn segja um þig,

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.